Dagrenning - 01.06.1953, Síða 5

Dagrenning - 01.06.1953, Síða 5
Hjá hverjum þeim manni, sem kornið hefir auga á þetta hlýtur að vakna spurningin: Hvai endar þetta? Og ennfremur: Hvað er hægt að gera til þess að stöðva þetta glæfra- spil, eða er ekkert hægt að gera? Margir munu segja, að það standi auðvitað kirkjunni næst að reyna að hafa hér einhver áhrif. En hvað er kirkjan? Er hún prestarnir? Ef þeir eru „kirkjan" er þaðan lítillar samtaka forustu að vænta, því prestarnir tilheyra velflestir ein- hverjum hinna gömlu stjórnmálaflokka, og eru þannig bundnir í báða skó. Ef hins vegar „söfnuðurinn“ er kirkjan þá eru safnaðarlimimir einnig velflestir á einn eða annan veg ánetjaðir einhverjum stjómmála- flokknum og greiða þeim atkvæði án þses að hugsa nokkru sinni um afleiðingar þess fvrir hin kristnu viðhorf. Stjórnmálaflokkarn- ir hafa því nú þegar, gengið svo hreinlega frá „kirkjunni", að hún getur ekkert aðhafst í þessu efni, enda mun hún ekki gera það. Á þá að láta reka á reiðanum? Á þá ekkert viðnám að veita en lofa hinum heiðnu stjórn- málasamtökum að leiða fólkið lengra og lengra út í ófæruna? Því verður hiklaust að svara neitandi. Eina lausn málsins, sem til er, er þess vegna sú, að þeir menn í þjóð- félaginu, sem sjá þessa hættu og skilja hvert stefnir, taki höndum saman um að vekja hina almennu borgara til skilnings á því hvert stefnir og fá þá til að rumska, og ef mögulegt er til að hefjast handa, f\’rst til að veita við- nám og síðan til að snúa við á óheilla og ógæfubrautinni. Við „flokkana" og forustu- lið þeirra er alveg vita gagnslaust að revna að tala. Nú er mínu skaplyndi þannig farið, að þegar ég er orðinn sannfærður um einhvem hlut þá fylgi ég þeirri sannfæringu hver sem í hlut á, og hvort sem það er „verra" eða „betra“ fyrir sjálfan mig persónulega eða ekki. Ég gerði það þegar ég fylgdi Alþýðu- flokknum og ég geri það nú, eftir að ég hefi gert mér ljósar villur hans og veilur og sagt skilið við hann að fullu. Sú er nú sannfæring mín, að þjóð minni verði ekki bjargað frá þjóðemislegri, fjárhags- legri og menningarlegri glötun nema það tak- ist mjög íljótlega að hefja um land allt kiisti- lega þ/óðarvakningu og þeirri vakningu fylgi öflug samtök. Stofnað verði til eins- konar kristilegrar þjóðfylkingar, sem beinir hugum landsmanna burt frá sundr- ungarstarfi því, sem allir flokkar reka nú, að heilbrigðu samstarfi í þjóðfélagsmál- um á kristilegum og þjóðlegum grundvelli. Ef enginn gerist til þess, að ganga fram fvrir skjöldu í þessu efni, ef enginn þorir að hefja upp raust sína og tala hin nauðsynlegu varnaðarorð til þjóðarinnar, þá fær hún al- drei tækifæri til að sýna í verki vilja sinn. Það sem því vakir fyrir mér með framboði mínu, er að gefa þeim íslenzkum kjósendum, sem vilja sýna vilja sinn í verki og aðhyllast þessar skoðanir, tækifæri til þess. Fyrir mer vakir ekki að stofna fimrnta flokkinn til viðbótar þeim, sem fyrir eru, til ranglætisiðkunnar og flokkskúgunar held- ur hitt að gefa þjóðinni tækifæri til þess að skapa sér grundvöll að heilbrigðum, kristi- legum samtökum, svo hægt sé að hverfa burtu frá flokksþrætum og foringjadýrkun að kristilegri og þjóðlegri lífsstefnu. Mér er það ljóst, að Lýðveldisflokkurinn er ekki slík kristileg þjóðfylking enn sem komið er. Hann er þó spor í þá átt, því fram- bjóðendur hans eru frjálsir menn og stefnu- skrá hans miðar að því að leysa fjötrana af þjóðinni. * Þegar framboð mitt var ráðið gerði ég nokkra grein fyrir því í blaðinu „Varðberg“ hversvegna ég fylgdi Lýðveldisflokknum. Sú greinargerð er þannig og þykir mér rétt að hún birtist einnig hér: DAGRENNING 3

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.