Fréttatíminn - 28.08.2015, Side 18
Ég var sannarlega
á réttum stað á
réttum tíma. Ég
vissi ekki af þess-
ari akademíu við
La Scala en hún
er að setja upp
stóra sýningu
næsta sumar,
Töfraflautuna
eftir Mozart í leik-
stjórn Peter Stein.
Líka fyrir
GERFIEFNI!
Fatalitir
Núna aftur opið á
Laugardögum kl 11-15
S. 553-1800 / Holtagarðar / 104 Reykjavík / www.fondurlist.is
Margar gerðir
Litabækur fyrir
Fullorðna og
Kortagerð
Mikið úrval
Sharpie - tússpennar
Það tekur á að fela sig
– við erum tilbúin að hlusta
Ókeypis Trúnaður Alltaf opinn
1717
.isHJÁLPARSÍMI OG NETSPJALL RAUÐA KROSSINS
É
g ætlaði varla
að trúa þessu í
fyrstu og er enn
að átta mig á hvað
þetta er stórkost
legt tækifæri,“ segir Kristín
Sveinsdóttir sem syngur í
uppfærslu La Scala óperunnar
á Töfraflautu Mozarts næsta
haust. Hún er fyrsta íslenska
konan sem syngur í þessu
virta óperuhúsi í Mílanó en
hún hefur þjálfun í sérstakri
akademíu fyrir ungt fólk
á vegum La Scala þann 1.
október.
Söngurinn hefur átt hug og
hjarta Kristínar frá því hún var
lítil stelpa. Fjögurra ára gömul
flutti hún í Langholtshverfið
og fylgdi bestu vinkonu
sinni úr leikskóla í Krúttakór
Langholtskirkju. „Ég söng
síðan áfram í Langholtskirkju.
Þaðan, og frá Tónskóla Sigur
sveins, kemur mitt tónlistar
uppeldi og söngáhugi. Kirkjan
býður upp á einsöngsnám
og ég lærði þar einsöng hjá
Hörpu Harðardóttur. Seinna
flutti ég mig yfir í Söngskóla
Reykjavíkur og lærði áfram
hjá Hörpu meðfram námi í
Menntaskólanum við Hamra
hlíð. Klassískur söngur og
klassísk tónlist var alltaf bara
áhugamál en þegar ég var
búin með menntaskólann fann
ég hvað söngurinn var stór
hluti af mér og ég var alls ekki
tilbúin til að gefa hann upp á
bátinn,“ segir Kristín.
Hafði lært allt nema þýsku
Þegar tónlistarkonan Björk
Guðmundsdóttir var að vinna
að plötunni Biophilia leitaði
hún að kvennakór til að syngja
í tveimur lögum. Henni var
bent á Graduale Nobili, úrvals
kór stúlkna við Langholts
kirkju sem Kristín tilheyrði,
og úr varð að kórinn söng í
átta lögum á plötunni og ferð
aðist með Björk á tónleika
ferðalaginu þegar hún fylgdi
eftir plötunni. „Ég kláraði
burtfararpróf frá Söngskólan
um í Reykjavík en vegna þess
hversu mikið við ferðuðumst á
Biophiliatúrnum var ég orðin
23 ára þegar ég fór loks í inn
tökupróf fyrir baccalaureate
nám við Tónlistarháskólann
í Vínarborg. „Við vorum tvær
vinkonurnar sem fórum sam
an í inntökuprófið, höfðum
verið í sama bekk í Söngskól
anum, báðar lært hjá Hörpu
og báðar sungið með Björk,
og við tvær vorum báðar í átta
manna hópi sem komst inn eft
ir að 160 manns fóru í prufur.
Við höfum því verið samferða í
gegnum margt,“ segir Kristín.
Kærasti Kristínar, Hall
grímur Árnason, var einnig að
Handvalin
af útsendara
La Scala
Kristín Sveinsdóttir mezzó-
sópran er fyrsta íslenska
konan sem syngur við hið virta
La Scala óperuhús í Mílanó.
Kristín er 24 ára gömul og
hafði aðeins lokið einu ári
við Tónlistarháskólann í Vín
þegar hún var handvalin til að
syngja í Töfraflautu Mozarts
sem sett verður upp í La Scala
næsta haust. Kristín hóf söng-
ferilinn í Krúttakór Langholts-
kirkju, söng með Graduale
Nobili og ferðaðist með Björk
Guðmundsdóttur á Biophilia-
túrnum. Næsta stopp er eitt
þekktasta óperuhús heims.
Kristín Sveinsdóttir vissi
vart hvaðan á sig stóð veðrið
þegar hún fékk skilaboð frá
útsendara La Scala sem vildi
mæla með henni í hlutverk
þar. Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu síðu
18 viðtal Helgin 28.-30. ágúst 2015