Fréttatíminn - 07.08.2015, Qupperneq 39
39 bílarHelgin 29. júní-1. júlí 2012
ReynsluakstuR Peugeot 308 sW
Gæði fara aldrei úr tísku
Hitastýrð
blöndunartæki
Stílhrein og
vönduð
Umhverfisvænni
og léttari Peugeot
Nýr Peugeot 308 SW er hlaðinn tækninýjung-
um sem gera það að verkum að hann er léttari
og umhverfisvænni en áður. Þrátt fyrir að vera
ansi stór í sniðum er hann einstaklega léttur og
fyrirferðarlítill í akstri.
É g geri ráð fyrir að þú sért með bíladellu, sagði starfs-maður Bernhard þegar hann
rétti mér lyklana að splunkunýjum
Peugeot 308 SW Style, beint úr
kassanum. Ég brosti á meðan ég
hugsaði um hverju ég ætti að svara.
Það er nefnilega þannig
að vegir blaðamannsins
eru órannsakanlegir og
þegar sumarfrí standa
sem hæst er magn-
að hvað sérsvið hins
óbreytta blaðamanns
verða fjölbreytt. Í dag er
ég sem sagt bílablaða-
maður.
Peugeot 308 SW er
ekta fjölskyldubíll, svo
mikið er víst. Hann var
valinn bíll ársins í Evr-
ópu 2014 og er tákn fyr-
ir allt sem þarf að prýða
fjölskyldubíl nútímans.
Hann er einstaklega
rúmgóður og þægileg-
ur. Skottið rúmar heila 660 lítra
svo það ætti að vera lítið mál fyrir
fimm manna fjölskyldu sem þjáist
af golfdellu að fara saman í ferðalag.
Stýrið er í smærri kantinum, sem
gerir það að verkum að maður hefur
góða yfirsýn yfir mælaborðið sem
er uppfullt af alls konar upplýsing-
um. Snertiskjárinn er auk þess stór
og þægilegur í notkun og það var
lítið mál að tengja símann við bílinn.
Það sem heillar þó mest við hinn
nýja Peugeot er að hann er léttari og
umhverfisvænni en áður. Hann er
140 kg léttari en eldri útfærsla og er
fáanlegur með afkastamiklar bens-
ín- eða dísilvélar, svonefndar Blu-
eHDi vélar sem eru mun
umhverfisvænni. Co2 út-
blástur er aðeins 85g/
km og setur þar með ný
viðmið í þessum stærð-
arflokki. Þessi nýja Blu-
eHDi tækni dregur auk
þess úr losun nituroxíðs
og eyðir öllum smáögn-
um í útblæstri. Það er því
hægt að svífa um á hinum
nýja Peugot með alla fjöl-
skylduna í sátt og sam-
lyndi við umhverfið. Ég
er ekki frá því að þegar
ég skilaði bílnum í Vatna-
garða hafi ákveðin tóm-
leikatilfinning gert vart
við sig. Ég leit í kring-
um mig á alla fallegu bílana sem
mændu á mig og fylltist löngun til
að prófa þá alla. Er þetta þá þessi
bíladella sem bílasalinn minntist
á? Ég vona að minnsta kosti að ég
fái að vera bílablaðamaður það sem
eftir lifir sumars.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Peugeot
308 sW style
5 dyra
Sjálfskiptur
Vél 1.6 BlueHDi dísil
120 hestöfl
3,7 l/100 km í
blönduðum akstri
300Nm tog
CO2 útblástur 96g
Farangursrými 660
lítrar
Verð frá:
4.290.000 kr.
Peugeot 308 SW Style er er með 1.6 BlueHDi dísel vél sem er umhverfisvænni
en áður. CO2 útblástur er aðeins 85g/km og setur þar með ný viðmið í þessum
stærðarflokki. Myndir/Anton Brink
Skottið er afar rúmgott, en það rúmar 660 lítra. Með einu einföldu klikki er hægt að
leggja aftursætin niður og þá er lítið mál að sameina golf- og skíðaferðina.
SÆKTU APPIÐ
Sæktu Hreyfils appið - þannig ræður þú ferðinni!
Nú er auðvelt að panta bíl með snjallsímanum
Hreyfill hefur þróað nýtt app.
Með því er fljótlegt og einfalt að panta leigubíl.
Þú getur líka pantað bíl fram í tímann, á tilteknum tíma næsta
sólarhringinn eða lengra.
Ef þú ferðast á vegum fyrirtækis getur þú valið viðskiptareikning
og opnað aðgang.
Það eina sem þarf, er iPhone eða Android snjallsími.
Þú hleður niður Hreyfils-appi með App Store eða Google Play.
Þú pantar bíl, færð SMS skilaboð þegar bíllin er mættur á
staðinn. Þú getur fylgst með hvar bíllinn er staddur hverju sinni.
Hreyfils-appið er ókeypis.
Sæktu þér Hreyfils appið
og þú ræður ferðinni.
2
3
Þú pantar
bíl,
1
og færð SMS
skilaboð
að bíllinn
sé kominn
fylgist
með
bílnum
í appinu
Hreyfils appið
fyrir iphone og android er komið