Allt um íþróttir - 01.04.1952, Síða 5
Innganga Islendinga á Ölympíuleikana 1948. Finnbjörn Þorvaldsson fánaberi.
gegnum fyrsta hlaup, er frammi-
staðan sómasamleg. Ef við lítum
á árangur spretthlaupara okkar
frá í fyrra, er líklegt að boðhlaups-
sveitin samanstandi af Finnbimi,
Hauk, Ásmundi og Herði, vara-
maður Guðmundur Lárusson. En
ennþá einu sinni skal á það bent,
að ef þessi boðhlaupssveit á að ná
árangri, þarf að æfa skiptingar
helzt fimm daga í viku hverri frá
opnun vallarins. Guðmundur Lár-
usson heldur uppi heiðri Islands á
millivegalengdunum og mun gera
það með sóma. Sérstaklega eru
tengdar vonir við hann í 800 m. og
ekki þætti mér ósennilegt, að hann
kæmi mest á óvart af íslenzku
keppendunum. Litlar líkur eru til
þess að sendir verði keppendur í
1500 m. og þar fyrir ofan. Eitt er
víst, að Kristján hleypur varla
5000 m. á 15:15.0 hér á vellinum,
um það sér veðráttan. Aftur á móti
er nærri því öruggt, að hann mundi
ná þeim árangri erlendis í harðri
keppni, því að hann er í mjög góðri
æfingu, eins og yfirburðir hans í
Víðavangshlaupinu sýndu. Ingi
Þorsteinsson hljóp 110 m. grind
á 15.0 sek. í fyrra eða sama tíma
og lágmarkið og ætti hann því að
hafa góða möguleika
I köstum og stökkum fer fram
undankeppni; þarf að ná ákveðnu
lágmarksafreki í þeim greinum, til
þess að komast í aðalkeppnina. Að
komast yfir þann þröskuld þykir
ÍÞRÓTTIR
77