Morgunblaðið - 10.02.2015, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
BAKSVIÐ
Brynja Björg Halldórsdóttir
brynja@mbl.is
Bandarískir ráðherrar sniðganga við-
burði á Íslandi og bandarískir embætt-
ismenn nýta hvert tækifæri til að mót-
mæla hvalveiðum Íslendinga við
íslenskra ráðamenn. Þetta kemur
fram í minnisblaði til forseta Banda-
ríkjanna, dagsettu 23. janúar síðastlið-
inn, frá utanríkisherranum John
Kerry, innanríkisráðherranum Sally
Jewell og viðskiptaráðherranum
Penny Pitzker.
Þar gera þremenningarnir grein
fyrir þeim fortölum og aðgerðum
sem gripið hefur verið til gegn Ís-
landi frá 1. apríl 2014, þegar Banda-
ríkjaforseti sendi ráðherrum Banda-
ríkjastjórnar og hlutaðeigandi
stofnunum minnisblað, þar sem hann
útlistaði aðgerðir sem embættis-
mönnum og stofnunum væri ætlað
að grípa til vegna hvalveiða Íslend-
inga.
Forsetinn lagði ekki til að beita við-
skiptaþvingunum í minnisblaði sínu
frá apríl 2014, heldur diplómatískum
þvingunum. Beindi hann því til utan-
ríkisráðuneytisins að endurskoða
samstarfsverkefni þjóðanna þar sem
það ætti við. Þá hvatti hann banda-
ríska embættismenn til að meta hvort
heimsóknir til Íslands væru viðeig-
andi í ljósi hvalveiða Íslendinga og
hvatti þá einnig til að koma at-
hugasemdum á framfæri við íslensk
stjórnvöld vegna veiðanna.
Í minnisblaði ráðherranna þriggja
frá því í janúar, er greint frá því að
enginn ráðherra Bandaríkjanna hafi
komið til Íslands frá því í apríl 2014
og ákveðið hafi verið að bjóða ekki Ís-
lendingum á alþjóðlegu hafráðstefn-
una Our Ocean í júní í fyrra.
Þá hafi fulltrúar Bandaríkjanna
gert grein fyrir afstöðu sinni við hinn
ýmsu tilefni undanfarið ár, hvort sem
íslenskir ráðamenn hafi verið við-
staddir eða ekki. Mótmæli við hval-
veiðum Íslendingum hafi verið bókuð
á tveimur fundum í tengslum við
Samninginn um alþjóðaverslun með
dýr í útrýmingarhættu (CITES) en
enginn Íslendingur var viðstaddur þá
fundi. Bent er á að fjölmargir banda-
rískir embættismenn hafi nýtt tæki-
færið í heimsóknum sínum hér á landi
eða á alþjóðlegum ráðstefnum til þess
að tilkynna íslenskum ráðamönnum
um afstöðu sína til hvalveiða. Á þetta
við um aðalfund Alþjóðahvalveiði-
ráðsins, Artcic Circle-ráðstefnuna og
fleiri atburði.
Í september 2014 beindu Banda-
ríkin skriflegri áskorun til rík-
isstjórnar Íslands ásamt ESB-
ríkjum, Ástralíu, Brasilíu, Ísrael,
Mexíkó og Nýja-Sjálandi um að hætta
hvalveiðum.
Með hvalkjöt í ferðatösku
Í skýrslunni kemur einnig fram að
bandaríska utanríkisráðuneytið hafi
haft milligöngu um fræðsluferð níu
Íslendinga til Bandaríkjanna í apríl
2014. Eins hafi ráðuneytið styrkt ICE
Whale-samtökin, sem eru andsnúin
hvalveiðum, um 36.500 bandaríkjadali
til að fjármagna ferðir Bandaríkja-
manna til Íslands í því augnamiði að
vinna gegn hvalveiðum og efla aðrar
nýtingarleiðir.
Loks kemur fram að öflugt teymi
vinni gegn smygli á hvalkjöti til
Bandaríkjanna. Engin slík rannsókn
sé í gangi en vitað sé um þrjú tilvik
þar sem ferðamenn gerðu tilraun til
að koma með íslenskt hvalkjöt til
Bandaríkjanna.
Þess má geta að Robert C. Barber,
nýr sendiherra Bandaríkjanna, af-
henti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt
28. janúar sl. og tók þar með formlega
til starfa. Þá hafði ekki verið starfandi
sendiherra hér frá því Luis E. Arrega
lét af embætti í nóvember 2013.
Kerry sendir Obama skýrslu um hvali
Enginn bandarískur ráðherra hefur
farið í heimsókn til Íslands í tæpt ár
Gegn hvalveiðum
» Bandaríska innanríkisráðu-
neytið gaf fyrir um ári út svo-
nefnda staðfestingarkæru á
hendur Íslendingum, þar sem
það teldi að hvalveiðar í bága
við alþjóðlega samninga um al-
þjóðaverslun með dýrateg-
undir í útrýmingarhættu.
» Forseti Bandaríkjanna lagði
fyrir bandaríska embættis-
menn að grípa til aðgerða gegn
hvalveiðunum.
AFP
Skýrsluskrif Barack Obama og
John Kerry ræða hvalveiðar.
Brynjar Karl stóð í ströngu í gær
þegar hann flutti sex metra langa
lego-eftirlíkingu af Titanic-
skipinu fræga í Smáralindina þar
sem hann mun leggja lokahönd á
verkið og sýna það. Flytja þurfti
skipið í þremur hlutum og með
aðstoð fjölskyldu og flutninga-
manna komst skipið heilu og
höldnu á áfangastað. „Ég var
mjög spenntur en samt hræddur
líka,“ sagði Brynjar enda margt
sem gat farið úrskeiðis í flutning-
unum.
„Ég var mjög spenntur en samt hræddur“
Eftirlíking af Titanic flutt í Smáralindina
MMeira á mbl.is
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Meirihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar telur rétt að taka áfengis-
löggjöfina til heildstæðrar endur-
skoðunar með hliðsjón af tiltölulega
nýrri löggjöf í Svíþjóð. Þetta er með-
al þess sem kemur fram í umsögn
nefndarinnar um frumvarp til laga
um breytingu á lögum um verslun
með áfengi og tóbak, „áfengisfrum-
varpið“ svokallaða.
„Meirihlutinn telur það ekki vera
hlutverk ríkisins að reka verslanir,
hvort sem er með áfengi, snyrtivör-
ur, lyf eða annað og myndi leggjast
alfarið gegn frekari ríkisvæðingu í
verslun. Raunin er sú að ríkisverslun
hefur verið að leggjast af, á mörgum
sviðum. Einkaaðilar selja hina ýmsu
hluti á frjálsum markaði, suma mjög
varasama eins og tóbak, lyf og
vopn,“ segir í umsögn meirihlutans.
Að henni standa þau Guðmundur
Steingrímsson, Unnur Brá Konráðs-
dóttir, Willum Þór Þórsson, Vill-
hjálmur Bjarnason, með fyrirvara,
og Pétur H. Blöndal.
52 umsagnir borist nefndinni
„Nokkur umræða um smásölu-
umhverfið á Íslandi skapaðist í
nefndinni samhliða umfjöllun um
frumvarpið. Þeirra sjónarmiða gætti
mjög á meðal álitsgjafa, að ef sala á
áfengi yrði gerð frjáls myndi sölu-
umhverfið leiða til verri þjónustu við
áfengiskaupendur frá því sem nú er.
Slík umræða afhjúpar athyglisverða
umhyggju fyrir þörfum áfengiskaup-
enda, en einnig yfirgripsmikið van-
traust margra á samkeppnisum-
hverfinu í smásölu hér á landi,“ segir
í umsögninni þar sem einnig er lögð
áhersla á að frelsi sé ekki andstaða
lýðheilsu.
Frumvarpið er til meðferðar hjá
allsherjar- og menntamálanefnd og
hafa nefndinni borist 52 umsagnir
um frumvarpið.
Minnihluti efnahags- og viðskipta-
nefndar skilaði umsögn um frum-
varpið fyrir áramót en að umsögn-
inni stóðu Frosti Sigurjónsson,
formaður nefndarinnar, Steingrímur
J. Sigfússon og Líneik Anna Sævars-
dóttir.
Þar eru leiddar að því líkur að með
því að færa áfengissölu frá ÁTVR til
einkaaðila myndu þrjár verslunar-
keðjur, sem réðu 90% dagvörumark-
aðar árið 2010, taka til sín megnið af
áfengissölunni, eða 30 milljarða.
Eins segir að minnihlutinn telji að
ekki verði litið fram hjá því að kostn-
aður samfélagsins geti orðið veru-
legur ef frumvarpið nær fram að
ganga, um 21 milljarður kr. ef reikn-
að er með að frumvarpið leiði til 30%
aukningar á áfengisneyslu fari salan
frá ÁTVR til einkaaðila.
Verslun ekki hlutverk ríkisins
Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar vill taka áfengislöggjöfina til endur-
skoðunar Minnihluti segir að þrjár verslunarkeðjur tækju til sín megnið af sölu
Morgunblaðið/Heiddi
Áfengi Efnahags- og viðskipta-
nefnd styður áfengisfrumvarpið.
Unnur Brá
Konráðs-
dóttir, for-
maður alls-
herjar- og
mennta-
mála-
nefndar Al-
þingis, segir
nefndina
koma aftur
saman
næstkomandi þriðjudag. Hún
veit ekki hvaða áhrif umsögnin
hefur á stöðu frumvarpsins inn-
an nefndarinnar; hvort það
verði til þess að því verði hleypt
í aðra umræðu.
„Ég vonast til þess að setja
þetta á dagskrá fljótlega. Við
þurfum að koma þessu frá okk-
ur, það er það sem ég vil,“ segir
Unnur Brá.
Fer á dag-
skrá fljótlega
VILL KOMA FRUMVARPINU Í
AÐRA UMRÆÐU Á ÞINGINU
Unnur Brá
Konráðsdóttir
Níu sóttu um
að gerast
rekstraraðilar
að Thorvald-
sensstræti 2,
sem áður hýsti Nasa. Nokkrar vik-
ur mun taka að fara yfir umsókn-
irnar að sögn Elínar Ólafsdóttur,
framkvæmdastjóra Dalsness, eign-
arhaldsfélags fasteignarinnar.
Umsóknarfrestur rann út 24. jan-
úar og segir Elín að áhuginn hafi
verið svipaður og búist var við en til
viðbótar þeim níu sem sóttu form-
lega um hafi allmargir sent fyrir-
spurnir og komið til að skoða.
Elín segir nokkrar umsóknir
hafa verið áhugaverðar en bætir
við að ekki sé hægt að greina frá
því hvers eðlis starfsemin verði í
húsinu þar sem valið hefur ekki
ennþá farið fram. Hún vonast þó til
þess að húsnæðið verði afhent sem
fyrst eftir að formlega verður
gengið frá leigusamningnum.
Níu sóttu
um að
reka Nasa
Farið yfir umsókn-
ir á næstu vikum