Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 26
BERG TRAMPÓLÍN
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
• Fallvörn allt að 3 m
• Endingargott
• Kemur í 15 litum
• Lágur viðhaldskostnaður
• Þolir -61°C
NOTAðU
MYNDUNARAFLIðí
CHILDSPLAY GERVIGRASIð
FRA NOTTS SPORT
KÍKTU Á
KRUMMA.IS/FALLVARN
IR
Þ
órir Sæmundsson er
34 ára gamall og lærði
leiklist í Noregi. Hann
flutti til Noregs ásamt
foreldrum sínum og
bræðrum að loknum grunnskóla
og eftir leiklistarnámið fékk hann
tækifæri í norskum leikhúsum
en kom heim árið 2007, eingöngu
vegna þess að hann fann fyrir
heimþrá. Hann var alltaf ungling-
urinn sem vissi allt best og skildi
aldrei neitt í því þegar aðrir voru
að reyna að kenna honum eitthvað
sem hann þóttist kunna. Það tók
hann mörg ár að fatta það að hann
væri ekkert meira sérstakur en
næsti maður. Þórir útskrifaðist
sem leikari aðeins 21 árs og hefur
því starfað á því sviði í 13 ár, þrátt
fyrir ungan aldur.
Spennandi að leika Hróa hött
„Við erum bara á fullu þessa
dagana og frumsýningin er 12.
september,“ segir Þórir um hlut-
verk sitt í Hróa hetti. „Ég held að
þetta gangi þrusuvel og ég er að
fíla þetta. Þetta er skemmtilegt,
spennandi og fyndið og þetta er
gríðarlega líkamlegt. Ég er að
drepast í líkamanum alla daga.
Ég er að finna fyrir verkjum í ein-
hverjum vöðvum og vöðvafest-
ingum sem ég vissi ekki einu sinni
af. Þetta er samt svo gaman og ég
hef mikla trú á því að þetta verði
mjög flott,“ segir Þórir. „Þetta er
ekki þessi klassíska Hróa hattar
pæling. Hann er ekkert þessi hetja
í byrjun sem allir upplifa, en það
breytist svo. Salka Sól kemur svo
með tónlist sem gefur þessu nýtt
líf, en þetta er alls ekki söngleikur
samt. Bara leikhús með músík.“
Þórir vann í rúm þrjú ár í Þjóð-
leikhúsinu eftir að hann flutti
heim, og fór þá yfir í Borgarleik-
húsið þar sem hann tók þátt í
metsölusýningunni Mary Popp-
ins. Hann skipti svo aftur yfir í
Þjóðleikhúsið á síðasta ári. „Ég
var í Latabæ, Sjálfstæðu fólki og
Karítas: Án titils í fyrra og í vetur
verð ég allavega í Hróa, örugg-
lega einhverju fleiru en það er ekki
tími til að spá í það fyrr en eftir
frumsýningu,“ segir hann. „Ég er
gríðarlega spenntur fyrir þessu
og finnst gaman að það er mikill
utanaðkomandi áhugi á þessari
sýningu.“
Fannst Ari Matt mesti töffar-
inn
Hver er Þórir Sæm?
„Hver er Þórir Sæm? Það er góð
spurning,“ segir hann.
„Mamma og pabbi fá þá flugu
í hausinn þegar ég var 15 ára að
flytja til Noregs,“ segir Þórir. „Þau
voru frumkvöðlar hvað það varðar.
Þau vildu bara breyta til og ég
var þarna að klára grunnskóla og
bræður mínir yngri og það passaði
ágætlega. Á þessum tíma var þetta
bara ævintýraþrá, það var ekki
vegna þess að fólk væri að flýja eins
og í dag. Mér leist ekkert á þetta og
var í einhverri uppreisn. Ég ætlaði
bara að fara í Flensborg því ég er
Hafnfirðingur og var alls ekkert
til í þetta,“ segir Þórir. „Ég hafði
alltaf verið að daðra við leiklist og
lék Bugsy Malone í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu og lék líka í Evu Lunu í
Borgarleikhúsinu og þá var maður
algerlega bitinn af þessari dellu,“
segir hann.
„Þar horfði maður á Magga Jóns
og Ara Matt og mér fannst þetta
mestu töffarar í heimi. Sem er
svo fyndið þegar Ari er yfirmaður
minn í dag,“ segir Þórir. „Mér þótti
töfrum líkast að vera í leikhúsi og
þegar ég vinn með krökkum í dag
hef ég gaman af að fylgjast með
þeim, því ég sé að þeim finnst þetta
eins og mér fannst þetta. Mamma
hafði fundið menntaskóla sem
lagði mikið upp úr leiklist og ég
fór þangað og fór með Hávamál á
ensku og það fannst þeim greini-
lega sniðugt og tóku mig inn,“ segir
Þórir. „Ég byrjaði í þessum mennta-
skóla og skildi ekki neitt. Eftir svo
tvo mánuði þá small þetta og mér
fannst ógeðslega gaman. Norsku
krökkunum fannst mjög svalt að
hafa einn íslenskan á þessum tíma.
Ég er
ennþá smá
hrokagikkur
Á fjölum Þjóðleikhússins í vetur verður Hrói höttur ansi fyrirferðarmikill. Þessi sýning sem er
uppfærsla Vesturports á sögunni um þessa gömlu söguhetju skartar mörgum af bestu leik-
urum landsins og leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar og Selmu Björnsdóttur. Aðalhlutverkið,
sjálfan Hróa hött, leikur Þórir Sæmundsson sem undanfarin ár hefur leikið hin ýmsu hlutverk
á sviði og í sjónvarpi. Þetta er hans fyrsta burðarhlutverk og hann segir stutt síðan að honum
hefði ekki verið treyst fyrir þessu. Hann endurskoðaði líf sitt fyrir 18 mánuðum og áttaði sig á
því að hann var ekki Jose Mourinho leiklistarinnar. Hann tekur auðmjúkur á móti nýju leikári.
Seinna meir áttaði ég
mig á að það var kannski
ekki svo gott að komast
inn svona ungur ... Ég
var fyrsti útlendingurinn
sem komst inn í skólann
og yngsti nemandinn frá
upphafi. Ég byrjaði þetta
nám með þá hugsun að
ég væri Jose Mourinho
leiklistarinnar. The
Special One.
„Ég er búinn að endurheimta tímann með sonum mínum
og er hættur að vera afæta á allt. Ég gaf aldrei af mér, ég
tók bara,“ segir Þórir Sæmundsson leikari. Ljósmynd/Hari
26 viðtal Helgin 28.-30. ágúst 2015