Fréttablaðið - 21.08.2015, Qupperneq 58
„Við eigum það sameiginlegt að búa
yfir einlægum áhuga á Pearl Jam svo
þar sameinumst við á þessum tón-
leikum,“ segir Magni Ásgeirsson, einn
þeirra sem stíga á svið á Gauknum í
kvöld, en þá mun Perlu Sultan heiðra
Pearl Jam með því að flytja plötuna
Ten í heild sinni. Perlu Sultuna skipa
auk Magna þau Ágústa Eva Erlends-
dóttir, Franz Gunnarsson, Andri
Ívarsson, Kristinn Snær Agnarsson ,
Birgir Kárason og Erla Stefánsdóttir.
„Lengi hefur verið draumur hjá
okkur að taka þessa plötu fyrir,
sem er eiginlegt upphaf grunge-
tímabilsins,“ segir Magni, en
hópurinn leiddi síðast saman hesta
sína og flutti lög sveitarinnar fyrir um
fimm árum. Síðan hefur allaf verið á
stefnuskránni að endurtaka leikinn.
„Tíminn flýgur, en nú er loks komið
að þessu,“ skýtur hann að. Aðspurður
um hvort vinsældir heiðurstónleika
fari dvínandi segir Magni svo ekki
vera, og segist ekki taka þátt í slíku
neikvæðisrausi, enda hafi hann ekki
heyrt nokkurn mann segja svoleiðis.
„Nú þurfa menn að fara að hlusta á
Pollapönk aftur: Niður með þessa
neikvæðni.“
Tónleikarnir munu fara fram á
Gauknum líkt og áður segir, sem
Magni telur afar viðeigandi. „Við
erum af síðustu Gauks-kynslóðinni ef
svo má að orði komast. Þegar maður
kemur inn á Gaukinn hellist
yfir mann furðuleg nostalgía
svo þarna verður geggjuð
stemning,“ segir hann og bætir
við að lokum, borubrattur
eins og honum einum er
lagið: „Það er alls ekkert
víst að þetta klikki.“
gudrun@frettabladid.is
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Föstudagur
Nostalgíuandi allt
umlykjandi í kvöld
Perlu Sultan flytur plötuna Ten í heild sinni í kvöld, þar sem eldheitir
aðdáendur Pearl Jam stíga á svið og sameinast í ástríðunni.
NÚ ÞURFA MENN AÐ
FARA AÐ HLUSTA Á
POLLAPÖNK AFTUR, NIÐUR MEÐ
ÞESSA NEIKVÆÐNI.
Magni
Ásgeirsson,
tónlistarmaður
Perlu Sultan mun spila á Gauknum í kvöld og verður húsið opnað klukkan 21.00 og sveitin hefur upp raust sína klukkan 23.00.
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R4 0 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Hvað? Hádegisfyrirlesturinn ’Þeir tala, við
hlustum‘ eða ’Fræðin í frásögum‘: þekking
frumbyggja og akademísk orðræða“
Hvenær? Kl. 12.00
Hvar? Í stofu 101 í Odda í Háskóla Íslands
Fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
sem ber yfirskriftina „They talk, we
listen or Theory Coming Through story:
Indigenous Knowlegdes and Western
Academia“ („Þeir tala, við hlustum eða
Fræðin í frásögum: þekking frumbyggja
og akademísk orðræða“). Dr. Lutz færir
rök fyrir nauðsyn þess að evrópskar
hugmyndir um fræði og vísindi verði
endurskoðaðar því meta þurfi að
verðleikum hefðbundna þekkingu
frumbyggja Norður-Ameríku. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir.
Hvað? Verkið Brothætt
Hvenær? Kl. 20.30
Hvar? Í Sal Myndlistarfélagsins í Listagilinu
Emil Þorri Emilsson mun flytja verkið
Brothætt sem hann samdi í kringum
Flísafón. Emil og faðir hans, Emil
Valgarðsson, bjuggu til hljóðfærið í
sumar. Flísafónn er þriggja áttunda
ásláttarhljómborð unnið úr gólfflísum.
Hvað? Tónleikar
Hvenær? Kl. 20.00
Hvar? Óðinshús, Eyrarbakka
Tónlistarmaðurinn KK mun spila fyrir
gesti í kvöld, en hann er fyrir löngu
orðinn þjóðþekktur fyrir sitt framlag til
til tónlistargyðjunnar. Mun aðgangur
vera ókeypis en tekið verður við frjálsum
framlögum.
Hvað? Perlur íslenskra sönglaga
Hvenær? Kl. 17.00
Hvar? Harpa, tónlistarhús.
Áheyrendur fá að kynnast
sígildri íslenskri tónlist.
Verða fluttar perlur
íslenskra sönglaga,
þjóðlög, sálmar og
ættjarðarsöngvar.
Listrænn
stjórnandi er
Bjarni Thor
Kristinsson.
Hvað? Heima er best,
Hvenær? Kl. 16.00
Hvar? Klambratún
Sirkusskemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Sýningin tekur tvær klukkustundir með
korters hléi og hentar öllum frá 5 ára aldri
og þolinmóðum yngri krökkum. Gripl,
húlla, loftfimleikar, einhjólalistir og svo
margt fleira er sett saman svo úr verður
sannkölluð sirkusupplifun, með öllu sem
tilheyrir sirkustöfrunum.
Hvar? Skinnsemi
Hvenær? Kl. 20.00
Hvar? Klambratún
Kabarettsýning fyrir fullorðna með
sirkusívafi. Sýningin er bönnuð innan
átján ára og þykir ekki henta viðkvæmum.
Innblástur sýningarinnar er sóttur
í burlesque- og vaudeville-sýningar
þriðja og fjórða áratugarins, en formið
var endurvakið á tíunda áratugnum í
Bandaríkjunum. Má sjá loftfimleika, eld,
jafnvægislistir, fjaðrir, tónlistaratriði, lista-
og lostamenn, húlahringi og trúðslæti svo
eitthvað sé nefnt.
Hvað? Sirkus Baldoni
Hvenær? Kl. 19.00
Hvar? Íþróttahúsið í Fellabæ
Danskur sirkus sem vanið hefur komur
sínar til landsins undanfarin ár og hefur
ferðast um landið. Fjölbreytt dagskrá og
mikið um dýrðir.
Hvað? Óperan Björninn
Hvenær? Kl. 20.00
Hvar? Players, Kópavogi
Sviðslistahópurinn Sómi þjóðar og nokkrir
ungir íslenskir tónlistarmenn taka höndum
saman í sýningunni, sem er íslensk útfærsla
af verkinu The BEAR eftir William Walton.
Aðstandendur sýningarinnar eru þau
Tryggvi Gunnarsson leikstjóri, Hugi Jónsson
barítón í hlutverki Smirnovs, Guja Sandholt
mezzó-sópran í hlutverki Popovu og Pétur
Oddbergur Heimisson bassa-barítón
í hlutverki Luka. Tónlistarstjórn og
píanóleikur er í höndum Matthildar Önnu
Gísladóttur. Miðaverð 2.800 krónur.
Hvað? Tónleikar í Freysnesi
Hvenær? Kl. 22.00
Hvar? Hótel Freysnes.
Árlegir tónleikar í Freysnesi verða haldnir
í kvöld þar sem Jónína Aradóttir grípur
í gítarinn. Aðgangur ókeypis en frjáls
framlög vel þegin.
Hvað? Rokk/Metal partí
Hvenær? Kl. 23.45
Hvar? Café Amour
Dj Doddi Mix sér um að halda uppi fjörinu,
allt frá Led Zeppelin, yfir í mjög þungan
metal og íslenskt rokk.
Hvað? DJ B.G. Baarregaard
Hvenær? Kl. 21.00
Hvar? Kaffibarinn.
Dj.B.G. Baarregaard þeytir skífum
í kvöld. Aðgangur ókeypis.
Hvað? Festisvall Fünf
Hvenær? Kl. 20.00
Hvar? Kex Hostel
Alþjóðleg tónlistar- og listaveisla á
Kexi í kvöld. Munu böndin Good Moon
Deer, EAST OF MY YOUTH, Hermigervill
og Berndsen stíga á svið í kvöld.
Aðgangseyrir 1.800 krónur.
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
AKUREYRI KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 10:10
THE GIFT KL. 10:45
VACATION KL. 5:50 - 8
MISSION: IMPOSSIBLE KL. 8
INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 5:50
THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 10:20
THE MAN FROM U.N.C.L.E. VIP KL. 10:20
VACATION KL. 3:40 - 4:40 - 5:50 - 6:50 - 8 - 9 - 10:45
VACATION VIP KL. 3:40 - 5:50 - 8
MISSION: IMPOSSIBLE KL. 5:15 - 8 - 10:45
ANT-MAN 2D KL. 8
THE GALLOWS KL. 10:45
SKÓSVEINARNIR ÍSLTAL 2D KL. 3:40 - 5:50
INSIDE OUT ÍSLTAL 2D KL. 3:40 - 5:50
JURASSIC WORLD 2D KL. 8
HITMAN: AGENT 47 KL. 5:50 - 8 - 10:10
VACATION KL. 5:40 - 8 - 10:45
MISSION: IMPOSSIBLE KL. 5:20 - 8 - 10:20
FANTASTIC 4 KL. 10:30
ANT-MAN 2D KL. 5:30 - 8
THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 8
VACATION KL. 5:50 - 8 - 10:30
MISSION: IMPOSSIBLE KL. 6 - 9 - 10:20
INSIDE OUT ENSKT TAL 2D KL. 5:50
THE MAN FROM U.N.C.L.E. KL. 10:20
HITMAN: AGENT 47 KL. 8
THE GIFT KL. 10:10
VACATION KL. 8
PIXELS KL. 5:30
SKÓSVEINARNIR ÍSLTAL 3D KL. 5:40SPARBÍÓ
MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.950 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1250 Á GRÆNT
HITFIX
THE HOLLYWOOD REPORTER
VARIETY
Það muna allir eftir ógleymanlegu grínmyndunum um
Griswold fjölskylduna. Nú er komið að syninum að fara með
sína fjölskyldu í frí!
MATT SULLIVAN - IN TOUCH
“BRJÁLÆÐISLEGA FYNDIÐ
FRAMHALD”
JAMES OSTER - JOBLO
“VACATION ER FYNDNASTA
MYND ÁRSINS”
DAVE KARGER - FANDANGO
“ÉG HEF EKKI HLEGIÐ SVONA
OFT UPPHÁTT Í LANGAN TÍMA”
NÝJASTA MYND GUY RICHIE
LEIKSTJÓRA SNATCH OG SHERLOCK HOLMES
FORSÝND UM HELGINA
THE TELEGRAPH
HITFIX
TIME OUT LONDON
Sýningartímar á eMiði.is og miði.is
Daily with english subtitle at 17.30
at Haskolabio University Cinema
ABSOLUTELY ANYTHING 6, 8, 10
THE GIFT 5, 8, 10:20
TRAINWRECK 8
FRUMMAÐURINN 2D 3:50
SKÓSVEINARNIR 2D 4
MINIONS - ENS TAL 2D 6
MISSION IMPOSSIBLE 10:35
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 5
TILBOÐ KL 4
TILBOÐ KL 3:50
2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
D
5
-D
9
1
0
1
5
D
5
-D
7
D
4
1
5
D
5
-D
6
9
8
1
5
D
5
-D
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K