Allt um íþróttir - 01.01.1951, Page 30

Allt um íþróttir - 01.01.1951, Page 30
Einvígi um heimsmeistaratitilinn í skák í þessum mánuði hefst í Moskva einvígi um heimsmeistaratignina í skák, milli Rússanna Mikhail Bot- vinnik, sem verið hefur heims- meistari síðan 1948, og Davids Bronstein, sem skorað hefur á hann. Þetta er fyrsta einvígið, sem háð er síðan Alþjóðaskáksamband- ið tók völdin yfir heimsmeistara- titlinum í sínar hendur við dauða Alekhines 1946. Fyrir þann tíma var heimsmeistaranum í sjálfsvald sett við hvern hann tefldi um tit- ilinn, og gefur því að skilja, að ekki hafa alltaf sterkustu áskor- endurnir fengið náð fyrir þeirra augum. Má í því sambandi geta hinnar persónulegu óvildar, sem var á milli Alekhines og Capa- blanca og kom í veg fyrir að Capa- blanca fengi tækifæri til að reyna að ná titlinum aftur af Alekhine, eftir missi hans 1927. Var hann þó óvéfengjanlega annar sterkasti skákmaður heimsins næstu árin. Eftir dauða Alekhines var und- irbúið ákveðið fyrirkomulag á vali heimsmeistarans og hvemig áskorandinn yrði valinn úr sterk- ustu skákmönnum heimsins. Voru 6 skákmeistarar valdir úr til að tefla fjögurra umferða mót um tit- ilinn, þeir Botvinnik, Euwe, Fine, Keres, Reshevsky og Smyslov, en er Fine hætti við þátttöku, var bætt við einni umferð. Botvinnik bar glæsilega sigur úr býtum. Jafnframt var hafinn undirbún- ingur að vali áskorandans. Veröld- 26 inni var skipt niður í svæði, sem hvert um sig mátti senda ákveð- inn fjölda fulltrúa eftir styrkleika íþróttarinnar á hverju svæði. Skyldu þeir koma saman á svo- nefndu Interzonal-móti, og fengju síðan 5 þeir efstu að taka þátt í svonefndu Kandídata-móti, ásamt þeim 5, sem féllu úr heimsmeist- aramótinu. Sá, er sigraöi í því móti, hefði með því öðlazt rétt til að skora á heimsmeistarann. Inter- zonalmótið fór fram 1948 á bað- stað við Stokkhólm og bar Bron- stein þar sigur úr býtum. í Kandí- datamótinu, sem fram fór í Búda- pest í febr. síðastl. varð Bronstein jafn landa sínum, Igor Boleslavsky að vinningum, og urðu þeir að heyja einvígi um réttinn til að skora á Botvinnik. Eftir 14 skák- ir hafði Bronstein vinning yfir. Botvinnik er fæddur í ágúst 1911 í Pétursborg og tók ungur að tefla í taflfélagi í borginni og að- eins 16 ára vakti hann alheims- athygli, er hann varð 5. í skák- meistaramóti Sovétríkjanna og að- eins tvítugur að aldri varð hann skákmeistari Sovétríkjanna, og þeim titli hefur hann haldið síðan. Bronstein er fæddur 1924 í Kiev, og eins og Botvinnik tók hann ungur að taka þátt í opinberu skáklífi. Hann varð 3. á skákmeist- aramóti Ráðstjórnarríkjanna 1945 og hefur síðan verið einn af þeirra fremstu skákmeisturum. Hér birtist einhver bezta skák- IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.