Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 37

Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 37
hann annar Daninn, sem fer sem atvinnumaður til Frakklands í des. Fyrir hjá Le Havre er fyrrv. landsliðsmiðframherji Dana, Kaj Christiansen, sem lék hér í Rvík 1946. Eftir misheppnaða ráðningu 3ja norskra leikmanna, voru Norð- menn farnir að vona, að atvinnu- liðin mundi ekki leita til þeirra í bráð, en nú nýlega hafa lands- liðsmennimir Torger Torgerssen (Viking) og Willy Andresen (Sarpsborg) horfið til Parísar, til að leika a. m. k. fyrst um sinn sem áhugamenn með Stade Franeaise, og sænski bakvörðurinn Lennart Samuelsson leikur með Nice sem áhugamaður. Ekkert er sennilegra en að þetta sé reynslutími, undan- fari atvinnuboða, er komi síðar, ef þeir standast prófið. Eftir 15. umferð er Racing Club komið niður í 10. sæti, en efst er Le Havre, sem vann sig upp úr n. deild í vor, með 19 st. í 2. sæti er Strassbourg með sama stiga- fjölda en lakara markahlutfall. Hollendingar léku landsleik við Frakka 10. des. í París, og lyktaði honum með sigri Frakka, 5:2. Vestur-Þýzkaland. Vestur-þýzka ríkið hóf innreið sína í alþjóða- knattspymu síðast í nóv. með landsleik gegn Sviss í Stuttgart. Lauk honum með sigri Þjóðverja, 1:0, og var markið skor- að úr vítaspyrnu af v.bakv. Bmd- enski. Hellirigning var meðan leik- urinn fór fram, engu að síður voru áhorfendapallamir troðfullir (105 þúsund manns). Vömin var betri helmingur þýzka liðsins, og sama var um svissneska liðið að segja. Mátti heita að naumast væri skot- ið til marks í öllum leiknum fyr- ir utan þessa einu vítaspyrnu. Tyrkland. Tyrkir sigmðu nýlega Egypta í landsleik með 3:1. Sænska liðið Elfsborg var í nóv- ember á ferð um Tyrkland og tap- aði tvisvar fyrir tyrknesku meist- urunum, Besiktas (3:2 og 2:1), enn fremur fyrir landsliðinu, 2:1. Spánn. Barátta um efsta sæt- ið í 1. deild fer harðn- andi. Valladolid hefur vegna 3 tapleikjá orðið að hleypa Sevilla upp fyrir sig, og eftir 14. umferð hefur það 21 stig. Valla- dolid og Atletico Madrid koma á eftir með 19 stig. Með Atletico leikur negrinn frægi, „svarta perl- an“ Ben Barek. Danmörk. Danir og Svíar háðu fyrir skemmstu lands- keppni í handknattleik, og fóm leikar þannig, að Svíar sigruðu með 17:9. Enn einn danskur knattspymu- maður hefur gengið atvinnu- mennskunni á höpd. Miðframherji AGF og landsliðsins, Erik K. Jen- sen, hefur gert samning við franska 1. deildar-liðið Lille fyrir 90.000 IÞRÓTTIR 33

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.