Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 26

Allt um íþróttir - 01.01.1951, Blaðsíða 26
Veðbanki Jof í byrjun desember gerðust þau lofsverðu tíðindi, að hér í bæ var haldinn stofnfundur íþróttasam- bands framhaldsskólanna. í síð- asta hefti var nokkuð vikið að því ófremdarástandi, sem ríkt hefur, þar eð engin raunveruleg skóla- mót hafa farið fram nema í frjáls- íþróttum. Ár og ár hafa allir skól- amir haft rétt til þátttöku í mót- um S.B.S., en of oft hefur það viljað til, að suma vantaði, þar eð skilyrðin voru ekki uppfyllt. Langt er síðan fór að brydda á óánægju með þetta fyrirkomulag, það er t. d. tæplega hægt að hugsa sér skóla- mót í handknattleik án þátttöku Menntaskólans eða Háskólans, en slíkt henti þó 1946. Að þessu hlaut að reka fyrr eða síðar, og er þessi skipting S.B.S. aðeins eðlileg þró- un. Allt um íþróttir vill í þessu sambandi óska hinu nýstofnaða íþróttasambandi og S.B.S. gæfu og gengis hvoru á sínu sviði fram- vegis. sól og blíðu, það er að verja tóm- stundunum á heilbrigðan og skemmtilegan hátt. Ásgeir Eyjólfsson. Undanfarið hafa dagblöðin gert að umtalsefni fjáröflunaraðferð íþróttafélaganna og gagnrýnt harðlega, að þau skuli þurfa að sækja um vínveitingaleyfi, til þess að geta haldið almenna dansleiki í nokkrum af samkomuhúsunum í Reykjavík. Hér skal ekkert um þetta rætt, en aðeins minnt á, að íþróttahreyf- ingin í heild líður vegna f járskorts, og er því engin furða þó að sú aðferð sé notuð að efna til al- mennra dansleikja, sem venjulega gefa töluvert í aðra hönd og því mikill styrkur févana en f járfrekri starfsemi. Margsinnis hefur verið bent á þá leið að stofnsetja veðbanka, er íþróttahreyfingin gæti fleytt sér á, en vitað er að slíkur banki mundi afla nægs fjár og auðfengins og létta þar með miklu af forystu- mönnunum, sem þá fyrst gætu helgað sig íþróttunum óskiptir. Ef íþróttanefnd ríkisins sér sig ekki um hönd á næstunni, verður svo að teljast, að hún hafi engan áhuga á velfamaði íslenzkra íþróttamála. EM-meistarinn í 1500 m., Willy Slijkhuis og Ingvar Bengtsson eru byrjaðir að keppa í Nýja Sjálandi. Bengtsson vann míluhlaup á 4:16.8, en Slijkhuis tapaði með örlitlum mun fyrir Nýsjálendingnum Ge- orge Hoskins í 2 mílum 3218 m.). Tími Hoskins var 9:20.8 mín. 22 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.