Reykjalundur - 01.06.1947, Blaðsíða 42

Reykjalundur - 01.06.1947, Blaðsíða 42
að kenna þremur börnum skrift og reikn- ing og lestur. ,— Allt innanhúss var með myndarbrag, börnin prúð og vel uppalin, og konan hin elskulegasta. En einn daginn fer konan að spyrja mig hvaðan ég sé. Ég svara því. Þá spyr hún mig hvar ég hafi verið áður en ég kom til Reykjavíkur. Ég kveðst hafa verið á heilsu- hælinu á Vífilsstöðum. Ég sé að konunni bregður mikið, og nú slær óþægilegri þögn yfir um stund; loks segi ég: „Þér hefðuð kannske ekki tekið mig, ef þér hefðuð vitað að ég hefi verið í Vífils- staðahælinu?“ „Nei. það hefði ég ekki gert,“ svarar hún og bætir svo við. „Hafið þér vottorð frá lækninum.“ „Ekki skriflegt,“ svara ég. „En ég býst við að geta fengið það,“ bætti ég við. Með sjálfri mér varð ég dálítið særð, en lét ekk- ert á því bera. Samt gat ég ekki átt við, að reyna til þess, að fullvissa hana um að af mér stafaði engin hætta. Hún spurði mig hve lengi ég hefði dvalið í hælinu. Ég svar- aði því samvizkusamlega. En það bætti sízt úr, því að tíminn var langur, skipti árum. Ég hafði háð svo harða baráttu, að sú hugsun hefði orðið mér þungbær, að ég yrði þess valdandi að aðrir þyrftu fyrir mitt kæruleysi, að heyja sams konar baráttu. Ég vissi það sjálf, að ég hefði aldrei tekizt þetta á hendur ef hætta hefði stafað af mér. Frúnni var vorkunn. Húh gat ekki vitað það og ég gerði enga tilraun til þess að koma henni í skilning um það. Það varð svo að samkomulagi, að ég kæmi ekki næsta dag og ekki fyrr en ég hefði vottorðið í höndunum. Ekki stóð á vottorðinu. Ég fór með það til frúarinnar. Hún las það vandlega og sagði svo, að nú gæti ég verið áfram. En ég hafði misst alla löngun til að vera áfram. Ég hugsaði sem svo, að yrðu þessi börn einhvern tíma veik af þessum sjúk- dómi, yrði mér kennt um. Mér féll þetta illa. Eftir þetta sneyddi ég hjá börnum lengi vel. Samt voru undan- tekningar. Það voru ekki allir hræddir við þá, sem komu frá Vífilsstöðum. Sumarið eftir var ég austur í sveit. A heimilinu voru mörg böm. Af því að ég gat ekkert unnið nema það allra léttasta, bað húsfreyjan mig að þvo börnunum á kvöldin og koma þeim í rúmið, og segja tveim elztu börnunum til í lestri. Þetta fólk vissi hvar ég hafði verið. En það var ekkert hrætt við mig og bað ekki um skriflegt vottorð. — Börnin voru ákaflega hænd að mér, allt of hænd, ef ég hefði verið hættuleg. Oft datt mér í hug: Ef þessi börn verða einhvern tíma berklaveik, þá verður þér kennt um, enda þótt þú eigir enga sök á því. Svona hugsanir eru ekki neitt þægilegar. Sem betur fer er ég svo lánssöm, að ekkert þessara barna hefur nokkru sinni veikzt af þessum sjúkdómi. Ég var þarna í tvö sumur. Þarna safnaði ég þrótti og náði mér eftir hina langvinnu baráttu. Fólkið bar mig á höndum sér og ekki var ég þjökuð af erfiði, og þá skorti sízt að ég væri feit og liti vel út. Ég held, að hefðu sjúklingarnir, sem komu af heilsuhælinu, mætt slíkum skiln- ingi og notið svipaðrar umhyggju og ég naut hjá þessu ágæta fólki, hefðu færri komið í annað sinn til veru í heilsuhælið, og þá líka færri fallið í valinn. Ungur maður, sem vildi fyrir hvern mun sleppa við herþjónustu, ákvað að látast vera nærsýnn. Þegar sjón hans var athuguð, starði hann sljóum augum á lækn- inn. — Getið þér lesið venjulega prentstafi?" spurði læknirinn. — Nei — svaraði ungi maðurinn. — Getið þér lesið, það sem letrað er á spjaldið þarna á veggnum? — — Hvaða vegg? — spurði ungi maðurinn. — Hversu mikið kostar dánarauglýsing i þessu lilaði? — 60 aura millimetrinn. — Guð minn góður; og bróðir minn, sem er nýdá- inn, var hvorki nteira né minna en þrjár álnir. — .24 Reykjalundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Reykjalundur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.