Fréttatíminn - 07.08.2015, Síða 32
Bertolli viðbit er framleitt úr hágæða ólífuolíu.
Það er alltaf mjúkt og auðvelt að smyrja.
Í Bertolli er mjúk fita og fitusýrur sem taldar eru
heppilegri fyrir hjarta- og æðakerfi en hörð fita.
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
BERTOLLI
Af matarborði Miðjarðarhafsins
F yrir mér hefur inn-kaupakerrann breyst í hreyfanlegt lista-
verk. Ég sé í henni fegurð
sem ég sá ekki áður,“ segir
Jón Aðalsteinn Bergsveins-
son sem heldur úti Facebok-
síðunni „Innkaupakerrur
heimsins / Shopping carts
of the world“ þar sem fjöldi
fólks deilir myndum af
innkaupakerrum í hinum
ýmsu aðstæðum. Áhugi
hans á innkaupakerrum hef-
ur haft ýmsar ófyrirsjáan-
legar afleiðingar og nú eru
innkaupakerrur það fyrsta
sem fólk talar um þegar það
hittir Jón Aðalstein, jafn-
vel fólk sem hefur ekki séð
hann í lengri tíma. „Mér
finnst þetta mjög gaman
enda veit ég fátt leiðinlegra
en að tala um veðrið sem
áður var það fyrsta sem fólk
talaði,“ segir hann léttur í
bragði.
Upprisa innkaupakerrunnar
Jón Aðalsteinn Bergvins-
son, sérfræðingur á
almannatengslaskrif-
stofu Cohn & Wolfe
Íslandi, var úti að skokka
sem endranær þegar
hann sá innkaupakerru
á bílastæði Kringlunnar
í nýju ljósi. Hann tók
mynd af kerrunni og
tók síðan eina mynd á
dag sem hann deildi á
netinu. Myndirnar vöktu
kátínu margra og fólk
fór að senda Jóni Aðal-
steini sínar eigin myndir
af innkaupakerrum.
Hann opnaði því sér-
staka Facebook síðu sem
er tileinkuð myndum af
innkaupakerrum.
Ég fann að fólk var
farið að skynja inn-
kaupakerrur, þenn-
an hversdagslega
hlut, á nýjan hátt.
Jón Aðalsteinn hefur einstaklega gaman af því að fólk er hætt að tala við hann um veðrið og talar þess í stað um innkaupakerrur. Ljósmynd/Hari
Áhugamál skokkarans
Áhugi Jóns Aðalsteins kviknaði í fyrra-
vetur eftir að hann fór að taka sérstak-
lega eftir innkaupakerrum þegar hann
var úti að skokka. „Ég bý í Stóragerði
og skokkaði alltaf í World Class við
Kringluna. Þetta er um ein kílómetri
sem ég skokkaði, fór í ræktina og
skokkaði til baka. Yfirleitt fór ég með-
fram Listabraut, norðan við Kringluna
og sömu leið til baka. Í eitt skiptið
ákvað ég að fara hinum megin, hjá
Miklubraut, og ég sá innkaupakerrurn-
ar sem stóðu yfirgefnar í bílastæðahúsi
Kringlunnar í alveg nýju ljósi. Það var
snjór úti, birtan í bílastæðahúsinu var
einstaklega falleg og körfurnar hrein-
lega lýstust upp. Ég fékk þá hugmynd
að taka mynd, en síðan fór ég æ oftar
að fara þessa leið og taka mynd. Ég
tók eina mynd á dag af innkaupakerru
– hreyfði aldrei við kerrunum heldur
bara myndaði þær, skrifaði smá texta
við þær og birti á Instagram.“ Hann
skrifaði þá nokkur orð um upp-
lifun sína af augnablikinu, stundum
datt honum í hug sögubrot þar
sem innkaupakerran var aðalhlut-
verki og jafnvel var innkaupakerran
persónugerð.
Skynja þær á nýjan hátt
Sífellt fleiri fóru að skrifa athuga-
semdir við myndirnar hans, fólk
lýsti yfir kátínu og skrifaði jafnvel
eigin hugleiðingar um myndina.
Það var þá sem hann uppgötvaði
að eitthvað stórkostleg hafði átt
sér stað og opnaði Facebook-
hópinn þar sem fólk getur deilt
sínum eigin myndum hvaðanæva
úr heiminum. „Ég fann að fólk var
farið að skynja innkaupakerrur,
þennan hversdagslega hlut, á
nýjan hátt. Allir nota innkaupa-
kerrur þegar farið er í stórinn-
kaupaleiðangur. En þegar búið er
að versla inn er kerran skilin eftir.
Engin not eru af henni lengur.
Hún er gagnslaus. Þar til næsti
viðskiptavinur grípur hana. Með
þessum myndum og sögum er inn-
kaupakerrunni gefið framhaldslíf,“
segir hann.
Jón Aðalsteinn starfar sem sér-
fræðingur á almannatengslaskrif-
stofu Cohn & Wolfe Íslandi. „Ég
starfa við ráðgjöf og almanna-
tengsl, og hluti af starfinu er að
fólk upplifi ný tengsl og tilfinn-
ingar. Þetta var sannarlega ekkert
úthugsað en í þessum Facebook-
hóp hefur myndast lítið samfélag
fólks sem upplifir tilfinningar til
innkaupakerra. Ég held að það sé
merki um að það er hægt að búa til
samkennd í öllum aðstæðum með
öllum hlutum ef útgangspunktur-
inn er réttur.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Myndin af gulu kerrunni var fyrsta myndin
sem Jón Aðalsteinn tók. Þetta var um
ellefuleytið að kvöldi rétt eftir síðustu
áramót. Snjór var úti og birtan falleg.
Innkaupakerran með barnasætinu var ein
af fyrstu myndunum. Jón Aðalsteinn stillti
kerrunum ekki upp heldur tók myndir af
þeim eins og þær voru.
Mynd á blómum prýddum og grösugum
göngustíg er nýjasta myndin. Jón Aðal-
steinn rakst á hana þarna á leið í vinnuna.
„Geðveikt stuð í partíinu á laugardag.
Þessi tók sunnudaginn rólega.“ Kerran
var þarna og Jón Aðalsteinn smellti af.
32 viðtal Helgin 7.-9. ágúst 2015