Reykjalundur - 01.06.1947, Side 47

Reykjalundur - 01.06.1947, Side 47
Á saumastofunni. legar.) Frá þriðju vikunni að telja, lifði sjúklingurinn eingöngu á hrámeti, og það var ekki fyrr en að 8 vikum liðnum, sem ég leyfði henni að fara að borða gróft brauð, kartöflur og soðið grænmeti, en lét hana þó þorða eingöngu hrámeti tvo daga í viku. Hanní var farið að þykja allur þessi matur svo góður, að öll fjölskyldan gat ekki stilit sig um að reyna hann, og það endaði m.eð því, að kjöt eða fiskur sást þar yfirleitt ekki á borðum. Um þetta leyti var bróðir Hanní- ar í menntaskóla, og heyrði þá hjá kennara sínum í lífeðlisfræði, að grænmeti og ávextir hefðu ekkert næringargildi, vegna þess að í því væri lítið annað en vatn, en fullgilda eggjahvítu væri aðeins að fá í kjöti. Með hálfum huga bað hann um orðið og skýrði með svo miklum sannfæringarkrafti frá reynslu sinni heima, að kennarinn stóð uppi rammvilltur út af þessum árekstri milh vís- inda og reynslu. ( Hinn 17. júní, eða eftir 11 vikur, varlhægt að fara með Hanní út í garð í legustól. í lok mánaðarins fór ég með hana í bifreið minni til sjúkrahússins til þess að taka röntgen- myndir af hinum sjúku hðamótum. Áður en 8 vikur voru liðnar, höfðu bólgurnar á hend- inni opnazt, svo að gröfturinn vall út. Við það linuðust þrautirnar í hendinni, og það var hægt að gera sér vbnir um, að hinir sýktu hlutar beinsins mundu losna frá og ganga út. Og röntgenmyndirnar sýndu, að beinflísar voru einmitt byrjaðar að losna frá. Mestar áhyggjur hafði ég út af berkla- hreiðri með bólgu á hægra fæti. Ég setti gipsumbúðir um fótinn. tók þær af eftir mánuð, og hann læknaðist að fuhu, án þess að bólgan opnaðist. Hendurnar reyndu meira á þolinmæðina. Sjúklingurinn hélt áfram sama mataræðinu og notaði sól- og ljósböð. Henni fór stöðugt fram. Ég sá hana einu sinni í mánuði. For- eldrar hennar spurðu mig, hvort þau ættu að dvelja með hana í háfjallalofti um tíma, en ég svaraði þeim því, að mataræðið hefði meiri þýðingu en háfjallaloftið. Og næsta sumar, í júlímánuði, gat Hanní svo farið í sumarfrí með bræðrum sínum. Ári sxðar, sumarið 1929, tók hún þátt í margra klukku- tíma fjallgöngum í Alpafjöllunum. Árið 1935 er Hanní mjög heilsugóð, iðkar fjallgöngur og er líkamlega sterkari en jafnöldrur hennar, sem lifa á kjöti. (Björn L. Jónsson þýddi.) Reykjalundur 29

x

Reykjalundur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.