Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Page 4

Fréttatíminn - 28.08.2015, Page 4
ALLT AÐ 20.000 KR. BÓKUNARAFSLÁTTUR AF FERÐUM TIL TENERIFE OG KANARÍ. Flogið frá 20. október með Icelandair. Úrval Útsýn |  Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi |  585 4000 |  uu.is ALLT AÐ 20.000 KR. BÓKUNARAFSLÁT TUR TIL 5. SEPT. NÁNAR Á UU.IS veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Hvöss N-átt og rigNiNg N- og A-til. léttskýjAð syðrA. kólNANdi veður. HöfuðborgArsvæðið: StrekkingSvindur, en Sólríkur dagur. viNdur geNgur Niður og léttir til úr vestri. rigNiNg og kAlt NA-til. HöfuðborgArsvæðið: Bjartviðri og hægur vindur SíðdegiS. birtir upp N- og A-lANds. HægviðrAsAmt og sólríkt. HöfuðborgArsvæðið: Bjart fyrSt um morguninn, en Suddi um kvöldið. kólnar, en hlýnar síðan aftur Það eru nokkrar sviptingar í veðrinu þessa dagana og breytingar örar. í dag er útlit fyrir framrás af köldu lofti með hvassri n-átt og rigningu norðanlands og austan. Bjartviðri syðra. Á morgun kemur hæðarhryggur úr vestri, lægir og léttir smámsaman til. í innsveitum er næturfrost alls ekki útilokað aðfaranótt sunnudags. Þann dag- inn er síðan útlit fyrir blítt veður, hægan vind og sólin lætur víða sjá sig. vestanlands slær upp skýjabakka. hlýnar heldur eftir helgi, einkum fyrir norðan og austan. 10 6 7 9 13 11 9 5 5 14 10 8 13 12 12 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is  vikan sem var Íslandsmet í Blöndu íslandsmet hefur verið slegið í Blöndu en þar hafa veiðst 4.303 laxar í sumar. fyrra met var 4.165 laxar sem veiddust í Þverá/ kjarrá árið 2005. Rukkað í Nauthóls- vík gjaldtaka verður í nauthólsvík allan ársins hring í fram- tíðinni en hingað til hefur verið ókeypis á sumrin. Bratthöfði verður Svart- höfði Um­hverf­s-­og­ skipu lags ráð reykja vík ur- borg ar samþykkti á fundi sín um að breyta ein hverju af götu heit un um í Höfðahverf­nu­í­„Svart­höfði,“­eft­ir­ fallna jedi-ridd ar an um í Stjörnu- stríðsmynd un um. Borgarstjóri greindi frá því á twitter að Bratt höfði hefði orðið fyr ir val inu. H&M til Íslands? fasteignafélagið reginn undir- býr nú skipulag verslunarrýmis á hörpureitnum. helgi S. gunnarsson forstjóri segir að rætt sé við al- þjóðleg stórfyrirtæki um að hefja þar rekstur, verslanir á borð við h&m. Ný forysta í bjartri framtíð heiða kristín helgadóttir ætlar ekki að bjóða sig fram sem formaður Bjartrar framtíðar. guðmundur Stein- grímsson formaður og róbert Marshall­þingflokksformaður­ hafa­upplýst­að­þeir­gef­ekki­ kost á sér til áframhaldandi setu og margir eru orðaðir við formannsframboð. Þeirra á meðal eru Brynhildur Pét- ursdóttir og óttarr Proppé. u mferðaröryggi virðist brenna sérstak-lega á fólki í hverfinu,“ segir Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt og for- maður íbúasamtaka Vesturbæjar. „Við höfum áhyggjur af hraðri umferð á mörgum stöðum en þó sérstaklega við Hringbraut, Ánanaust og Geirsgötu/Mýrargötu,“ segir Birgir en það eru staðir sem borgin hefur rætt um að minnka umferðarþunga um í nokkurn tíma. gangandi vegfarendur eiga að hafa forgang Birgir segir það ekki samræmast nútímaborg- arþróun að bílar séu settir í forgang, gangandi og hjólandi vegfarendur eigi að hafa forgang því það sé vistvænna og öruggara. Umferðin við Geirsgötu, Ánanaust og Hringbraut sé það hröð og þung að hún ógni öryggi fólks. „Það hefur verið rætt að grafa hluta Geirsgötunnar niður en það þyrfti að grafa hana alla niður, frá Hörpu út á Granda, til að minnka hraðann. Að grafa niður einn hluta hennar myndi aðeins verða til þess að auka hraðann. Það þarf að beina stærri bílunum annað, það geng- ur auðvitað ekki að það séu stórir trukkar að sækja olíu í Örfirisey í gegnum hverfin.“ leiðsla frá granda í sundahöfn „Olíutankarnir sjálfir eru ekki svo slæmir og þeir eru ennþá nauðsyn- legir. Það eru skip sem leggja að þeim til að fylla á tankinn en umferðin að þeim er hættu- leg. Ein lausn væri að setja leiðslu frá þessum tönkum út í Sundahöfn þannig að tappað sé á trukkana annars staðar. Það eru nú einu sinni lagðar gasleiðslur frá Síberíu og alla leið til Parísar svo það hlýtur að vera hægt að leggja eina leiðslu frá Granda að Sundahöfn. Það er algjör óþarfi að þessir trukkar séu á ferð um miðborgina. Eitt er að vera þungamiðja menn- ingar í borginni og annað er að vera þunga- miðja umferðar. Það væri mun eðlilegra að hafa átöppunarstöð fyrir trukkana í Sunda- höfn,“ segir Birgir. sárvantar leikvelli og íþróttasvæði Birgir segir þunga umferðina um Granda þar að auki gera gangandi og hjólandi vegfar- endum erfitt að nálgast svæðið. „Það er að myndast mjög áhugaverður þjónustukjarni úti á Granda en það er ennþá erfitt að nálgast svæðið. Við viljum að deiliskipulagið verði endurskoðað með þarfir og þjónustu íbúanna að leiðarljósi. Í dag er það aðallega hugsað út frá nýtingarmöguleikum Faxaflóahafnar en okkur finnst þetta vera of verðmætt svæði fyrir vöruhótel og skemmur sem geta verið hvar sem er. Það vantar sárlega íþróttasvæði og leikvelli í Vesturbæinn og Grandasvæðið væri tilvalið til þess.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is  skipulagsmál vilja endurskoða deiliskipulag úti á granda Vill olíuleiðslu frá Granda í Sundahöfn Íbúasamtök­Vesturbæjar­telja­þunga­umferð­olíutrukka­um­hverfð­ógna­öryggi­íbúanna.­Birgir­ Þröstur jóhannsson, arkitekt og formaður íbúasamtaka vesturbæjar, segir löngu tímabært að minnka­umferð­um­hverfn,­ekki­síst­umferð­olíutrukka.­Ein­leið­væri­að­beina­umferðinni­annað­ með­því­að­flytja­olíuna­í­leiðslu­frá­Örfrisey­í­Sundahöfn. olíutankarnir í örfirisey eru hluti af borgarmyndinni og þjóna enn sínu hlutverki. íbúasamtök vesturbæjar gagnrýna þunga umferð olíutrukka að tönkunum. Ljósmynd/Hari Birgir Þröstur jóhannsson. 4 fréttir helgin 1.-3. október 2010elgin 28.-30. ágúst 5

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.