Fréttatíminn - 07.08.2015, Side 48
48 gaypride Helgin 7.-9. ágúst 2015
www.odalsostar.is
Íslenskur Gouda-ostur hefur verið á boðstólum
á Íslandi frá árinu 1961. Í dag sér KEA Akureyri
um framleiðsluna. Fyrirmynd ostsins er hinn
frægi Gouda, frá samnefndum bæ í suðurhluta
Hollands. Gouda Sterkur er lageraður í sex
mánuði. Mjúkur, bragðmikill og þroskaður ostur
með skörpu bragði, sveppatónum, kryddkeimi
og langvarandi eftirbragði. Hentar við flest öll
tækifæri, hvort sem er á ostabakkann eða til að
setja punktinn yfir i-ið í matargerðinni.
GOUDA STERKUR
KRÖFTUGUR
... fyrsta Pride hátíðin fór fram í lok
júní árið 1970. Lesbíur og hommar
í New York, Los Angeles og San
Francisco og Chicago fylktu þá
liði á götum úti í fyrstu göngunum
sem farnar voru til að minnast
uppþotanna árið áður, helgina
27.–29. júlí í Greenwich Village
í New York. Þær óeirðir marka
tímamót í sögu hinsegin fólks um
allan hinn vestræna heim.
... regnbogafáninn var hannaður af
San Francisco-búanum Gilbert
Baker árið 1978. Litirnir áttu að
tákna samfélag samkynhneigðra
og notaði hann upphaflega
átta liti í fánann sinn: bleikan,
rauðan, appelsínugulan, gulan,
grænan, bláan, dimmfjólubláan
og fjólubláan. Hann sagði
þessa liti tákna kynverund, líf,
lækningu, sól, náttúru, list, jafn-
vægi og anda, og að þeir vísuðu
í landið handan regnbogans sem
sungið er um í Galdrakarlinum í
Oz.
... árið 1996 samþykkti Alþingi lög
um staðfesta samvist fólks af
sama kyni. Með lögunum varð
staðfest samvist jafngild hjóna-
bandi gagnkynhneigðra með
þeim undantekningum að ætt-
leiðingar voru ekki heimilar né
tæknifrjóvganir. Þá var einungis
borgaralegum vígslumanni, en
ekki kirkjulegum, heimilt að stað-
festa samvist fólks af sama kyni.
... á Íslandi héldu lesbíur og
hommar í fyrsta sinn út á götur
síðasta laugardag í júní 1993
og síðan árið eftir. Hlé varð á
þessum hátíðahöldum þar til
í júní 1999 þegar haldin var
útihátíð að viðstöddum 1500
manns á Ingólfstorgi.
... Hinsegin dagar í Reykjavík urðu
formlegir aðilar að InterPride á
þingi þeirra í Glasgow í október
1999.
... 27. júní árið 2006 varð frumvarp
á Alþingi að lögum þar sem
lagt var til að fjölskylduréttur
skyldi jafn að öllu leyti án tillits
til kynhneigðar. Frumvarpið
veitti samkynhneigðum sama
rétt og öðrum þegnum til að
skrá óvígða sambúð á Hagstofu,
allan sama rétt til ættleiðinga,
og lesbíum í staðfestri samvist
eða óvígðri sambúð sama rétt
og öðrum konum til tæknifrjóvg-
unar á opinberum sjúkrastofn-
unum.
... árið 2008 samþykkti Alþingi
breytingar á lögum um staðfesta
samvist heimilaði prestum eða
forstöðumönnum trúfélaga að
staðfesta samvist tveggja af
sama kyni.
... Hinsegin dagar hafa vaxið með
ótrúlegum hraða og undan-
farin ár hefur hinsegin fólk,
fjölskyldur þess og vinir fylkt
liði í gleðigöngu um miðborgina
og endað með útitónleikum.
Talið er að yfir 70.000 manns
taki þátt í hátíðarhöldunum ár
hvert.
... hátíðin hefur stækkað úr eins
dags hátíð í sex daga menn-
ingarhátíð og er enn að vaxa.
Heimild: www.hinsegindagar.is
Hinsegin dagar Haldnir Hátíðlegir í 17. skipti
Vissir þú að...
Þ að verður nú að viðurkennast að þessi vika ársins er ansi erfið og lítið um svefn eða haldgóða
næringu,“ segir Gunnlaugur Bragi
Björnsson. „Ég er reyndar svo hepp-
inn að með mér í stjórn Hinsegin kórs-
ins er frábær hópur sem er einfaldlega
orðinn vanur því að ég sé algjörlega
úti á túni á þessum tíma árs og kippa
sér ekkert upp við að öll verkefni
lendi á þeim á meðan ég einbeiti mér
að Hinsegin dögum. Sama má í raun
segja um fjölskyldu og vini, þau vita að
á þessum tíma er ekki hægt að ætlast
til að ég hafi tíma aflögu fyrir þau en
vita að ég reyni að bæta upp fyrir það
þegar ævintýrið er yfirstaðið.“
Sambland af fræðslu og skemmtun
Gunnlaugur kom út úr skápnum fyrir
fimm árum og fór fljótlega að taka
þátt í félagsstarfi innan hinsegin sam-
félagsins. „Ég fór meðal annars að
syngja með Hinsegin kórnum og var
gjaldkeri Samtakanna ’78 árið 2012-
2013. Þegar ég hætti sem gjaldkeri
þar ætlaði ég aldeilis að taka mér pásu
frá gjaldkerastörfum eða jafnvel bara
félagasamtökum almennt en það gekk
ekki betur en svo að eftir spjall við
Evu Maríu, formann Hinsegin daga,
varð úr að ég bauð mig fram til stjórn-
ar Hinsegin daga á aðalfundi félagsins
það sama ár og hef setið sem gjaldkeri
Hinsegin daga síðan eða í rúm tvö ár.“
Hátíðin í ár er sú fjórða sem Gunn-
laugur tekur þátt í að skipuleggja.
„Í ár má segja að hátíðin hafi farið í
ákveðna naflaskoðun, við höfum velt
fyrir okkur spurningum á borð við
hvers vegna haldin sé hátíð á borð
við okkar og hvert eiginlegt hlut-
verk hennar sé. Í kjölfarið lögðum við
töluvert mikið upp úr umræðufundum
og fræðsluviðburðum á Hinsegin
dögum og svo að hampa sögunni og
þeim sem á undan okkur komu og
ruddu brautina,“ segir Gunnlaugur.
Þema Hinsegin daga í ár er heilsa og
heilbrigði og finna má fjöldann allan
af viðburðum í tengslum við þemað, til
dæmis opinn umræðufund Hinsegin
daga og HIV Íslands sem fram fór í
gær, fimmtudag.
Mögulegt að sækja alla við-
burðina þrjátíu
Hinsegin dagar eru í dag sex daga há-
tíð og er fjöldinn allur af viðburðum
í boði fyrir gesti. „Við gerum okkar
besta til að láta sem fæsta viðburði
skarast svo þeir allra hörðustu geti
mætt á alla viðburði hátíðarinnar,
segir Gunnlaugur. Skipulagning
hátíðarinnar er í höndum stjórnar
Hinsegin daga, sem ásamt Gunn-
Hinsegin dag-
skrá Gunnlaugs
Braga
Hinsegin dagar fara nú fram
í 17. skipti og hefur hátíðin
farið stækkandi með hverju
árinu. Í ár dreifast viðburðirn-
ir yfir sex daga og nærri 30
viðburðir standa gestum til
boða fram á sunnudag. Það
getur verið úr vöndu að velja
og Fréttatíminn fékk Gunn-
laug Braga til að setja saman
sína dagskrá yfir helgina:
Föstudagur
„Á föstudaginn mun ég
mæta á pallborðsumræður
í hádeginu um „Heilbrigðis-
kerfið í augum trans- og
intersex fólks“, þar held ég
að megi búast við mjög svo
fróðlegum og skemmti-
legum umræðum. Ég sé
því miður ekki fram á að
ná bókmenntaviðburðinum
„Hýrir húslestrar“ seinni
partinn en um kvöldið syng
ég ásamt félögum mínum í
Hinsegin kórnum og gestum
úr Karlakórnum Esju á
tónleikum í Fríkirkjunni.
Draumurinn er svo auðvitað
að ná hinsegin siglingunni
„Stolt siglir fleyið“ mitt og
Landleguballi á eftir, en það
verður að koma í ljós hvort
það gengur upp!“
laugardagur
„Laugardagurinn er stóri
dagurinn okkar, Gleði-
gangan og Regnbogahátíðin
á Arnarhóli sem ég læt mig
að sjálfsögðu ekki vanta á –
frekar en aðrir! Um kvöldið er
svo fínt að hrista af sér mesta
spennufallið á hinu eina sanna
Pride balli sem að þessu sinni
verður haldið í Iðnó.“
sunnudagur
„Í ár eru óvenju margir
viðburðir á sunnudeginum
sem er gott dæmi um hvað
hátíðin okkar stækkar ár frá
ári. Ég stefni á að byrja dag-
inn í bubblubröns (e. bubbly
brunch) í Iðnó og mæta svo
um kvöldið á sérstaka Pride
sýningu Sirkuss Íslands,
„Hinsegin skinnsemi“, á
Klambratúni.“
„Að ætla að gera upp á milli viðburða á dagskrá ársins er eins og að ætla að gera upp á milli barnanna sinna, svo
einfalt er það. En ég geri mér líka grein fyrir að ég næ nú sennilega ekki að mæta á alla þá viðburði sem eftir eru enda
í mörg horn að líta,“ segir Gunnlaugur Bragi, einn skipuleggjenda Hinsegin daga og formaður Hinsegin kórsins, sem
ætlar að gera sitt besta til að mæta á sem flesta viðburði Hinsegin daga um helgina. Ljósmynd/Hari
Syngjandi gjald-
keri skipuleggur
Hinsegin daga
Dagskráin er ansi þétt skipuð þessa dagana hjá Gunnlaugi Braga
Björnssyni. Ásamt því að starfa sem gjaldkeri Hinsegin daga gegnir
hann einnig formennsku í Hinsegin kórnum. Kórinn mun taka þátt í
hátíðahöldunum með tónleikum í Fríkirkjunni í kvöld, föstudag.
laugi er skipuð fjórum öðrum.
„Þegar nær dregur hátíðinni
koma tugir sjálfboðaliða til við-
bótar að undirbúningi og fram-
kvæmd Hinsegin daga. Það hve
margir eru tilbúnir að leggja
hönd á plóg kemur manni líka
alltaf skemmtilega á óvart, án
alls þessa frábæra fólks væru
Hinsegin dagar ekki sú mann-
réttinda- og margbreytileika-
veisla sem þeir eru.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is