Allt um íþróttir - 01.04.1952, Side 31
Innanhússmót
á Siglufirði.
Innanhússmót F.Í.S. í atrennu-
lausum stökkum var háð hér á
Siglufirði 14. apríl í leikfimissal
barnaskólans. — Keppendur voru
skráðir 10, en 7 mættu til leiks frá
F.Í.S. og K.S. Leikstjóri var Jó-
hannes Jónsson íþróttakennari. —
Sett voru tvö Siglufjarðarmet, í
langstökki og þrístökki.
Annars urðu úrslit þessi:
Hástökk:
Jóhannes Þ. Egilsson, FlS .... 1.46%
Guðlaugur Hinriksson, FlS . .. 1.28
Bjarni Ásgeirsson, KS......... 1.23%
Keppendur 3.
Langstökk:
Bjarni Ásgeirsson, KS ......... 3.08
Jóhannes Þ. Egilsson, FlS...... 2.91
Arthúr Sumarliðason, FlS ...... 2.84
Keppendur 7. Árangur Bjarna var
‘nýtt Siglufjarðarmet.
Þrístökk:
Bjarni Ásgeirsson, KS .......... 8.93
Jóhannes Þ. Egilsson, FlS....... 8.67
Arthúr Sumarliðason, FlS ....... 8.16
Keppendur 7. Árangur Bjarna nýtt
Siglufjarðarmet.
Artliúr.
Á innanhússmóti í Montreal
vann Kanadamaðurinn Carrol þá
Herb McKenley og Mal Whitfield
í 500 yds á 59.2.
U.S.A.
Glæsilegur árangur
hefur náðst í mörgum
greinum frjálsíþrótta á
mótum undanfarið: Kringlukast:
Gordien 55.14, Doyle 51.05, Spjót-
kast: Seymour 65.49, 120 yds gr.:
Dixon 14.4, Stangarstökk: Rowan
4.35. — Á móti um svipað leyti
kastaði nýr maður, Sim Iness að
nafni, kringlunni 55.60. Þessi ,Sim‘
er meira en 2 m. á hæð, 23 ára,
og stundar nám við Southem Cali-
forna-háskólann. í fyrra kastaði
hann lengst 49.28.
Noregur.
Fredrik Eckhoff er
nú við nám í Bandaríkj-
unum og keppti nýlega
á móti þar í 1500 m. Hann varð
2. á 3:55.4.
Willy Hult setti fyrir skömmu
nýtt norskt met í 200 m. bringu-
sundi; hann synti á 2:47.0.
1. umferð í norsku deildakeppn-
inni þann 4. maí fór þannig:
A-deild:
Árstad—Odd 1:0
Válerengen—Asker 5:0
Viking—Brann 2:0
Örn—Skeid 1:6
B-deild:
Lyn—Kvikk 3:1
IÞRÓTTIR
103