Allt um íþróttir - 01.01.1951, Síða 28
en í 200 m. verða Hörður og Hauk-
ur skæðastir. I spretthlaupunum
eru mörg góð efni í uppsiglingu,
en munu varla reynast áðurtöld-
um hlaupurum skeinuhættir næsta
sumar.
Fyrir einum áratug voru milli-
vegalengdahlaup á svipuðu stigi
og þolhlaupin í dag. Kjartan Jó-
hannsson og Óskar Jónsson voru
okkar fyrstu millivegalengda-
hlauparar, sem reglulega gaman
var að horfa á og þorðu að hlaupa.
Það var mikill skaði fyrir okkur
að missa Kjartan, því að hann gat
hlaupið 800 á 1:51—1:52 mín. í
fyrra hætti Óskar líka á bezta
skeiði eða löngu fyrir þann aldur,
sem millivegalengdahlauparar ná
sínum bezta árangri. Þeir Pétur
og Magnús voru strax í hittið-
fyrra orðnir góðir á íslenzkan
mælikvarða, en í fyrra voru þeir
það góðir, að Danir, sem hingað
til hafa alltaf átt góða millivega-
lengdahlaupara, áttu fullt í fangi
með þá og t. d. í 800 m. í lands-
keppninni var það Dani, sem rak
lestina. Því miður eru Magnús og
Pétur báðir á förum eða famir til
útlanda, annar til náms, en hinn í
atvinnu, svo að útlitið er allt ann-
að en gott fyrir landskeppnina í
Osló, nema Guðmundur fari upp
á 800 m. Við skulum vona, að
Eggert Sigurlásson, Akureyring-
arnir og ungir og efnilegir Reyk-
víkingar æfi vel og skynsamlega
í vetur, þá munum við fá marga
undir 2 mín. á 800 m. og 4:10.0 á
1500 m.
Um þolhlaupin er lítið annað að
24
segja en það, að árangurinn er lé-
legur. Eini ljósi punkturinn er 10
km. hlaup Viktor Múnchs, en það
sýnir bezt, hvað hægt er, ef vilji
og áhugi er fyrir hendi.
Til skamms tíma var grinda-
hlaup ekkert æft hér á landi,
spretthlauparar og stökkvarar
tóku þátt í þessari grein upp á
grín. Núna eigum við aftur á móti
ágæta grindahlaupara á 110 m. og
einn á Evrópumælikvarða. Ingi er
efnilegur, en vantar tilfinnanlega
hraða; hann ætti að geta orðið
góður á 400 m. og hans takmark
næsta sumar á að vera 54 til 55
sek. Rúnar ætti að halda sig við
grindahlaupið, það er hans fram-
tíðargrein.
Að svo mæltu skulum við leyfa
tölunum að tala:
Pétur Einarsson, IR
H 1 a u p :
100 m.: Ásmundur Bjarnason, KR
10.6, Finnbjörn Þorvaldsson, IR 10.7,
Hörður Haraldsson, Á 10.7, Guðmund-
ur Lárusson, Á 10.7, Haukur Clausen,
IR 10.7, örn Clausen, IR 10.8.
200 m.: Haukur Clausen, IR 21.3,
Hörður Haraldsson, Á 21.5, Ásmundur
Bjarnason, KR 21.7, Guðmundur Lár-
usson, Á 21.8, Finnbjörn Þorvaldsson,
IR 21.8, Trausti Eyjólfsosn, KR 22.8.
IÞRÓTTIR