Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 8

Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 8
Keppa tíu tslendingar á Holmenkollen í vetur? Eftir rúmt ár eiga sjöttu Vetrar- Ólympíuleikirnir að fara fram í Noregi og munu íslenzkir skíða- menn taka þátt í þeim. Einu sinni áður hafa þeir verið þátttakendur í vetrarleikunum, eða 1948 í Sviss, og var það eiginlega prófsteinn á getu íslenzkra skíðamanna. Undirbúningur að þeim leikum var af okkar hálfu fremur lítill og árangurinn eftir því. En eitt hafðist þó upp úr því, — reynsla, sem ekki var áður fyrir hendi. Þessa reynslu verðum við að not- færa okkur nú, ekki sízt þar sem a. m. k. tveir af keppendunum á Sviss-leikunum verða sennilega þátttakendur næsta ár. Spurningin er því sú, hvað gera þarf til þess að öllum kröfum verði fullnægt, hvað þjálfun skíða- mannanna snertir. Erlendir þjálfarar. Staðreynd er það, að enn erum við svo langt á eftir, að nauðsyn- legt er að nota tilsögn erlendra kennara í öllum greinum. Hin síð- ari ár hafa verið hér úrvals-þjálf- arar frá Svíþjóð og Noregi, og er gerður góður rómur að árangri þeim, sem af kennslu þeirra leiddi. Enn fremur hafa nokkrir skíða- menn farið utan til náms og þjálf- unar. Innan skamms er svo væntanleg- ur hingað norskur göngukennari, Tenman að nafni. Ekki er vitað um, að von sé á þjálfurum í svigi Jónas Ásgeirsson og stökki, sem væri þó enn nauð- synlegra, og verður að kippa því í lag hið allra bráðasta, því góð þjálfun í vetur er höfuðskilyrði fyrir góðri frammistöðu næsta vetur. IVIeiri reynsla. Burtséð frá þjálfuninni, er ekk- ert jafn dýrmætt og að vera þaul- kunnugur brautum þeim, sem keppt verður í á leikunum. Þar sem stutt er til þeirra, er ekkert sjálfsagðara og heppilegra en að senda væntanlega keppendur út til Noregs í vetur, t. d. á Holmen- kollenmötið, og gefa þeim kost á að kynna sér allar aðstæður og venjast brautunum. Tíu manna hópur er lágmarkið og væri ekki 4 IÞRÖTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.