Dagrenning - 01.06.1953, Page 21

Dagrenning - 01.06.1953, Page 21
notaði þessi orð í kenningu sinni og talar jafnan um andstæður: Líf og dauða, ljós og myrkur, trú og vantrú, frelsun og glötun. Þessar andstæður eiga að fvlgjast að í hinum kristna boðskap. Það er ekki réttmætt í krist- inni prédikun að slíta þetta úr samhengi og rnynda sjálfstæða kenningu um myrkrið, dauðann, vantrúna, glötunina eða helvíti, því fagnaðarerindið segir frá baráttu, harð- vítugri viðureign hins illa og góða, ljóssins og myrkursins, lífsins og dauðans. HIÐ NÝJA HELVÍTI. Sr. J. A. vill aftur á móti byggja upp nýja kenningu um helvíti á sögunni um ríka manninn og Lazarus, en bara ekki á þeim boðskap, sem sagan flytur (í Lúk. 16. kap.). Ríki maðurinn segir að í helju sé kvalastað- ur, en sr. J. A. telur það ekki vera, heldur sé þar um skóla að ræða og gætir alls ekki að því sem Abraham segir í dæmisögunni: Að svo mikið djúp sé staðfest milli sælu- og vansælustaðarins að þeir, sem vilja fara á milli Jieirra, komizt ekki þar yfir um. Þar sem hann vill nú nota þessa dæmisögu, sem kenningargrundvöll, verður hann að halda hinni fyrri iðju áfram: Fela orð Jesú þar sem honum finnast þau óviðeigandi. Við þessu má alltaf búast hjá frjálslyndum guðfræðing- um, en aldrei kann maður að vita hvað þeir fella næst. Þar af leiðandi geta þeir ekki láð guðleysingjunum þótt þeir „felli“ Guð ein- faldlega og blátt áfram. Það er aðeins eitt skref áfram á þeirri braut, sem frjálslyndu guðfræðingarnir eru á. Mig furðar á að sr. J. A. skuli ekki hafa fellt kenninguna um helvíti úr gildi og tekið upp miðaldakenninguna um hreinsunareld- inn og að í hann færu þeir, sem ekki væru í húsum hæfir í Guðs ríki og samfélagi heilagra á himni eftir andlátið. Því hreinsunareldur- inn var sannarlega skóli þrauta og þjáninga. E. t. v. er hann hræddur við orðið e. t. v. finnst honum hið gamla orð vera kjarnmeira og betra heiti á andlegum skóla eftir and- látið, enda má hann í því efni fylgja sínum smekk fyrir mér, því ég hefi enga trú á slík- um skóla. Tel Biblíuskóla á jörðinni eða kirkjulega skóla miklu heppilegri til að búa menn undir lífið, bæði þessa heims og annars. Fáskrúðug finnast mér rök hans fyrir fyrir- bænarskyldu lifandi manna gagnvart hinum framliðnu. í þessu efni blasir hin rómversk- kaþólska leið beinna við og er auk þess feg- urri og fjölbreyttari, en hún er sú að ákalla Heilaga Guðs Móður og alla aðra dýrðlinga Drottins á himni og biðja um að Jieir biðji fyrir oss. Ef til vill sér hann það síðar hví- líkur vinningur það væri að fórna öllum önd- um, óholdguðum, hálfholdguðum og hold- guðum til þess að komast í samband við hinn hreina heim allra Drottins dýrðlinga. Að vísu hafnar vor evangeliska kirkja einnig þeirri leið að ákalla hina helgu menn og konur (sjá Ágsborgarjátninguna 21. grein) en hvetur oss til að minnast þeirra til þess að vér megum líkjast þeim í trú og góðum verkum. María mey er líka sígild fyrirmynd kristinnar kirkju og allra kristinna manna. „Sjá, ég er ambátt Drottins" segir hún. Mættu lútherskir guð- fræðingar vita betur hvað þeir eiga að segja er þeir tala um hennar heilaga líf, þjónustu og þjáningu. Og hollara væri kirkjunni að gefa meiri gaum að lífi hinna heilögu manna og kvenna en að styðja sig við hálfholdgaða anda og vofur. Sú kirkja, sem þarf á slíkri stoð að halda, er í sannleika veik. Sr. Jón Auðuns finnst það miður að menn skuli hafa hellt fyrirlitningu yfir umrnæli W. Stead’s að það sé sæla himnaríkis að tæma helvíti. Ég get ekki láð mönnum þótt þeir skopizt að þessu og spyrji hvort þarna hafi ekki einhver misskilningur komizt að, svo þeir, sem að tæmingunni vinna, kunni að hafa tæmt eitthvað úr því „upp á jörðina" DAGRENN I NG 19

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.