Fréttatíminn


Fréttatíminn - 24.07.2015, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 24.07.2015, Qupperneq 14
Á flótta undan því venjulega Kristín Jónsdóttir er þekkt undir nafninu Parísardaman enda hefur hún búið í París árum saman og rekur þar ferðaþjónustu undir því nafni. Hún segir fordóma gagnvart útlendingum hafa aukist í Frakklandi á undanförnum árum, þótt Íslendingar séu þar í miklum metum, en það sem fer þó mest fyrir brjóstið á henni í Parísku samfélagi er útlitsdýrkunin og krafan um að konur líti út í samræmi við fyrirframgefnar hugmyndir um kvenleika. K ristín er í sumarfríi á Ís- landi ásamt börnum sínum tveimur, Sólrúnu og Kára, en eiginmaðurinn, Arnaud Genevois, er heima að vinna sem bóksali á Signubökkum eins og síðustu fimmtán árin. Kristín hefur reyndar mjög sterk tengsl við Ísland þrátt fyrir áralanga fjarveru og er mjög virk í íslenskri kvenfrelsisbaráttu í gegnum Facebook og vefsíðuna Knúz. Það að búa svona langt í burtu gerir hana þó dálítið stikkfrí í umræðunni, segir hún. „Ég var einmitt að analýsera sjálfa mig með þetta um daginn. Þetta er örugglega ákveðin tegund af flótta. Að taka þátt í umræðunni einhvers staðar þar sem ég er ekki. Ég get bara þvaðrað og gasprað um einhver íslensk vanda- mál af því að þau snerta mig ekki beint. Þannig að þetta er ákveðinn bleyð- ugangur. Ég neyðist til að játa það. Þetta fer allt fram í gegnum netið og sumir halda því fram að með þessu komi maður í veg fyrir að þurfa að tala við fólk augliti til auglitis, en ég er afskap- lega félagslynd og finnst mjög gaman að hitta fólk þannig að sú útskýring passar ekki við mig. Hin hliðin á peningnum er að hversu góður sem maður verður í útlendu máli þá er maður alltaf „hinn“, - l‘autre. Það getur verið dálítið viðkvæmt að ég sé að gagnrýna Frakkland, fólk spyr þá hvað ég sé að gera þar fyrst allt sé svona ómögulegt, hvers vegna ég fari ekki bara heim til mín. Kannski er það bara eðlilegt að maður sé í þessari að- stöðu, ég hugsa að margir útlendingar, hvar sem þeir búa, leiti í það að vera í samræðu við eigin landa. Sem hefur auðvitað orðið miklu auðveldara með til- komu Facebook.“ Farðu heim, útlendingur Hefur það aukist í Frakklandi undan- farið að útlendingar séu litnir horn- auga? „Já. Ég hef til dæmis aldrei upp- lifað það fyrr en á undanförnum árum að fá það framan í mig að ég eigi bara að koma mér heim til mín. Það er þó ekkert bundið við Frakkland, ég heyrði af Frakka sem er búinn að búa á Íslandi í fjörutíu eða fimmtíu ár og allir dáðust alltaf að fyrir að tala íslensku. Hann upplifir það núna að þegar fólk heyrir hann að talar með hreim þá eru við- brögðin: hvað ert þú að gera hér, útlend- ingur? Farðu heim! Þetta er að gerast alls staðar í hinum vestræna heimi, útlendingahatrið er á hraðri uppleið, sem er það furðulegasta sem ég veit. Allir hugsandi Frakkar halda því á lofti að Frakkland væri ekki það sem það er í dag ef ekki hefðu flutt þangað útlend- ingar og mér finnst að Íslendingar ættu sérstaklega að fagna því að erlent fólk vilji flytja hingað. Það verður að vinna á móti þessari skelfilegu þjóðernishyggju alls staðar.“ Kristín segir þó ennþá gott að vera Íslendingur í útlöndum og að Frakkar beri ómælda virðingu fyrir því hvernig við höfum spjarað okkur eftir hrun. „Þeim finnst við vera rosa hetjur sem sögðu bankakerfinu stríð á hendur. Ég bara skil ekki hvaðan sú hugmynd er komin, örugglega frá Ólafi Ragnari. Maður er að tala við svakalega róttækl- inga þarna sem vilja ekki heyra minnst á það að veruleikinn sé annar. Ég hef margoft sagt við franska blaðamenn að þetta sé ekki satt, en þeir segja bara: víst er þetta rétt þú bara skilur þetta ekki, og skrifa svo sömu þvæluna aftur og aftur. Það er líka stór plús í augum Frakka að þeir eru sannfærðir um að við látum ekki Ameríkana vaða yfir okkur, halda að við höfum rekið herinn burt og bara hlusta ekki á neitt annað.“ Sussar á tengdamömmu Hver er munurinn á því að vera íslensk kona í fullri vinnu heima á Íslandi eða frílansandi frönsk kona í úthverfi Parísar? „Ég hef komist að því að marg- ir hafa háar hugmyndir um að ég lífi einhverju rosalega frjálslegu bóhema- lífi en mér líður alltaf eins og ég sé óskaplega venjuleg húsmóðir að kaupa í matinn og skutla krökkunum mín- um. Auðvitað er ég oft að gera margt Framhald á næstu opnu. Lj ós m yn d/ A nt on B ri nk 14 viðtal Helgin 24.-26. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.