Dagrenning - 01.06.1953, Blaðsíða 37
Ánægjulegt er að verða stöðugt var við
kristið, biblíulegt sjónarmið í grein Chesnuts.
Hann hefir valið þessu kjarnalími nafnið
Kólossulögmálið. Hann hefur valið þetta
nafn af tveim orsökum. í fyrsta lagi, vegna
þess að „colossal“ þýðir stórkostlegur og
þetta er vissulega stórkostlegt, en í öðru lagi
bendir höf. á að afl þetta er þekkt fyrir ná-
lega 2000 árum og á það rninnst
í bréfi Páls til Kólossumanna (1. kap.
16—17.): „Enda var allt skapað í Honum í
himnunum og á jörðinni hið sýnilega og hið
ósýnilega, hvort sem eru hásæti eða herra-
dómar eða tignir eða völd. Allir hlutir eru
skapaðir fyrir Hann og til Hans. Og sjálfur
er Hann fyrir öllu og af Honum er öllum
hlutum saman haldið.1'1)
Sá möguleiki, að seinna verði ef til vil
fundið lögmál, sem sýnir áþreifanlega
og hlutfallslega útreiknað þetta stórkostlega
afl, þarf ekki á neinn hátt að ríra gildi þessarar
ritningargreinar, sem við höfum vitnað í, og
eignar Kristi þennan bindandi kraft, kjama-
límið. Það mikilvægasta er, að Chesnut vekur
athygli okkar á að smátt og smátt höfum vér
komist að raun um, að Biblían þekkti þennan
undramátt fyrir 2000 árum.
Enginn á dögum Páls mundi hafa hugsað
að halda yrði saman sandi sjávarins eða klett-
um fjallanna. Það sem Páll segir þama í
bréfinu til Kólossumanna fær þess vegna
meiri þunga og sterkari lit, þegar hafður er
í huga hinn guðlegi innblástur Ritningar-
innar.
Margir em þeir sem láta mjög hátt um þá
skoðun sína, að Biblían sé full af mótsögn-
um. Áður fyrr, á dögum vantrúarinnar, var
ég vanur að vitna einnig í slíkar mótsagnir.
Þegar ég varð kristinn og kynni mín af
1) í greininni sem hér er þýdd eru ensku orðin:
„and by Him all things consist" (correct translation,
hold together). í ísl. Biblíunni er þetta öðruvísi þýtt.
Biblíunni jukust, þá hurfu þessar mótsagnir
hver á eftir annarri mjög skjótlega.
Kjamafræðingarnir hafa skýrt frá skemmti-
legri tilraun: Vegið er eitt pund af mjólk og
eitt pund af vatni, og því helt saman — ná-
kvæmlega tvö pund af blöndu er árangur-
inn. Hér eru engar mótsagnir. En Ches-
nut vekur athygli okkar á þvi, að ef við reyn-
um að blanda saman kjömunum á þennan
sama hátt, þá verður annað uppi á teningn-
um. Af tölum Chesnuts sjáum við að eðlis-
þyngd prótóna er 1.0076, og neutróna 1.0089;
leggið þessar tölur saman og útkoman ætti
að vera 2.0165. Seinni talan ætti þá að vera
eðlisþyngd hins nýja kjarnahluta, sem við
getum kallað deuteron. En útkoman verður
sú, þegar prótónum og neutrónum er bland-
að saman, að þá verður þunginn 2.0142 en
ekki 2.0165 e’ns °S vænta mátti.
Enginn þungi hefir farið forgörðum með
því að einhver lofttegund hafi horfið eða
nokkuð þessháttar, en kljúfið deuteronið í
prótónur og neutrónur aftur og hvert þeirra
mun ná aftur sínum fvrri þunga. Kjarna-
fræðingar töldu þetta í fvrstu mótsögn, sem
ekki fengi staðist, þar til það upplýstist betur.
Nú er skýringin sú að þegar prótónumar
og neutrónurnar sameinast til að verða að
deutrón, og sé kjarninn heilsteyptur eins og
Guð gerði ráð fyrir að hann væri, þá losnar
ósjálfrátt eitthvað af massanum og breytist í
kjamalím, þennan undra kraft, sem heldur
kjarnanum saman.
Og þannig er það Hann, sem skapað hefir
alla hluti, heldur öllum hlutum við og mun
einhvemtíma gera okkur eins ljóst og við
æskjum, vald sitt og hæfileika til að stjóma
öllum hlutum!
Hr. Chesnut vitnar í samtal einhverra
franskra vísindamanna í París 1869. Það var
þá sagt fyrir, að innan hundrað ára mundu
vísindin bókstaflega hafa komizt að ein-
hverju leyti inn á svið Guðs. Þessari fullyrð-
DAGRENNING 35