Allt um íþróttir - 01.04.1952, Blaðsíða 13
sé búinn að vera einn af okkar
fremstu frjálsíþróttamönnum í tíu
ár, keppti hann hvorki í London
1948 né í Brússel 1950. Aftur á
móti var hann með í Osló 1946 og
stóð sig ágætlega eða varð sjöundi
með 1.90. Nú er sagt, að Skúli æfi
mjög vel, með það fyrir augum að
komast til Helsingfors. Það er eng-
inn vafi á því, að honum tekst það
og einnig að komast í aðalkeppn-
ina.
í langstökkinu eru yfirburðir
Bandaríkjamanna svipaðir og í há-
stökkinu, þeir eiga sex beztu menn
í heiminum í fyrra, en þeir stukku
frá 7.51 til 7.95 m., í sjöunda sæti
er Hollendingurinn Visser með
7.48 m. Líklegt er, að keppnin um
gullið standi milli Andy Stanfield
(7.85 1951) og George Brown (7.95
1951). Þeir Torfi og Örn munu
víst ekki leggja mikla áherzlu á
langstökkið í sumar og því ekki
líklegt, að nokkur verði sendur í
þá grein héðan.
Það er einkennilegt með svo
mikla stökkvara sem Bandaríkja-
menn eru, að þeir skuli enga þrí-
stökkvara eiga, en meðal fimmtíu
hinna beztu s.l. ár eiga þeir engan.
Þar hafa Japanar og Brasilíumenn
forystuna. Hinn nýbakaði heims-
methafi, A. F. da Silva, er þar efst-
ur á blaði með sína 16.01 m., en
næstur er landi hans H. C. da Silva
með 15.99. Heimsmethafinn ætti
að sigra með nafna sinn í öðru
sæti, en Japanarnir berjast við
Hiltunen, Finnlandi og Rússann
Tscherbakov um bronsið. Ekki er
útilokað, að Kristleifur og Kári
IÞRÓTTIR
verði sendir til Helsingfors, en þá
þurfa þeir helzt að stökkva 14.50
til 14.70.
Loksins kemur röðin að stang-
arstökkinu, en við það voru og eru
tengdar miklar vonir hjá okkur.
Torfi hefur að vísu misst úr mik-
inn æfingartíma, en þar sem hann
má keppa aftur, er ekki öll von
úti enn, því að sjaldan bregst
hann vonum okkar. Bandaríkja-
mennirnir Don Laz og Bob Rich-
ards berjast um gullið, og Don
Cooper, sem stökk 4.57 í fyrra,
verður að líkindum þriðji, en svo
koma Torfi, Denisenko og Lund-
berg?
Arne Áhman Ólympíumeistari
í þrístökki.
Frakkinn Gilbert Bozon, sem er
aðeins 17 ára, setti nýskeð nýtt
Evrópumet í 100 m. baksundi á
1:03.6 mín., og gera Frakkar sér
miklar vonir um hann á Ólympíu-
leikjunum.
85