Fréttatíminn - 07.08.2015, Blaðsíða 28
Þetta starf
er ótrúlega
gefandi og
enginn vafi
á því að
þetta er það
skemmti-
legasta sem
ég geri.
Leiðsögumaður
á níræðisaldri
Valur Pálsson er 82 ára leið-
sögumaður sem ákvað að fara
í Leiðsöguskóla Íslands þegar
hann komst á eftirlaunaaldur.
Honum finnst starfið ákaflega
gefandi og veit fátt skemmti-
legra en að kynna landið fyrir
ferðamönnum. Hann segir
töluvert um að fólk á hans
aldri starfi sem leiðsögumenn
og hvetur fólk sem á þennan
draum til að láta hann rætast.
M ig var búið að dreyma um þetta lengi og lét draum-inn rætast þegar ég fór á
eftirlaun,“ segir Valur Pálsson, 82
ára leiðsögumaður sem skellti sér í
Leiðsöguskóla Íslands þegar hann
komst á eftirlaunaaldur. Valur er
sjálfstætt starfandi, hefur í tólf ár
farið í ferðir með fyrirtækinu Guð-
mundi Jónassyni – GJ Travel – en
síðustu þrjú ár hefur hann aðallega
farið í hringferðir á sumrin. Valur
nam á sínum tíma viðskiptafræði
við Columbia háskólann í New York
og er því vel að sér í enskri tungu en
hann fer aðeins í ferðir með ensku-
mælandi ferðalanga.
Gefandi starf
Valur hefur alla tíð ferðast mikið
um landið og er mikið náttúrubarn.
Hann er afar heilsuhraustur og segist þakka það
skíðaiðkun sinni í gegnum árin. „Ég starfaði
í markaðsdeild Eimskips og var lengi búinn að
hugsa um að fara í Leiðsöguskólann. Ég ákvað síð-
an að bíða með það þangað til ég færi á eftirlaun,“
segir Valur en honum finnst töluvert algengt nú-
orðið karlar og konur gerist sjálfstætt starfandi
leiðsögumenn þegar fólkið hættir störfum á hin-
um hefðbundna vinnumarkaði. „Það er talsvert af
fólki á eftirlaunum í þessu starfi. Meðan heilsan
er góð er þetta ekki erfitt starf. Það þarf auðvitað
að þekkja landið og fólk á mínum aldri var alið upp
við að kynnast landinu sínu. Leiðsögumenn þurfa
líka að vera skipulagðir, geta sagt frá á lifandi hátt
og síðan skiptir tungumálakunnáttan gríðarlegu
máli,“ segir hann.
Hefðbundinn dagur leiðsögumanns með hóp í
hringferð um landið hefst við brottför um klukkan
átta að morgni. „Við reynum að keyra aldrei lengra
en tvo tíma í einu. Það er reglulega stoppað þann-
ig að fólk geti skoðað sig um. Yfirleitt erum við
komin á hótel um klukkan fimm eða sex, þá er
það bara kvöldmatur og síðan fer fólk að undir-
búa sig fyrir næsta dag,“ segir Valur. „Það sem
kemur ferðamönnum hvað mest á óvart er hvað
landið er grænt og hvað það eru stór óbyggð svæði.
Þetta starf er ótrúlega gefandi og enginn vafi á því
að þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Það
er gaman og gefandi að sýna landið og vera með
skemmtilegu fólki sem kemur hingað gagngert til
að kynnast landinu okkar,“ segir hann.
Leitaði upprunans
Valur á margar skemmtilegar minningar úr ferð-
unum og tekur sem dæmi ferð með hóp af Vest-
ur-Íslendingum þar sem einn ferðalanganna var
að leita að uppruna sínum. „Hann hélt í fyrstu að
hann væri frá Akureyri en við fengum aðstoð frá
Vesturfarasetri og komumst að því að hann væri
frá Skagafirði. Honum fannst mjög gaman að fá
þessar upplýsingar. Seinna í ferðinni vorum við á
göngu um Þingvelli þegar þessi sami maður varð
viðskila við hópinn. Sonarsonur hans var í ferðinni,
fór að leita að afa sínum og fann hann fljótt. Sá kom
til baka mjög skömmustulegur, sagðist vera gamall
kennari sem hefði alla tíð skammast í nemendum
fyrir að hlusta ekki og fylgjast ekki nógu vel með
en nú hefði hann sjálfur ekki fylgst nógu vel með,“
segir Valur. Aldrei á þessum tólf árum hefur Valur
lent í alvarlegri uppákomu. „Ég hef aldrei lent í
neinum vandræðum. Fólk er bara mjög þakklátt og
þetta er ekkert nema ánægjan fyrir mig.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Valur Pálsson lét
gamlan draum rætast
þegar hann komst á
eftirlaunaaldur og
gerðist leiðsögu-
maður. Hann er 82 ára
í dag og lætur engan
bilbug á sér finna.
Mynd/Hari
28 viðtal Helgin 7.-9. ágúst 2015
MEXICO,
GUATEMALA &
BELIZE
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
4. - 19. OKTÓBER
Verð kr. 568.320.-
Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna
menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar
menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims
og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska,
þar sem allt er innifalið.