Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Side 26

Fréttatíminn - 28.08.2015, Side 26
BERG TRAMPÓLÍN Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is • Fallvörn allt að 3 m • Endingargott • Kemur í 15 litum • Lágur viðhaldskostnaður • Þolir -61°C NOTAðU MYNDUNARAFLIðí CHILDSPLAY GERVIGRASIð FRA NOTTS SPORT KÍKTU Á KRUMMA.IS/FALLVARN IR Þ órir Sæmundsson er 34 ára gamall og lærði leiklist í Noregi. Hann flutti til Noregs ásamt foreldrum sínum og bræðrum að loknum grunnskóla og eftir leiklistarnámið fékk hann tækifæri í norskum leikhúsum en kom heim árið 2007, eingöngu vegna þess að hann fann fyrir heimþrá. Hann var alltaf ungling- urinn sem vissi allt best og skildi aldrei neitt í því þegar aðrir voru að reyna að kenna honum eitthvað sem hann þóttist kunna. Það tók hann mörg ár að fatta það að hann væri ekkert meira sérstakur en næsti maður. Þórir útskrifaðist sem leikari aðeins 21 árs og hefur því starfað á því sviði í 13 ár, þrátt fyrir ungan aldur. Spennandi að leika Hróa hött „Við erum bara á fullu þessa dagana og frumsýningin er 12. september,“ segir Þórir um hlut- verk sitt í Hróa hetti. „Ég held að þetta gangi þrusuvel og ég er að fíla þetta. Þetta er skemmtilegt, spennandi og fyndið og þetta er gríðarlega líkamlegt. Ég er að drepast í líkamanum alla daga. Ég er að finna fyrir verkjum í ein- hverjum vöðvum og vöðvafest- ingum sem ég vissi ekki einu sinni af. Þetta er samt svo gaman og ég hef mikla trú á því að þetta verði mjög flott,“ segir Þórir. „Þetta er ekki þessi klassíska Hróa hattar pæling. Hann er ekkert þessi hetja í byrjun sem allir upplifa, en það breytist svo. Salka Sól kemur svo með tónlist sem gefur þessu nýtt líf, en þetta er alls ekki söngleikur samt. Bara leikhús með músík.“ Þórir vann í rúm þrjú ár í Þjóð- leikhúsinu eftir að hann flutti heim, og fór þá yfir í Borgarleik- húsið þar sem hann tók þátt í metsölusýningunni Mary Popp- ins. Hann skipti svo aftur yfir í Þjóðleikhúsið á síðasta ári. „Ég var í Latabæ, Sjálfstæðu fólki og Karítas: Án titils í fyrra og í vetur verð ég allavega í Hróa, örugg- lega einhverju fleiru en það er ekki tími til að spá í það fyrr en eftir frumsýningu,“ segir hann. „Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu og finnst gaman að það er mikill utanaðkomandi áhugi á þessari sýningu.“ Fannst Ari Matt mesti töffar- inn Hver er Þórir Sæm? „Hver er Þórir Sæm? Það er góð spurning,“ segir hann. „Mamma og pabbi fá þá flugu í hausinn þegar ég var 15 ára að flytja til Noregs,“ segir Þórir. „Þau voru frumkvöðlar hvað það varðar. Þau vildu bara breyta til og ég var þarna að klára grunnskóla og bræður mínir yngri og það passaði ágætlega. Á þessum tíma var þetta bara ævintýraþrá, það var ekki vegna þess að fólk væri að flýja eins og í dag. Mér leist ekkert á þetta og var í einhverri uppreisn. Ég ætlaði bara að fara í Flensborg því ég er Hafnfirðingur og var alls ekkert til í þetta,“ segir Þórir. „Ég hafði alltaf verið að daðra við leiklist og lék Bugsy Malone í Hafnarfjarðar- leikhúsinu og lék líka í Evu Lunu í Borgarleikhúsinu og þá var maður algerlega bitinn af þessari dellu,“ segir hann. „Þar horfði maður á Magga Jóns og Ara Matt og mér fannst þetta mestu töffarar í heimi. Sem er svo fyndið þegar Ari er yfirmaður minn í dag,“ segir Þórir. „Mér þótti töfrum líkast að vera í leikhúsi og þegar ég vinn með krökkum í dag hef ég gaman af að fylgjast með þeim, því ég sé að þeim finnst þetta eins og mér fannst þetta. Mamma hafði fundið menntaskóla sem lagði mikið upp úr leiklist og ég fór þangað og fór með Hávamál á ensku og það fannst þeim greini- lega sniðugt og tóku mig inn,“ segir Þórir. „Ég byrjaði í þessum mennta- skóla og skildi ekki neitt. Eftir svo tvo mánuði þá small þetta og mér fannst ógeðslega gaman. Norsku krökkunum fannst mjög svalt að hafa einn íslenskan á þessum tíma. Ég er ennþá smá hrokagikkur Á fjölum Þjóðleikhússins í vetur verður Hrói höttur ansi fyrirferðarmikill. Þessi sýning sem er uppfærsla Vesturports á sögunni um þessa gömlu söguhetju skartar mörgum af bestu leik- urum landsins og leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Selmu Björnsdóttur. Aðalhlutverkið, sjálfan Hróa hött, leikur Þórir Sæmundsson sem undanfarin ár hefur leikið hin ýmsu hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Þetta er hans fyrsta burðarhlutverk og hann segir stutt síðan að honum hefði ekki verið treyst fyrir þessu. Hann endurskoðaði líf sitt fyrir 18 mánuðum og áttaði sig á því að hann var ekki Jose Mourinho leiklistarinnar. Hann tekur auðmjúkur á móti nýju leikári. Seinna meir áttaði ég mig á að það var kannski ekki svo gott að komast inn svona ungur ... Ég var fyrsti útlendingurinn sem komst inn í skólann og yngsti nemandinn frá upphafi. Ég byrjaði þetta nám með þá hugsun að ég væri Jose Mourinho leiklistarinnar. The Special One. „Ég er búinn að endurheimta tímann með sonum mínum og er hættur að vera afæta á allt. Ég gaf aldrei af mér, ég tók bara,“ segir Þórir Sæmundsson leikari. Ljósmynd/Hari 26 viðtal Helgin 28.-30. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.