Reykjalundur - 01.06.1947, Blaðsíða 16
Græddur er geymdur eyrir
TRYGGIÐ framtíð yðár og þjóðfélagsins með því að SPARA sem
mest af tekjum yðar og ávaxta sparifé í TRYGGUM VAXTA-
BRÉFUM. Þeim fjölgar stöðugt, sem notfæra sér þau hlunnindi,
sem fólgin eru í því að ávaxta fé í 1. flokks vaxtabréfum.
BANKAVAXTABRÉF LANDSBANKANS liafa nú í meir en
40 ár verið viðurkennd ein bezta og tryggasta eign, sem völ er á.
BANKAVAXTABRÉF LANDSBANKANS eru tilvalin til tæki-
færisgjafa handa börnum og ungu fólki, vegna þess að þau veita
gjafarmóttakandanum aukna öryggistilfinningu og glæða skilning
lians á gildi peninga.
BANKAVAXTABRÉF LANDSBANKANS ‘eru fyrirliggjandi í
stærðum allt niður í 100 krónur.
AUK bankavaxtabréfa eru oftast fáanleg önnur TRYGG VAXTA-
BRÉF, útgefin af opinberum aðilum.
KAUPÞING LANDSBANKA ÍSLANDS er stofnað í þeim tilgangi
að greiða fyrir verðbréfaviðskiptum og gera þau sem öruggust,
almenningi til hagsbóta. Látið einhvern hinna 14 kaupþingsfélaga
annast iðskipti yðar á kaupþinginu, gegn tilskilinni þóknun, i/o%
af upphæð viðskiptanna. Látið kaupþingsfélaga leiðbeina yður um
val á vaxtabréfum, sem bezt henta yður.
VERÐBRÉFADEILD Landsbanka íslands lætur í té allar upp-
lýsingar um vaxtabréf og kaup og sölu þeirra á kaupþinginu.
Landsbanki íslands