Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 42
42 matur & vín Helgin 28.-30. ágúst 2015
Nýir ostar frá Erpsstöðum
V ið höfum alltaf verið með ís á matarmarkaði
Búrsins og munum vera
með hann áfram,“ segir
Þorgrímur Guðbjarts-
son bóndi á Erpsstöð-
um. „Síðan verðum við
með skyrið og rjóm-
ann. Þetta hefðbundna
gamaldags skyr. Ég
var einmitt að leggja í
það núna svo það verði
tilbúið fyrir helgina,“
sagði Þorgrímur þegar
talað var við hann í
upphafi vikunnar. „Það
tekur 3 til 4 daga að
verða klárt.“
Rjómabúið hefur
verið starfrækt síðan
2009 og segir Þorgrím-
ur þróunina hafa verið
mikla með hverju árinu.
„Það eru þessir kjarnar.
Skyrið, ísinn, rjóminn
og fetaosturinn sem við
höfum gert hvað mest
af,“ segir hann. „Undan-
farin þrjú ár höfum við
svo verið með kúmenost
sem verður hjá okkur á
laugardaginn. Á hverju
ári höfum við svo verið
með ýmsar útgáfur af
ýmsum ostum, og á
laugardaginn ætlum
við að bjóða upp á úrval
af kryddostum sem við
höfum verið að gera
Á Erpsstöðum í Búðardal hefur verið starfrækt rjómabú í 6 ár, þar sem framleiddir hafa verið dýrindis
ostar og ísar. Þorgrímur Guðbjartsson bóndi á Erpsstöðum segir eftirspurnina aukast með hverju árinu
og þróunina vera stöðuga í framleiðslunni. Búið er vinsæll áfangastaður ferðamanna á svæðinu og á
matarhátíð Búrsins á laugardag kynnir hann ýmsar nýjungar.
Þorgrímur Guðbjartsson, bóndi á Erpsstöðum, mun meðal annars kynna bananaís á matarhátíð Búrsins um helgina. Ljósmynd/Hari
með gestaostagerðar-
manni í sumar,“ segir
hann. „Við gerðum
alls kyns tilraunir með
ólívum og sólþurkuðum
tómötum meðal annars.
Við verðum með nokkr-
ar tegundir og eru
þetta fastir ostar, eins
og Havarti og Gouda,“
segir Þorgrímur.
„Einnig ætlum við að
bjóða upp á bananaís,
sem við höfum ekki
verið með áður. Ísinn
er alltaf vinsæll og þeir
sem við gerum úr villt-
um aðalbláberjum og
jarðarberjum hafa verið
hvað vinsælastir, segir
hann.“ Erpsstaðir í Búð-
ardal er vinsæll staður
fyrir þá sem eru á ferð
um svæðið. Hægt er
að koma við og kaupa
vörur beint af býlinu.
„Það er búinn að vera
stöðugur straumur í
sumar,“ segir Þorgrím-
ur. „Með mesta móti
frá því við opnuðum. Í
ágúst sér maður minna
af Íslendingum, en
bara í dag eru 50 til 60
manns búnir að koma
við,“ segir hann. „Mik-
ill meirihluti útlend-
ingar,“ segir Þorgrímur
Guðbjartsson bóndi að
Erpsstöðum í Búðardal.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Síðan verðum við með þetta hefðbundna gamaldags skyr. Ég var einmitt að leggja í það núna
svo það verði tilbúið fyrir helgina, það tekur 3 til 4 daga að verða klárt“, sagði Þorgrímur þegar
talað var við hann í upphafi vikunnar.
Það er búinn að
vera stöðugur
straumur í sumar
Nilfisk Þarf að uppfæra flotann?Bæta við eða byggja hann upp?Þekking og þjónusta þér til handa!
Fönix býður þjónustusamninga
við stofnanir og fyrirtæki!
Þjónu
stu-
verks
tæði
Fönix
býðu
r fría
ástan
dssko
ðun
á Nilf
isk
gólfþv
ottavé
lum
Matarbúrið
hefur opnað sérverslun með nautakjöt á Grandagarði 29
Grasfóðruð holdanaut af Gallowaykyni.
Við bjóðum upp á alla hluta af nautinu, frá grönum að hala.
Opið þriðjudaga til föstudaga 11-18
Laugardaga 12-17
Verið velkomin
www.facebook.com/Saelkerasinnep
culina@culina.is sími: 892 5320