Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 56

Fréttatíminn - 28.08.2015, Blaðsíða 56
 Í takt við tÍmann Erna markúsdóttir Tekur kindabjúgu og E. Finnsson- sósur með sér til Slóvakíu Erna Markúsdóttir er 23 ára stelpa úr Árbænum sem leggur stund á læknanám úti í Slóvakíu. Erna er formaður félags íslenskra læknanema þar í landi – en í borginni Martin eru hátt í sjötíu landar okkar í læknanámi. Í sumar hefur Erna starfað í Blóðbankanum og borðað gellur hjá mömmu sinni. Staðalbúnaður Ég er nú ekkert tískugúru en finnst gaman að eiga fallega hluti. Ég á það til að festast í að kaupa sömu hlutina sem mér finnst skemmtilegast að versla. Mér finnst til dæmis leiðinlegt að máta galla- buxur og á mjög takmarkað af þeim en á í staðinn mikið af yfirhöfnum, enda er auðvelt að máta þær. Ég kemst lítið í búðir úti, aðallega vegna tímaleysis og panta þar af leiðandi eiginlega allt af netinu. Ég er til dæmis dyggur viðskiptavinur Asos. Hugbúnaður Ég hef verið mikið að hlaupa sem er gott þegar mann vantar útrás og veðrið er gott. Ég hljóp hálft maraþon um daginn í Reykjavíkurmaraþoninu og fannst það djöfulli erfitt, ég var bara að hugsa um að drífa þetta. Ég skammaðist mín eiginlega að hafa pínt mig svona mikið þegar fréttir bárust af því hve margir voru lagðir inn eftir hlaupið. Læknanemarnir úti í Sló- vakíu fara allir á djammið á sama tíma og sama stað. Það er því ekki mikil hætta á að týna vinum sínum. Við þurfum ekkert að fara í partí á undan því bjórinn kostar bara 200 kall á barnum. Þegar við fáum frí ferðumst við oft til borganna í kring; Kraká, Prag, Búdapest og Vínar til dæm- is, það er svo ódýrt að ferðast með lest- unum. Á leiðinni aftur út til Slóvakíu er ég að fara til Portúgal á brimbrettanám- skeið sem kærastinn minn gaf mér. Við erum reyndar búin að heyra af hákarla- árásum þar þannig að ég er smá smeyk. Í vetur stefnum við svo á tvær ferðir til Austurríkis á skíði, með vinunum og með fjölskyldunni. Vélbúnaður Ég nota Macbook Air og iPad í skólanum og ég keypti mér iPhone 6 í sumar. Tölv- an mín er reyndar með einhverja pöddu í sér og reynir í gríð og erg að segja mér hvernig ég geti orðið milljónamæringur á einni nóttu. Ég hugsa að ég verði að láta kíkja á hana. Þau öpp sem ég nota mest eru Runkeeper og Runtastic og þar vel ég yfirleitt rödd sem heitir Julia og er með mjög fallegan hreim. Svo fór ég í smá nostalgíukast síðasta vetur og dánlódaði nýjasta Sims appinu. Vinir mínir urðu að fela iPadinn í prófunum svo ég hefði tíma til að læra. Aukabúnaður Við eldum mikið sömu réttina úti í Sló- vakíu svo það er gott að koma heim í ís- lenskan heimilismat. Mér finnst til dæmis æðislegt þegar mamma sýður gellur og kartöflur. Þegar ég fer frá Íslandi og út til Slóvakíu tek ég oft furðulega hluti með mér, til dæmis kindabjúgu og E. Finns- son-sósur. Ég er með fullt af gervi- þörfum sem ég hef búið mér til. Þegar líður á önnina myndast svo svartur markaður fyrir svona vörur á Facebook, fólk er að býtta á E. Finns- son og blandi í poka. Ég ferðast um á gömlu, ryðg- uðu reiðhjóli sem dugar mér fram og til baka frá spítalanum. Ég er meira að segja búin að mast- era tæknina við að hjóla og drekka kaffi um leið sem er nauðsynlegt þegar maður þarf að mæta sjö á morgnana. Ég er búin að vera þokkalega dugleg að ferðast í sumar og uppá- halds staðurinn sem ég fór á var Rauðasandur. Það er einn fallegasti staður sem ég hef komið á, alger náttúruperla. Ljósmynd/Hari Bio-tex þvottaefni og blettaeyðir Fötin haldast lengur eins og ný! Bio-tex þvottaefnin eru sérhönnuð fyrir litaðan, hvítan og svartan þvott. Leikum okkur! ÍSLE N SK A /SIA .IS N AT 73835 05/15 56 dægurmál Helgin 28.-30. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.