Fréttatíminn - 28.08.2015, Page 58
Mig hefur
alltaf
dreymt
um þetta
og þarf
að klípa
mig á
hverjum
degi.
„Við vorum báðar komnar með samning
áður en við útskrifuðumst svo við vissum
hvað við vorum að fara að gera,“ segir
Blær Jóhannsdóttir leikkona.
„Ég byrjaði í vor að æfa í mínu fyrsta
verkefni hjá Borgarleikhúsinu sem er hlut-
verk Nínu í Mávinum, sem er frumsýnt
í vetur og verður geðveik sýning,“ segir
hún. „Ég fæ því lengra sumarfrí og er ekki
enn byrjuð að æfa aftur, en Vala er byrjuð.“
„Ég mætti til vinnu núna í ágúst þar sem
ég er að leika í leikriti sem heitir At og er
fyrsta frumsýning vetrarins,“ segir Vala.
„Ég fer svo í Njálu og svo munum við leika
saman í Mamma Mia eftir áramót,“ segir
Blær. „Þar munum við leika bestu vinkon-
ur og við erum mjög vanar því. Við lékum
líka bestu vinkonur í lokaverkefninu okkar
í skólanum.“ „Við æfðum líka í vor því við
frumsýnum svo snemma,“ segir Vala.
„Mér líst ógeðslega vel á þetta. Ég var að
vinna sem barnapía í leikhúsinu og ýmis-
legt fleira eftir menntaskóla áður en ég fór
í leiklistarnámið, svo ég er vön húsinu. Það
sem er búið að koma mér mest á óvart er
hvað þetta hefur verið eðlileg aðlögun,“
segir hún. „Mig hefur alltaf dreymt um
þetta og þarf að klípa mig á hverjum degi.
Eldri leikararnir eru allir mjög rólegir yfir
því að fá nýja leikara og stundum finnst
mér eins og pressan snúist við hjá þeim.
Þeir vilja sanna sig fyrir nýja fólkinu eins
og við fyrir þeim. Annars eru bara allir
voða duglegir.“
„Mér finnst alveg klikkað að vera nýút-
skrifuð og vera allt í einu farin að leika á
móti Hilmi Snæ og Halldóru Geirharðs,“
segir Blær. „Þau taka okkur alveg ótrúlega
vel og það er frábær andi í Borgarleikhús-
inu. Ég upplifi þau ekki beint sem stjörnur
þegar ég er sjálf að vinna með þeim, en
þegar ég kem svo heim til mín þá stend
ég mig að því að segja öllum hvað þau eru
sniðug og frábær. Ætli það sé ekki að vera
star-struck,“ segir Blær Jóhannsdóttir.
Blær og Vala eru báðar í spunahópnum
Improv Ísland sem mun vera með vikuleg-
ar sýningar í Þjóðleikhúskjallaranum eftir
áramót, svo það er nóg að gera hjá þessum
efnilegu leikkonum. „Ég er svo að skrifa
nýja seríu af Þær tvær sem ég hef verið að
gera og svona ýmislegt annað,“ segir Vala
Kristín Eiríksdóttir.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Leikhús Nýútskrifaðar LeikkoNur fá tækifæri í BorgarLeikhúsiNu
Blær Jóhannsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir eru ný andlit á sviði Borgarleikhússins. Þeim finnst alveg klikkað að leika á móti
Hilmi Snæ og Halldóru Geirharðs. Ljósmynd/Hari
Þurfum að klípa
okkur á hverjum degi
Á hverju ári sjáum við ný andlit í bæklingum leikhúsanna. Nýútskrifaðir leikarar fá fyrstu tæki-
færin til að sanna sig á stóru sviðunum og standa jafnfætis þeim reynslumeiri og þekktari. Tvær
leikkonur sem útskrifuðust frá Listaháskólanum í vor eru að stíga sín fyrstu skref sem atvinnu-
leikkonur í Borgarleikhúsinu í vetur, Blær Jóhannsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir. Báðar eru þær
spenntar og ánægðar með nýja vinnustaðinn og segja leikarana taka sér með opnum örmum.
Bækur tvær Bækur ragNars JóNassoNar gefNar út á eNsku í ár
Breskur útgefandi segir lesendur Ragnars óseðjandi
Bókaforlagið Orenda Books, sem gefur
út bækur Ragnars Jónassonar í Bretlandi,
hefur ákveðið að flýta útkomu bókar hans,
Náttblindu, á ensku. Þar með koma tvær
glæpasögur hans út á sama ári ytra en slíkt
er afar fátítt.
Náttblinda átti upphaflega að koma út um
mitt næsta ár en hefur nú verið flýtt í ljósi
þess hversu vel Snjóblinda hefur gengið.
Á liðnu vori var Snjóblinda Ragnars mest
selda bókin á Kindle hjá Amazon í Bret-
landi og í Ástralíu. Fyrir skemmstu sagði
Independent að í henni birtist „heillandi
leiftur af myrkum og hrikalega ógnvekj-
andi sviðum mannlífsins.“ Þá samdi Ragnar
um útgáfu á bókum sínum í Bandaríkjun-
um við St. Martin’s Press sem einnig gefur
út bækur Arnaldar Indriðasonar og Yrsu
Sigurðardóttur.
Karen Sullivan, útgefandi Ragnars í Bret-
landi segir: „Það gerist ekki oft að tvær
bækur sama höfundar séu gefnar út á sama
ári í Bretlandi en í ljósi velgengni Ragnars
Jónassonar lá beint við að gera það og mæta
þeirri miklu eftirspurn sem er eftir nýrri
bók eftir hann. Þýðing á Náttblindu var til-
búin fyrr en við ætluðum og þegar Ragnari
bauðst aftur að vera með bók mánaðarins
hjá Goldsboro Books í London nú í desemb-
er (Snjóblinda var gefin út í takmörkuðu
upplagi í vor af því tilefni) var þetta engin
spurning. Bóksalar um allt Bretland eru
mjög áhugasamir og lesendur Ragnars eru
hreinlega óseðjandi! Fyrir óþekktan, er-
lendan höfund hafa viðbrögðin nánast verið
fordæmalaus. Auðvitað er mikill áhugi
á norrænum glæpasögum og íslenskum
þar með en við héldum að það tæki miklu
lengri tíma að koma Ragnari á kortið.“
Samkvæmt upplýsingum frá Veröld,
útgefanda Ragnars á Íslandi, er Ragnar
nýkominn heim af Edinborgarhátíðinni
þar sem uppselt var á samtal hans við
skoska glæpasagnahöfundinn Malcolm
Mackay. -hdm
Ragnar
Jónasson
gerir það
gott í Bret-
landi. Tvær
spennu-
sögur eftir
hann verða
gefnar út á
ensku í ár.
Bláu húsin v/Faxafen • S. 555 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun
Æðisleg
sundföt!
ÚTSALAN
ER HAFIN!
30-60% afsl.
af völdum
vörum.Undirföt
sundfö
t
náttföt
KRÁS götu-
markaðurinn
hefur verið opinn
í Fógetagarðinum
alla laugardaga
síðan 4. júlí og
verður í síðasta
skiptið í sumar
núna um helgina.
Á markaðnum
hafa margir af
þekktustu kokkum
landsins og fínustu
veitingastaðirnir
boðið upp á kræs-
ingar fyrir gesti og
gangandi. Þetta
er annað sumarið
sem markaðurinn
hefur verið starf-
ræktur og miðað
við aðsókn þá
verður að teljast
ansi líklegt að
KRÁS verði starf-
ræktur aftur að
ári. Í Fógetagarð-
inum er tilvalið
að ganga á milli
bása og kokka og
smakka það sem
upp á er boðið
njóta og deila hver
með öðrum, og
njóta síðustu daga
sumarsins.
Logi Pedro heldur
upp á afmæli
Hin dansvæna jaðarpoppsveit Retro
Stefson úr Austurbænum heldur
tónleika á Sæmundi í sparifötunum á
Kex Hostel næstkomandi laugardags-
kvöld kl. 21. Það hefur ekki farið mikið
fyrir Retro Stefson undanfarið og hefur
sveitin spilað örfáa tónleika á þessu
ári. Meðlimi sveitarinnar hafa þó ekki
setið með hendur í skauti þar sem þau
vinna hörðum höndum að sinni fjórðu
breiðskífu, Scandinavian Pain. Fyrsta
smáskífan af plötunni leit dagsins ljós
í mars síðastliðnum og er hún
við lagið „Malaika“. Tónleikar
Retro Stefson á Kex Hostel eru
afmælistónleikar í þeim skilningi
að bassaleikarinn Logi Pedro
Stefánsson fagnar 23 ára afmæli
sínu á laugardaginn. Hljóm-
sveitin mun leggja allt að veði til
þess að gleðja afmælisbarnið og
að sjálfsögðu fá tónleikagestir að
njóta þess. Ókeypis er inn.
Frímann á RÚV
Í haust hefja göngu sína nýir
þættir sem kallast Frímínútur
á RÚV. Um er að ræða stuttar
fréttaskýringar í anda 60
Minutes þar sem Frímann
Gunnarsson mun
kryfja stóru málin til
mergjar. Þættirnir
verða á dagskrá
á föstudögum
og Frímann í
fantaformi, enda
loksins kominn aftur
í sjónvarp allra lands-
manna. Þar sem hann
á heima.
Danskir dagar á RIFF
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík,
verður sett í 12. sinn þann 24. september. Að
þessu sinni verður sérstakur fókus á hátíðinni
á danska kvikmyndagerð og von er á nokkrum
fjölda kvikmyndagerðarmanna frá Danmörku
af því tilefni. Verður meðal annars blásið til
umræðna um uppganginn í danskri kvikmynda-
og sjónvarpsþáttagerð en segja má að Danir
hafi verið í fararbroddi Norðurlandaþjóðanna
um nokkurt skeið á þessu sviði. Meðal mynda
sem frumsýndar verða á hátíðinni af þessu
tilefni er nýjasta mynd Susanne Bier, En chance
til, og nýjasta mynd Bille August, Stille Hjerte.
Síðasti KRÁS markaðurinn
58 dægurmál Helgin 28.-30. ágúst 2015