Morgunblaðið - 10.02.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Katrín Jakobsdóttir, formaðurVG, fetaði í fótspor forystu-
manna sem létu til sín taka í bókinni
1984 þegar hún um helgina reyndi
að endurskilgreina frelsið. Stóri
bróðir sagði frelsið ánauð en Katrín
gekk að vísu ekki svo
langt en hafnaði því á
hinn bóginn að frelsið
væri í „einkaeign
Sjálfstæðisflokksins,“
eins og hún sagði það
hafa verið.
Áhugi fólks á aðhafa frelsi til
ákvarðana um eigið
líf breytist ekki þó að
skáldsögur eða for-
menn stjórnmála-
flokka leiki sér að því
að endurskilgreina
hugtakið.
Og í þessu sambandi má minna áþað sem Vefþjóðviljinn rifjaði
upp um helgina, að vinstri flokk-
arnir voru á sínum tíma í heilu lagi
á móti frelsi fólks til að reka út-
varps- og sjónvarpsstöðvar.
Alþýðuflokkurinn, Alþýðu-bandalagið og Samtök um
kvennalista, forverar VG og Sam-
fylkingar, voru á móti því að af-
nema einkarétt Ríkisútvarpsins.
Enginn þingmanna þeirra studdifrelsi í útvarpi eða sjónvarpi.
Og á þingi þegar þeir reyndu aðstöðva þetta frelsismál var til
að mynda forveri Katrínar, Stein-
grímur J., ásamt Jóhönnu Sigurð-
ardóttur sem einnig brást frelsinu.
Það er skiljanlegt að þeir semeiga slíka sögu vilji endur-
skilgreina pólitísk hugtök, en sá
málflutningur er ekki að sama
skapi heiðarlegur.
Katrín
Jakobsdóttir
Frelsið kemur illa
við forystu VG
STAKSTEINAR
Steingrímur J.
Sigfússon
Veður víða um heim 9.2., kl. 18.00
Reykjavík 0 snjókoma
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 2 alskýjað
Nuuk -15 léttskýjað
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 6 heiðskírt
Stokkhólmur 3 heiðskírt
Helsinki 0 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 5 skýjað
Dublin 3 alskýjað
Glasgow 8 alskýjað
London 8 heiðskírt
París 2 alskýjað
Amsterdam 6 súld
Hamborg 6 súld
Berlín 6 skýjað
Vín 0 snjókoma
Moskva -5 snjókoma
Algarve 15 léttskýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 11 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 5 skúrir
Winnipeg -16 alskýjað
Montreal -15 snjókoma
New York -2 slydda
Chicago -2 snjókoma
Orlando 20 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
10. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:41 17:45
ÍSAFJÖRÐUR 9:58 17:37
SIGLUFJÖRÐUR 9:41 17:20
DJÚPIVOGUR 9:13 17:11
Ryðfrí samtengi
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Varanleg tengi fyrir flestar gerðir af pípum og rörum.
Auðveld samsetning og alvöru þétting.
Ökumaður, sem
lögreglan á Suð-
urnesjum stöðv-
aði um helgina,
vegna gruns um
fíkniefnaakstur,
reyndist hafa
neytt amfeta-
míns, kannabis-
efna og metam-
fetamíns, að því er sýnatökur á
lögreglustöð staðfestu. Þá voru öku-
réttindi hans útrunnin.
Tveir ökumenn til viðbótar urðu
uppvísir að ölvunarakstri og reynd-
ist annar þeirra hafa neytt fíkniefna
að auki. Áður hafði lögregla hand-
tekið ökumann bifreiðar og tvo far-
þega vegna gruns um fíkniefnaakst-
ur og vörslur fíkniefna.
Ökumaðurinn viðurkenndi neyslu
og annar farþeganna var með
kannabispoka í brók, að því er segir
í frétt lögreglunnar á Suðurnesjum.
Hann framvísaði pokanum á vett-
vangi og um það bil 20 grömmum til
viðbótar á lögreglustöð. Loks var
einn ökumaður til viðbótar stöðv-
aður vegna gruns um fíkniefnaakst-
ur. Sá grunur reyndist á rökum
reistur.
Tekinn með
kannabis-
poka í brók
Fíkniefna- og
ölvunarakstur
Alls voru útlán Borgarbókasafnsins
853.128 á árinu 2014. Er það nokkru
minna en árið 2013 þegar 916.577 út-
lán áttu sér stað. „Útlán á bókasöfn-
um hafa alltaf verið sveiflukennd án
þess að við höfum skýringar á því
hvers vegna,“ segir Kolbrún Hauks-
dóttir, skrifstofustjóri hjá Borgar-
bókasafninu, og bætir við að útlán
virðist þó fara minnkandi hjá mörg-
um söfnum á landinu.
Bókakostur safnsins er fjöl-
breyttur auk annars efnis sem borg-
arbúar geta sótt með litlum tilkostn-
aði. Meginhlutverk safnsins er að
jafna aðgengi að menningu og þekk-
ingu. Áhersla er lögð á gott aðgengi
borgarbúa á öllum aldri að þjónustu,
fræðslu og viðburðum á sviði menn-
ingar og lista.
Meiri skilvísi
Ekki gengur öllum þó jafnvel að
skila bókunum, sem fengnar hafa
verið að láni, á tilsettum tíma en árið
2014 voru sektir að upphæð
18.501.480 kr. greiddar til bóka-
safnsins vegna vanskila. Skilvísi
manna hefur þó batnað milli ára því
árið 2013 voru sektirnar að upphæð
21.645.446 kr. Borgarbókasafnið
rekur sex söfn í borginni, bókabílinn
Höfðingja og sögubílinn Æringja.
Bókasöfnin eru mismunandi að
stærð en Aðalsafnið í Grófinni er
stærst og þangað koma flestir.
Útlán Borgarbókasafns drógust saman
Útlánin í fyrra alls 853.128 Sektir minnkuðu um rúmlega þrjár milljónir
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Borgarbókasafn Reykjavíkur