Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 36

Fréttatíminn - 28.08.2015, Síða 36
36 matur & vín Helgin 28.-30. ágúst 2015 Havartí er einn þekktasti ostur Dana en hér á landi hófst framleiðsla á honum á Höfn í Hornarfirði árið 1987. Ostinum var upphaflega gefið nafnið Jöklaostur en því var breytt. Havartí varð til um miðja 19. öld hjá hinni frægu dönsku ostagerðarkonu, Hanne Nielsen. Havartí er mildur, ljúfur og eilítið smjörkenndur ostur sem verður skarpari með aldrinum og er með vott af heslihnetubragði. Frábær ostur með fordrykknum eða á desertbakka með mjúkum döðlum og eplum. HAVARTÍ FJÖLHÆFUR www.odalsostar.is Þ egar makríllinn kom hingað til lands hugsaði ég með mér að það hlyti að vera hægt að gera eitthvað gott úr þessum fallega fiski,“ segir Ómar Fransson sjómaður og stofnandi Sólskers, sjávarútvegsfyrirtækis sem gerir út bát á Hornafirði ásamt matvælaframleiðslu. Sólsker sérhæfir sig í heit- reyktum makríl og makríl- paté en er líka farið að prufa sig áfram með reykt þorsk- hrogn og léttreyktan karfa. Trillukarlarnir á Höfn voru tilraunadýr „Ég dró félaga minn í þetta með mér og það var bara farið að prófa hinar og þess- ar aðferðir við að heitreykja. Við reyktum fleiri hundruð kíló af makríl á nokkrum mánuðum og vorum svo með tilraunadýr til að smakka afraksturinn,“ segir Ómar en tilraunadýrin voru hinir trilllukarlarnir á Höfn í Hornafirði. „Við keyrðum prufurnar út þangað sem trillukarlarnir safnast fyrir í bænum, til dæmis niður á fiskmarkað og á hafnar- vogina. Þessir karlar höfðu aldrei borðað makríl og það kom þeim öllum á óvart hvað þetta var gott. Margir höfðu myndað sér skoðanir á þessu fyrirfram og sögðu að makríllinn væri bara óþverri, bara beita og ekki mannamatur. Íslendingar þekktu auðvitað ekkert makríl fyrr en hann kom að landinu um 2009. En þetta er herramannsmatur sem Evrópubúar þekkja miklu betur en við.“ Þegar trillukarlarnir höfðu allir sammælst um bestu útfærsluna ákvað Ómar að fara með afrakst- urinn til Svíðjóðar í Norður- landakeppni í smáfram- leiðslu matvæla. „Við bara komum, sáum og sigruðum. Þarna voru 680 keppendur og það var nú bara þannig að við fengum gullið fyrir okkar vöru.“ Til að byrja með veiddi Ómar allan makrílinn sjálfur en nú veiðir hann aðallega bolfisk. „Þegar mig vantar makríl kaupi ég hann frosinn hér á Höfn eða á Þorlákshöfn og vinn þetta þegar ég er ekki á sjónum,“ segir Ómar sem er líka far- inn að framleiða makrílpaté sem vann silfurverðlaun í matvælakeppni Norræna hússins í fyrra. „Það er vaxandi sala í þessu og ég held að Íslendingar séu að komast á lagið með þetta. Ég ætla allavega að gera mitt besta til þess og hingað til hafa allir sem smakka bitið á agnið.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Allir sem smakka bíta á agnið Þegar makríllinn kom til Íslands ákvað sjómaðurinn og matmaðurinn Ómar Fransson að gera eitthvað gott úr þessum fallega fiski. Eftir að hafa prófað ótal útgáfur af heitreyktum makríl voru tilraunadýrin, hinir trillukarlarnir á Höfn, loks sammála um hvað væri besta útgáfan. Það voru fleiri sem voru sammála trillukörlunum því Sólskersmakríllinn vann Norðurlandakeppni smáframleiðenda árið 2013 og síðan þá hefur Ómar ekki haft undan að reykja og gera paté milli þess sem hann stundar sjóinn. Nafn: Ómar Fransson Aldur og fyrri störf: „Ég er 51 árs og hef verið á sjó síðan ég man eftir mér. Held ég hafi verið 8 ára þegar ég fór í fyrsta túrinn.“ Heimili: „Ég ólst upp í 101 Reykjavík en fósturfaðir minn Björn Eymunds- son var skipstjóri í Grindavík og þaðan fór ég með honum á sjóinn. Flutti svo á Höfn 1976.“ Draumaferðalag- ið: „Draumurinn var að fara til Ástralíu og Græn- lands en ég er búinn að því svo ég er sáttur.“ Besti matur: „Allur nýveiddur fiskur steiktur á pönnu er besti matur í heimi.“ Versti matur: „Mér finnst matur vera misjafn en er samt algjör alæta. Hef aldrei smakka vondan mat.“ Ómar Fransson rekur Sólsker, sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir út bát á Hornafirði ásamt matvælaframleiðslu. „Ég hef alltaf haft gaman af því að setja saman bragðtegundir,“ segir Ómar sem kynnir vörur sínar á matarhátíð Búrsins í Hörpu um helgina. „Sjálfum finnst mér best að setja makrílinn á smurt rúgbrauð með fersku spínati, rauðlauk og sósu sem ég geri úr hunangi, majónesi og sinnepi. Þetta er alveg rosalega gott.“ Matarhátíð í Hörpu um helgina Matarhátíð Búrsins verður haldin í Hörpu um helgina en þar koma saman sjómenn, bændur og smáframleiðendur víðsvegar af landinu með fjölbreytt úrval matvæla. Einnig verða matgæðingar, atvinnu- og áhugamenn, með bragðgóð erindi um mat. Slow food samtökin á Íslandi bjóða gestum á hátíðinni diskósúpu sem er skemmtileg leið til að vekja athygli á matarsóun. Miðaverð á hátíðina er 1.000 krónur en frítt er inn fyrir börn yngri en 16 ára. Opið er frá klukkan 11-17, bæði laugardag og sunnudag.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.