Dagrenning - 01.06.1953, Síða 31
Andl k ©inmúiMSta ráðsitefean
í Lond on
t—■
í júnímánuði 1952 boðaði brezka stjómmálatímaritið Intelligence Digest tU
mikUIar andkommúnistiskrar ráðstefnu í London. Mættu þar margir þeirra
manna á sviði heimsstjómmálanna sem hafa gert sér fulla grein fyrir hinni
andlegu pest, sem kommúnisminn flytur með sér hvert sem hann berst, og
ekki er síður hættuleg hverri þjóð en styrjaidir þeirra og áróður á sviði féiagsmála
og fjármála.
í júlíhefti Intelligence Digest 1952 birtist eftirfarandi frásögn af ráðstefnunni,
en hennar mun hvergi hafa verið getið áður í íslenzkum blöðum né timaritum
en þau hafa flest getið aUra kommúnistiskra funda og þinga, sem haldin hafa
verið. Má af þessu m. a. marka sljóleika og andvaraleysi blaðanna, og hina
óbeinu þjónustu þeirra við kommúnismann.
L_________________________________________________________________________>
Ráðstefnan, sem Intelligence Digest stofn-
aði til, var sótt af fólki frá mörgum lönd-
um heims, þar fluttu ávörp nokkrir af
fremstu sérfræðingum í sínum greinum.
Ræðumenn og spyrjendur úr áheyrendahópi
létu í Ijós mikla þekkingu á þeim málum,
sem rædd voru.
DAUÐAÞÖGN BREZKU BLAÐANNA.
Blöð íhaldsflokksins og Frjálslynda flokks-
ins — sem hafa öllu að tapa, ef marxistar
sigra — hundsuðu ráðstefnuna næstum al-
gerlega, enda þótt til hennar hefði verið
vandað, hún væri þýðingarmikil og hefði
mikið fréttagildi. Þessi furðulega staðreynd
lýsir því, hversu ástandið er alvarlegt. Við
getum verið örugg um, að ef einhver af hin-
um frægu fyrirlesurum hefði stigið drukk-
inn í ræðustólinn (einkum ef hann hefði
verið biskup), hefðu hér um bil öll blöðin
sagt frá því.
Nú var því ekki þannig farið, að blaða-
menn væru ekki viðstaddir. Þeir voru þar.
Það var augljóst, að ritstjórarnir kærðu sig
ekki um áð segja frá ráðstefnunni. Þetta er,
í sjálfu sér, eitt af þeim viðfangsefnum,
sem þeir, er sátu ráðstefnuna, verða að levsa.
Eigi að síður var mikið um ráðstefnuna
rætt í frönskum, þýzkum og austurrískum
blöðum. Kommúnistablöðin vom mjög
óttaslegin og alvöruþunginn sem yfir ráð-
stefnunni hvfldi, virtist orka mjög á þau.
Vestun'eldunum stendur ekki einungis
ógn af fárlegri hættu á herðnaðarlega svið-
inu og syndaflóði marxistiskrar hugmynda-
fræði, heldur eru þau einnig sýkt af lam-
andi sinnuleysi og sjúklegum hugmyndum,
sem rugla hugsanir okkar og framkvæmdir.
HIN ALVARLEGA AÐVÖRUN
OTTÓS ERKIHERTOGA.
Ottó erkihertogi, sem hafði mikil áhrif á
ráðstefnuna og allir viðstaddir álitu afburða
hæfileikamann, sagði við ritstjóra Intelli-
gence Digest að ráðstefnunni lokinn, að til
þess að mæta þeirri hættu, sem yfir okkur
DAGRENNING 29