Fréttatíminn - 07.08.2015, Page 50
50 matur & vín Helgin 7.-9. ágúst 2015
Bjór SamStarf Borgar og NörreBro BryghuS
Þ að var stórskemmtilegt að brugga þetta með Nörrebro-strákunum
og tilraunin áhugaverð. Nú er
bara að sjá hvernig þetta leggst
í bjóráhugamenn,“ segir Val-
geir Valgeirsson, bruggmeist-
ari í Borg brugghúsi.
Afrakstur samstarfs Borg-
ar og danska brugghúss-
ins Nörrebro Bryghus
lítur dagsins ljós í dag,
föstudag. Þá kemur í sölu
bjórinn 2-14 sem er annar
tveggja bjóra sem Valgeir
og Árni Long brugguðu
með dönskum kollegum
sínum Peter Sonne og
Emil Rosendahl. 2-14 vís-
ar í frægt tap Íslendinga
fyrir Dönum árið 1967 en
seinni bjórinn mun kall-
ast 14-2 og verður settur á
markað í Danmörku þar sem
hann var bruggaður í sumar.
Báðir verða þó seldir á útivelli
ef svo má segja, 2-14 fer í sölu í
Danmörku á næstu vikum og
14-2 verður seldur hér þegar
hann fer í sölu í haust.
2-14 er 6,5% White Stout –
sem er í raun ljóst öl sem á
að bragðast eins og stout.
Þetta er í fyrsta sinn sem
slíkur bjór er bruggaður
hér á landi. Reynt er að
ná bragðinu fram með
hinum og þessum krydd-
um án þess að nota rist-
að bygg sem er einkenni
stout og porter-bjóra. Í
bjórnum er meðal ann-
ars maltað bygg, maltað
hveiti, hafrar, melassi og
reyktar kakónibbur. 14-2
verður svo dökkur stout.
Að neðan eru þeir Peter Sonne og Emil Rosendahl frá Nørrebro bryghus. Í efri röð
eru Valgeir Valgeirsson og Árni Long í Borg brugghúsi en myndin er tekin þegar
2-14 var bruggaður hér á landi í vor. Ljósmynd/Anna Ellen Douglas
Andy Erickson hjá Favia Winery var staddur hér á landi í vikunni.
Napa dalurinn mun
alltaf standa fyrir sínu
Vínframleiðandinn Favia Erickson í Napa dalnum í Kaliforníu er um 20 ára gamalt fyrirtæki sem
stofnað var af hjónunum Annie Favia og Andy Erickson. Þau leggja upp með einfalda hugmynda-
fræði: Að framleiða vín sem lýsa náttúrunni og jarðveginum sem þau eru ræktuð í til fullnustu.
Favia vínin hafa fengið mörg verðlaun um allan heim og eru ofarlega á öllum listum helstu vín-
smakkara. Andy Erickson, annar eigendanna, var staddur hér á landi í vikunni á ráðstefnunni How
Innovation and Talent attract capital, sem haldin var á vegum Háskólans í Reykjavík. Andy sagðist
spenntur fyrir því að veiða hér á landi og vill endilega að Favia vínin geti boðist Íslendingum.
a ndy Erickson var hér stadd-ur á frumkvöðlaráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík
á vegum Silicon Valley Bank, sem
er fjárfestingarbanki sem fjárvesti
í Favia Winery sem Erickson stofn-
aði ásamt konu sinni fyrir 20 árum.
„Favia Winery er sprotafyrirtæki í
vínframleiðslu. Silicon Valley bank-
inn hefur unnið með okkur að fram-
leiðslunni undanfarin 20 ár og Ken
Loveless hjá bankanum er einn af
skipuleggjenda ráðstefnunnar og
ég er hér með honum,“ segir Andy
Ericksson. „Fyrst og fremst er ég
þó hér til þess að veiða fisk,“ segir
hann og hlær.
„Ég fluttist til Napa dalsins fyr-
ir rúmum 20 árum og var að búa
til vín fyrir aðra framleiðendur.
Annie Favia, eiginkona mín, er
vínræktandi og við kynntumst
nokkrum árum eftir að ég fluttist
til Kaliforníu og opnuðum okkar
eigin vínframleiðslu, árið 2003,“
segir Andy.
„Við höfðum verið að búa til vín
saman fyrir þann tíma og ákváðum
að sameina þessa ástríðu okkar. Við
erum lítið fyrirtæki sem sérhæfir
sig í Cabernet Franc og Cabernet
Sauvignon,“ segir Andy, en mörg
vín frá þeim hafa náð einkunn upp á
100 hjá einum virtasta víngagnrýn-
anda Bandaríkjanna, Robert Parker.
„Við framleiðum einnig vín úr
þyngri þrúgum eins og Syrah í
Amador dalnum í Kaliforníu, sem
hentar betur undir þær tegundir.
Við elskum landbúnað og að búa til
hluti í náttúrunni eins og gott vín,“
segir Andy. „Ég ólst upp í kringum
landbúnað og ég hef alltaf hrifist
af landbúnaðariðnaði. Faðir minn
var vísindamaður og fyrst um sinn
vissi ég ekkert um vín. Um leið og
ég fluttist til Kaliforníu varð ég mjög
áhugasamur um iðnina og fór að
rannsaka þetta og þannig byrjaði
þetta. Í dag vinn ég einnig við ráð-
gjöf fyrir þá sem koma til Napa og
vilja hefja vínrækt,“ segir hann.
Víngerð byggð á tilfinningu
Andy og eiginkona hans velja stað-
stetningar fyrir vínræktun sína af
mikilli kostgæfni. Undirlagið skiptir
þau miklu máli og veðurfarið vissu-
lega líka. Þau framleiða ekki mikið
í einu því þeirra hugmynd er að hlúa
eins vel að hverjum árgangi fyrir
sig. Sem minnst inngrip og gríðar-
legt aðhald er það sem gerir gæfu-
muninn. „Við eyðum gríðarlega
miklum tíma við ræktunina en þeg-
ar kemur að framleiðslunni finnst
okkur best að gera sem minnst,“
segir Andy. „Víngerð er mjög lítið
tæknileg, meira byggð á tilfinningu.
þetta snýst mikið um verndun þegar
kemur að því að fá það besta úr berj-
unum.“
Hvað er það sem gerir vín gott?
„Það er svo margt,“ segir Andy.
„Við erum heppin í Napa þegar
kemur að staðsetningu og loftslagi.
Við erum með sól og líka vindinn
frá sjónum, svo það verður ekki of
heitt. Einnig er hraun í jarðveg-
inum okkar, sem er mikilvægt því
jarðvegurinn verður að þjást aðeins.
Hér á Íslandi er hraun í jarðveginum
líka en það er á svo miklu dýpi hjá
okkur. Ég held að hér sé erfitt að
rækta vín,“ segir Andy og hlær.
„Enda sólin ekki oft á lofti, því
miður. Það er samt hægt að fá
gott vín hér og það væri gaman að
geta boðið upp á Favia vínin hér,“
segir hann. Favia vínin eru seld í
17 ríkjum Bandaríkjanna, sem og
í Asíu, Suður-Ameríku og mörgum
Evrópulöndum, eins og Svíþjóð og
Noregi.
„Kaliforníuvínin eru vinsæl um
allan heim og það er því ekki flókið
að flytja það inn í hvaða land sem
er. Það sem mér finnst skemmti-
legast við þetta er það að þeir sem
flytja vínin okkar inn er fólk sem
hefur bara haft samband beint við
okkur,“ segir Andy. „Napa dalur-
inn er alltaf vinsæll og hefur alltaf
framleitt góð vín og mun halda því
áfram. Þrátt fyrir að hann sé lítill
og framleiðslan er aðeins 2% af allri
framleiðslu í Bandaríkjunum, þá er
hann bara svo sérstakur og hefur
einstakan gæðastimpil. Vínin eru
á háum standard og til okkar kem-
ur fólk frá öllum heimshornum til
þess að fá góð vín,“ segir Andy Er-
ickson, vínframleiðandi hjá Favia
Winery.
Hægt er að lesa um Favia vínin og
hafa samband á heimasíðu þeirra
www.faviawine.com.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Fyrsti hvíti stout-inn