Morgunblaðið - 10.02.2015, Qupperneq 11
Ljósmynd/Malín Brand
Loftköst Gunnar Karl í ökumannssætinu og Elsa Kristín Sigurðardóttir aðstoðarökumaður á flugi á Evo 5 í Suðurnesjaralli í júní 2014.
sem hann ætlar sér að taka þátt í
áður en hann kemur til Íslands til
að keppa á Íslandsmótinu.
„Ég hef verið í Hull og unnið á
verkstæði hjá Ólafi Baldurssyni bif-
vélavirkja. Ég er honum innan
handa en er meira í því sem þarf
ekki margra ára reynslu í, eins og
til dæmis að sópa gólfin,“ segir
Gunnar Karl.
Bíllinn sem Gunnar Karl
keppir á ere er Mitsubishi Lancer
Evolution X, sami bíll og rallkapp-
inn Daníel Sigurðsson keppti á í
Bretlandi á sínum tíma en Graham
Quick smíðaði hann. Bíllinn hefur
skipt um eigendur og er óðum að
taka á sig mynd eftir að hafa staðið
óhreyfður í nokkurn tíma. Gunnar
Karl hefur keppt á Evo 5 og Evo 6
fram að þessu en nú er það „tían“
sem er að sögn kunnugra býsna
góð. „Hún er lögleg í allar keppnir
úti og er FIA-skráð. Aðalmálið í
þessum bíl er togið en það eru 700
newton-metrar í tog.“
Síðan Gunnar Karl kom út
hafa þeir félagar á verkstæðinu
skoðað túrbínuna í bílnum og geng-
ið úr skugga um að allt sé eins og
það á að vera auk þess sem ýmsum
smærri hlutum hefur verið skipt út.
Nýjar hlífar eru komnar undir bíl-
inn, nýjar merkingar og svo fram-
vegis. Bíllinn er svo gott sem klár í
slaginn og Gunnar Karl er klár. Ef
eitthvað er hefur áhugi hans á rall-
inu magnast og var hann nú mikill
fyrir.
Í fyrrasumar var Gunnar Karl
með erlendan aðstoðarökumann
hluta sumars og hefur því dálitla
reynslu af að hlýða á leiðbeiningar
á ensku við aksturinn og segist
hann kunna því vel. Bretinn
George Gwynn verður aðstoðaröku-
maður hans í keppninni um næstu
helgi í Wyedean Forest Rally í Wa-
les.
„Gwynn er mjög vanur og hef-
ur keppt með pabba mínum hér í
Bretlandi,“ segir Gunnar Karl. Alls
eru 180 bílar skráðir til keppni um
næstu helgi og eru það töluvert
fleiri en í keppni hér á landi. Fyrir
vikið geta ökumaður og aðstoðar-
ökumaður, eðli málsins samkvæmt,
ekki ekið eftir leiðunum daginn fyr-
ir keppni og gert leiðarnótur held-
ur fengu keppendur mynddisk með
leiðarlýsingunni á sunnudaginn.
„Ég er búinn að vera að skoða
þetta sjálfur heima og verð alla
vega ekki bílveikur á meðan! Ég
verð oftast bílveikur þegar ég er að
fara fram og til baka fyrir keppni
heima. Núna get ég bara horft á
þetta og spilað þetta hratt þannig
að þetta er bara flott,“ segir Gunn-
ar Karl sem er slakur fyrir keppni
eins og hann er iðulega.
Bannað að klessa á tré
Í keppninni um helgina verður
lengsta keppnisleiðin um 10 mílur.
„Það er svona eins og hálft Djúpa-
vatnið. Alls eru þetta átta leiðir og
ég er orðinn spenntur fyrir að
keyra.“ Þar sem rallið fer fram í
Wyedean Forest má vissulega bú-
ast við óhefðbundnu landslagi fyrir
Íslendinginn því tré eru nú sjaldn-
ast að þvælast fyrir okkur í rallinu
hér á landi.
„Þannig að aðalmálið er að
lenda ekki á tré eins og pabbi gerði
í Bretlandi um árið. Það er númer
eitt, tvö og þrjú. “ segir rallök-
umaðurinn Gunnar Karl Jóhann-
esson um rallið sem fram fer í Wa-
les um næstu helgi.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Keppt hefur verið í ralli í Forest of Dean í Gloucesterskíri síðan árið
1975. Í ár eru því fjörutíu ár síðan rall fór þar fyrst fram. Á síðunni
www.wyedeanrally.com er hægt að fræðast töluvert um staðsetn-
inguna og söguna. Meðal annars segir frá ungum eldhugum sem komu
keppninni á og stofnuðu klúbb. Keppnin í skóginum er alla jafna sú
fyrsta á hinu breska ralldagatali hvers árs og þrátt fyrir válynd veður
og ýmis óvænt atvik í náttúrunni hefur aldrei þurft að aflýsa rallinu.
Brotin tré, hnéhæðarhátt snjólag og hiti undir frostmarki hafa ekki náð
að koma í veg fyrir að keppt sé í Forest of Dean. Eins og Gunnar Karl Jó-
hannsson nefnir einmitt þá er skóglendið dálítið ófyrirsjáanlegt á þess-
um árstíma og fleira að varast en trén. Það getur myndast töluverður
aur og svell verið í brekkunum þannig að áskoranirnar eru margar.
Rallið í velska skóginum
FOREST OF DEAN Í 40 ÁR
Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 10.00 - 15.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686
akkar
ök
kjur
Glæný línuýsa
Hrogn og lifur
Súr hvalur og hákarl