Morgunblaðið - 10.02.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
20%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í febrúar.
Lyfjaauglýsing
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Óskað hefur verið eftir því að sveitarstjórn
Skútustaðahrepps beiti sér fyrir því að jörðin
Hofsstaðir í Mývatnssveit verði aðeins seld þeim
sem hyggst nýta jörðina til landbúnaðar, með
vísan til ákvæða í gildandi aðalskipulagi.
Jörðin komst í eigu ríkisins sl. haust eftir að
ábúendur höfðu fallið frá, tveir rosknir bræður,
en þeir áttu enga nána ættingja og höfðu ekki
gert ráðstafanir um eignarhaldið í erfðaskrá.
Í fundargerð Skútustaðahrepps eru bréfrit-
ara, Þór Kárasyni frá Garði í Mývatnssveit,
færðar þakkir fyrir erindið og bent á að sams-
konar sjónarmiðum hafi í ársbyrjun verið komið
á framfæri bréflega við forsætis- og fjármála-
ráðherra, auk þingmanna kjördæmisins. Þar
kom m.a. fram sú skoðun sveitarstjórnar að mik-
ilvægt væri að Hofsstaðir yrðu áfram nýttir í
þágu atvinnu- og menningarlífs í Mývatnssveit.
Við ákvörðun um framtíðareignarhald jarðar-
innar yrði sérstaklega horft til mikilvægis henn-
ar. Ríkisvaldið ætti sem eigandi að tryggja að
svo yrði um ókomna framtíð.
Jón Óskar Pétursson, sveitarstjóri Skútu-
staðahrepps, segir engin viðbrögð frá stjórn-
völdum komin enn við þessu bréfi hreppsins, ut-
an þess að einn þingmaður hefði svarað:
„Móttekið, takk.“
Jón Óskar segist vita um einn aðila sem vilji
leigja jörðina og hans áform samrýmist hug-
myndum sveitarstjórnar um nýtingu Hofsstaða.
Hofsstaðir verði nýttir í landbúnaði
Ríkið eignaðist Hofsstaði í Mývatnssveit og vill selja Sveitarstjórnin vill að ríkið tryggi að
jörðin verði nýtt í þágu atvinnu- og menningarlífs Ekkert svar komið enn frá stjórnvöldum
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Hofsstaðir Ýmis hlunnindi fylgja jörðinni, m.a. laxveiði, og reynt var að finna heitt vatn.
Hofsstaðir í Mývatnssveit eiga
sér langa sögu og kenningar
verið uppi um búsetu þarna frá
landnámi. Miklar fornleifarann-
sóknir hafa farið fram á jörð-
inni, allt frá árinu 1908. Er m.a.
talið að þarna hafi verið vík-
ingaaldarbær, kirkja og kirkju-
garður. Mikil laxveiðihlunnindi
fylgja jörðinni og fyrir nokkrum
árum var borað eftir heitu
vatni. Þær boranir skiluðu ekki
miklu í það skiptið.
Uppgröftur
frá 1908
BÚSETA FRÁ VÍKINGAÖLD
Álft kúrir í kuldanum við Bakkatjörn á Seltjarn-
arnesi og goggurinn er að mestu falinn undir
væng. Hitastig var við frostmark og norðangarr-
inn blés. Þegar mest er má sjá yfir 20 álftir á
tjörninni og hugsanlega eru þær allar tengdar
Svandísi sem lengi hefur ráðið þar ríkjum.
Kúrt í kulda og næðingi
Morgunblaðið/Ómar
Með gogg undir væng á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi
Lítil veiði var hjá loðnuskipunum
norðan við land í gær vegna brælu.
Skipin voru að leita, meðal annars
austan við Grímsey, en fundu lítið.
Þó sáust einhverjir flekkir á Skaga-
grunni og stefndi allur flotinn þang-
að í gærkvöldi. „Þetta voru rykflekk-
ir sem sáust. Það er erfitt að sjá það
nákvæmlega í þessari brælu en það
stefna flestir þangað,“ sagði Bjarki
Kristjánsson, skipstjóri á Júpíter
ÞH 363.
Hann sagði að útlit væri fyrir
skárra veður í dag og vonaðist til að
geta kastað á loðnuna eftir hádegið.
Svo væri útlit fyrir blíðu á morgun
og því von til þess að hægt verði að
stunda veiðar þann dag, áður en aft-
ur fer að hvessa.
Ágæt veiði var í fyrradag og í gær
voru mörg skip á leið til löndunar á
Austfjarðahöfnum og jafnvel suður
fyrir land.
Fram kom á vef Síldarvinnslunnar
í gær að Polar Amaroq væri að landa
í fiskimjölsverksmiðjuna á Seyðis-
firði og Vilhelm Þorsteinsson vænt-
anlegur. Með þessum förmum verða
komin þar á land á vertíðinni rúm-
lega 14 þúsund tonn. Ber Gunnar
Sverrisson, rekstrarstjóri fiski-
mjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar
og verksmiðjustjóri á Seyðisfirði,
þetta saman við síðasta ár en þá var
engri loðnu landað á Seyðisfirði.
Loðnuvinnsla á Seyðisfirði hefur
verið nokkurn veginn samfelld frá
því hún hófst. Sömu sögu er að segja
um fiskimjölsverksmiðjuna í Nes-
kaupstað en þrír norskir bátar lönd-
uðu þar um helgina. helgi@mbl.is
Flotinn stefnir á „ryk-
flekki“ á Skagagrunni
Morgunblaðið/Golli
Leit Loðnuskipin eru í sífelldum elt-
ingarleik við loðnu um öll mið.
Veður tefur loðnu-
skipin frá veiðum
Tjón Ísafjarðarbæjar eftir óveðrið
og flóðin sem gengu yfir sveitarfé-
lagið í fyrradag gæti hlaupið á tug-
um milljóna króna, að sögn Gísla
Halldórs Halldórssonar, bæjar-
stjóra á Ísafirði. „Verið er að afla
upplýsinga um tjónið og hvaða lær-
dóm draga megi af þessu öllu,“
segir Gísli en nú þegar er ljóst að
sundlaugin á Suðureyri, gervigras-
völlurinn og engi hjá snjóflóða-
garði á Ísafirði hafa orðið fyrir sjá-
anlegu tjóni vegna vatns og vinda.
„Við munum leita eftir
heildaraðstoð hjá Viðlagatrygg-
ingu,“ segir Gísli um þann kostnað
sem hlýst af tjóninu og hvernig til
standi að greiða hann. Gísli telur
víst að hamfarir sunnudagsins á
Ísafirði uppfylli skilyrði Viðlaga-
tryggingar. Í lögum um Viðlaga-
tryggingu Íslands er kveðið á um
að stofnunin skuli vátryggja gegn
beinu tjóni af völdum eldgosa, jarð-
skjálfta, skriðufalla, snjóflóða og
vatnsflóða.
„Menn hafa aldrei séð annað
eins,“ segir hann að lokum.
laufey@mbl.is
Tjón gæti
hlaupið á tug-
um milljóna
Munu leita til
Viðlagatryggingar