Allt um íþróttir - 01.04.1952, Qupperneq 34
borg), sem lék sinn fyrsta lands-
leik, á síðustu sekúndunum, því að
strax á eftir blés dómarinn af.
Þetta var æfingarleikur fyrir Sví-
ana, sem hafa þegar hafið undir-
búning vals á liðinu, sem á að verja
ólympíutitilinn í Helsingfors.
Eins og lesendur ef til vill muna
frá október og nóvemberheftunum,
þá börðust Norrköping og Malmö
um forystuna í Allsvenskan. Eftir
4 fyrstu umferðirnar í vor hefur
Norrköping haft mun betur og
meðal annars sigrað Malmö þann
27. apríl s.l. 2-1. Gais er einnig í
góðum ham, hefur unnið þrjá leiki
í vor af fjórum og er nú í 3. sæti.
í síðustu umferð, 4. maí, þótti það
helzt tíðindum sæta, að Norrköp-
ing tapaði fyrir Ráá og Gais heima
fyrir Hálsingborg. En leikirnir þá
fóru þannig:
Degerfors—Djurgárden 4:2
Elfsborg—örebro 2:5
Gais—Hálsingborg 1:2
Malmö—Göteborg 2:1
Ráá—Norrköping 3:2
Átvidaberg—Jönköping 2:1
Staðan er nú þessi:
Norrköping 16 11 4 1 36-15 26
Malmö 16 10 2 4 40-16 22
Gais 16 8 4 4 31-20 20
Göteborg 16 8 3 5 35-25 19
Djurgárden 16 8 2 6 29-30 18
Örebro 16 8 1 7 34-40 17
Hálsingborg 16 6 4 6 25-20 16
Degerfors 16 5 4 7 21-21 14
Jönköping 16 6 1 9 27-30 13
Ráá 16 4 3 9 20-41 11
Elfsborg 16 3 3 10 20-37 9
Átvidaberg 16 1 510 18-42 7
106
Finnland.
Gengið hefur verið frá
dagskrá knattspyrnu-
keppninnar á Ólympíu-
leikunum næsta sumar. Gera Finn-
ar ráð fyrir 16—20 liðum, en í
London 1948 tóku 18 lið þátt. í
fyrstu var fyrirhugað að takmarka
fjöldann við 16 og láta eitthvað
af leikjunum fara fram í Svíþjóð,
en við það hefur nú verið hætt.
og fara allir kappleikir fram í
Finnlandi. Fyrsti leikurinn fer
fram á Ólympíuvellinum setning-
ardaginn og verður finnska liðið
annar aðilinn. Næstu leikir fyrstu
umferðanna verða leiknir í Kotka,
Ábo, Lahti og Tammerfors, og ef
til vill í Vasa og Kuopio, en í öll-
um þessum bæjum eru vellir með
áhorfendasvæðum fyrir 20 þúsund
áhorfendur. Báðir undanúrslita-
leikirnir fara fram í Helsingfors
28. og 29. júlí. Um 3. sætið verð-
ur keppt 1. ágúst, en sjálfur úr-
slitaleikurinn fer fram daginn eftir.
Ungverjaland.
Nemeth kastaði sleggj-
unni 54.20 á fyrsta móti
ársins. Virðist hann ætla
að verða harður í sumar.
Don Finley, grindahlauparinn
brezki, sem hér var á KR-mótinu
fyrir nokkrum árum og er nú er
43 ára gamall, ætlar að æfa í sum-
ar, með þátttöku í Ólympíuleik-
unum fyrir augum.
IÞRÓTTIR