Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2014, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.08.2014, Blaðsíða 8
8 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Færni til framtíðar er handbók um örvun hreyfifærni barna úti í nánasta umhverfi. Bókin á erindi við alla sem hafa áhuga á því að efla hreyfingu og hreyfifærni barna og nýta til þess náttúruna okkar. Bókin fæst í verslunum Eymundsson og hjá höfundi í síma 898-2279 eða á netfanginu sabinast@simnet.is Forvarnadagurinn var haldinn um allt land í grunn- og framhaldsskólum þann 2. október sl. Á kynningarfundi í Ölduselsskóla, tveimur dögum áður, kynntu nemendur og forsvarsmenn skólans og fulltrúar þeirra aðila sem standa að for- varnadeginum þar árangurinn sem náðst hef- ur á undanförnum árum. Á kynningarfundinn mættu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Dorrit Moussaieff, forsetafrú, Dagur B. Eggerts- son, borgarstjóri, Helga G. Guðjónsdóttir, for- maður UMFÍ, Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Bragi Björnsson, skátahöfðingi. Valur Ragnarsson, forstjóri Medis og forsvarsmaður Actavis á Íslandi, flutti ávarp en fyrirtækið hefur stutt Forvarnadaginn með myndarlegum hætti. Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélag Ís- lands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis. Forvarnadagurinn var haldinn að þessu sinni í níunda sinn í grunnskólum landsins og í fjórða sinn í framhaldsskólum. Á þessum degi ræða nemendur í skólunum um hug- myndir sínar og tillögur varðandi nýjungar og breytingar á æskulýðs- og íþróttastarfi, fjölskyldulífi og öðrum þeim þáttum sem eflt geta forvarnir. Hugmyndir og tillögur nem- enda eru svo teknar saman og settar í skýrslu sem birt á vefsíðu dagsins, www.forvarna- dagur.is. Þar gefst nemendum kostur á að taka þátt í ratleik á vefsíðum ungmenna- og íþróttasamtaka og eru þar verðlaun í boði. Upplýsingar um daginn eru einnig aðgengi- leg á Fésbók (www.face.com/forvarnadagur) Meginmarkmið Forvarnadagsins er að vekja athygli á því hvaða ráð hafa reynst best til að koma í veg fyrir að ungmenni verði áfengi og fíkniefnum að bráð. Þar ber hæst þátttöku í formlegu íþrótta- og tómstunda- starfi og samverustundir með fjölskyldunni. Á Íslandi hefur náðst afar góður árangur í baráttu gegn notkun áfengis og tóbaks á grunnskólastigi. Það þakka menn ýmsum þáttum. Margvíslegt tómstundastarf hefur mikið gildi í þeim efnum, svo sem starf skáta, ungmennafélaga og íþróttahreyfingarinnar. Jafnframt skiptir afar miklu máli að foreldrar ræði við börnin sín og unglinga um valkost- ina í frístundastarfi og þá staðreynd að líkurn- ar á að áfengisnotkun verði síðar vandamál minnka stórlega með hverju árinu sem ungl- ingar draga það að bragða áfengi. Nýlegar athyglisverðar rannsóknir á íþróttastarfi ungmenna benda til að þær hafi aðeins forvarnagildi ef þær eru stundaðar með formlegum og skipulögðum hætti. Þetta ætti að vera unglingum og öðrum sem hlut eiga að máli umhugsunarefni og gefa þeim aukna ástæðu til að stunda íþróttir innan ramma íþrótta- og tómstundafélaga. Rannsóknir á undanförnum árum hafa líka leitt þetta í ljós: – Jákvæð þróun með minnkandi notkun áfengis og tóbaks heldur áfram í íslensk- um grunnskólum. – Íslenskir grunnskólanemar standa mjög vel í alþjóðlegum samanburði í þessum efnum. – Veruleg aukning verður í notkun á áfengi á fyrsta ári í framhaldsskóla og telja marg- ir nemar að foreldrar láti það ótalið að þau noti áfengi eftir að þau eru komin í fram- haldsskóla. – Notkun á áfengi og tóbaki hefur engu að síður farið heldur minnkandi í íslenskum framhaldsskólum á undanförnum árum. Forvarnadagurinn haldinn í níunda skipti: Góður árangur í baráttu gegn notkun áfengis og tóbaks

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.