Fréttatíminn - 07.08.2015, Side 24
dragist framundir jól. Okkur langar
að gera þetta almennilega og erum
svona að feta okkur áfram í plötu-
bransanum, sem við kunnum auð-
vitað ekkert á. Stefnan er að gefa út
fimm laga smáskífu og það vonandi
bara gengur upp.“
Krosssaumur á skó
Jóhanna lauk stúdentsprófi í vor en
segist ekki hafa tekið neina ákvörð-
un um í hvaða nám hún fer í fram-
haldinu. Hún er þó nokkuð viss um
að það muni tengjast list á einhvern
hátt því auk tónlistarinnar hefur
hún mikinn áhuga á leiklist og var
oddviti leikfélags MH á síðasta ári
sínu þar. „Núna beinast öll spjót að
einhverju listrænu en það breytist
á tveggja vikna fresti. Ég hlustaði
til dæmis á ræðu Sóleyjar Tómas-
dóttur á Druslugöngunni og ákvað á
staðnum að fara út í pólitík, en ég veit
nú ekki hvort það verður ofan á. Ég
hef alltof mikinn áhuga á öllu til að
geta einbeitt mér að einhverju einu,
en kannski róast maður eitthvað á
næstu árum og getur ákveðið sig.
Þangað til ætla ég bara að vinna og
halda áfram í tónlistinni. Ég er líka
nýbúin að leigja mér vinnustofu og
er byrjuð að föndra við að hanna skó.
Tek gamla skó sem eru vel nothæfir
en fólk búið að fá leiða á og pimpa þá
upp, krosssaumaði til dæmis áklæði
og festi á eina, litaði aðra bleika og
setti á þá helling af demöntum. Ég
veit ekkert hvort einhver vill nota
svona skó, en þeir eru þá allavega
flott skraut uppi í hillu.“
Spurð hvað af þeim ólíku aðstæð-
um sem hún ólst upp við hafi haft
mest áhrif á hana dæsir Jóhanna
Rakel og í fyrsta sinn í viðtalinu kem-
ur á hana smá hik. „Ég held það sé
bara blanda af því öllu. Ég man lítið
eftir árunum í Bandaríkjunum en
hef komið þangað nokkrum sinnum
síðan og held ekki að það samfélag
henti mér, ég er að reyna að komast
frá þessari neysluhyggju, vera um-
hverfisvæn og reyna að hafa áhrif á
að breyta heiminum í rétta átt. Sem
þenkjandi fullorðna manneskju hafði
dvölin í Rússlandi mest áhrif á mig,
þar fékk maður svo mikla andstöðu
við skoðanir sínar að maður varð
að læra að berjast fyrir þeim, vera
með allar staðreyndir á hreinu og
standa fyrir sínu. Auðvitað var líka
mikil reynsla að búa ein í Rússlandi
og þurfa að díla við það að rifja upp
tungumál, læra að kaupa í matinn og
sjá um sig sjálf. Þar er neysluhyggj-
an líka allsráðandi sem mér fannst
ekki aðlaðandi, allt snýst um að eiga
nýjasta símann og fínustu fötin og ég
komst nær því að vita hvað mig lang-
ar ekki að lífið snúist um. Mér finnst
samt ekkert land eða einhver menn-
ing verri en önnur, maður þarf bara
að læra á hana. Ég þakka mikið fyrir
það að hafa alist upp á svona mörgum
stöðum, það kenndi manni að takast á
við alls konar aðstæður og vera ekki
hræddur við að reyna eitthvað nýtt.“
Önnur spurning sem setur Jó-
hönnu aðeins út af laginu er hvernig
hún sjái líf sitt fyrir sér eftir fimm ár.
„Úff, ég veit það ekki. Vonandi verð
ég komin í háskólanám, eða allavega
búin að finna einhvern farveg,
kannski í listnámi, kannski í pólitík,
kannski bílaframleiðandi, hver veit,
það er allt opið. Vonandi held ég bara
áfram á þeirri braut að hugsa um
umhverfið, hugsa um aðra og vera
upptekin. Ég held að það eina sem
ég geti svarað fyrir víst um það hvar
ég verði eftir fimm ár sé að ég verði
örugglega upptekin við að gera það
sem mér finnst skemmtilegast þá.
Það finnst mér alveg nauðsynlegt.“
Friðrika Benónýsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
Vonandi
verð ég
komin
í há-
skólanám
eftir fimm
ár, eða
allavega
búin að
finna
einhvern
farveg,
kannski í
listnámi,
kannski
í pólitík,
kannski
bílafram-
leiðandi,
hver veit.
24 viðtal Helgin 7.-9. ágúst 2015
Sjónmælingar
í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio
í Smáralind
sími 5288500
Optical Studio
í Keflavík
sími 4213811
Optical Studio
í Leifsstöð
sími 4250500
smáralind • leifsstöð • keflavík