Morgunblaðið - 10.02.2015, Page 16
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Nær öll fyrirtæki á Íslandi eru lög-
um samkvæmt undanþegin lögboð-
inni endurskoðun segir Ómar
Gunnar Ómarsson löggiltur endur-
skoðandi KPMG AB í Svíþjóð. „Það
kemur á óvart að Ísland sé með
hærri viðmiðunarmörk en hin lönd-
in á Norðurlöndunum. Miðað við
undanþáguákvæði ESB sem Ísland
hefur tekið upp eru einungis 2% ís-
lenskra fyrirtækja sem uppfylla
kröfur um lögboðna endurskoðun
miðað við tölur frá Ríkisskatt-
stjóra.“
Viðmiðunarmörkin frá endur-
skoðunarskyldu voru hækkuð 2013
frá því sem var 2006. Fyrirtæki
þurfa að uppfylla tvö af þremur við-
miðum til að falla undir undanþág-
una. Fyrirtæki þurfa að vera með
2,7 milljónir evra eða 400 milljónir
króna í heildartekjur, 1,4 milljónir
evra eða 210 milljónir króna í heild-
areignir og viðmiðið í starfsmanna-
fjölda er 50 starfsmenn. Viðmiðin
fyrir Ísland eru hærri en annars
staðar á Norðurlöndunum og sem
dæmi þá eru þau fyrir starfsmanna-
fjöldann 3 í Svíþjóð, 10 í Noregi og
12 í Danmörku.
Fyrirtækin ekki án eftirlits
Ómar segir að eftir hrun hafi átt
að breyta viðskiptaháttum og auka
eftirlit og áreiðanleika en þetta
stangist á við þau áform þar sem
flest íslensk fyrirtæki falli undir
undanþáguákvæðið. „Endurskoðun
er eina viðurkennda aðferðin til að
auka áreiðanleika. Í Svíþjóð voru
menn hikandi við að setja undan-
þáguákvæðið enda er það tekið
föstum tökum ef skilað er óárit-
uðum ársreikningum,“ segir Ómar.
Sviðsstjóri endurskoðunarsviðs
Deloitte á Íslandi, Þorsteinn Pétur
Guðjónsson, telur að viðmiðunar-
mörkin gætu verið of há og þá sér-
staklega viðmiðið í starfsmanna-
fjölda. Hann segir að ársreikningar
sem eru endurskoðaðir eigi að
tryggja áreiðanleika þeirra fjár-
hagsupplýsinga sem þar koma
fram. „Það má velta fyrir sér
hversu mörg fyrirtæki sem hafa
engan rekstur og engar eignir falla
undir undanþáguákvæðið,“ segir
Þorsteinn.
Skúli Eggert Þórðarson ríkis-
skattstjóri segir mun fleiri árs-
reikninga endurskoðaða þó að það
sé ekki lagaleg skylda. „Þetta eru
starfsskilyrðin og lögin en það er
ekki þannig að 98% fyrirtækja séu
án eftirlits því endurskoðendur sem
gegna hlutverki skoðunarmanna
benda á margt sem betur mætti
fara.“
Nýtt frumvarp í smíðum
Unnið er að nýju frumvarpi um
ársreikninga í atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytinu í tengslum við
innleiðingu á tilskipun ESB.
Að sögn Hörpu Theodórsdóttur,
sérfræðings í ráðuneytinu, er verið
að skoða heildstætt lög um ásreikn-
inga nr. 3/2006 með tilliti til tilskip-
unar ESB. „Markmiðið er að ein-
falda regluverkið og draga úr
umsýslukostnaði lítilla og meðal-
stórra fyrirtækja. Það er valkvætt
hvaða viðmið eru sett og við erum
að fylgjast með hvað löndin í kring-
um okkar eru að gera.“ Frumvarpið
verður lagt fram annaðhvort núna á
vorþinginu eða í haust.
98% undanþegin endurskoðun
Fyrirtæki Fá íslensk fyrirtæki uppfylla kröfur um lögboðna endurskoðun.
Viðmiðunarmörkin í undanþáguákvæði hærri á Íslandi en annars staðar á Norð-
urlöndunum Nýtt frumvarp um ársreikninga í smíðum í atvinnuvegaráðuneytinu
Viðmiðunarmörkin
» Heildartekjur 400 milljónir
króna.
» Heildareignir 210 milljónir
króna.
» 50 starfsmenn.
» Nýtt frumvarp um ársreikn-
inga er í endurskoðun.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. FEBRÚAR 2015
Sími 511 8090 • www.yndisauki.is
Partýbakkinn frá Yndisauka
hentar við öll tækifæri
Partýbakkinn inniheldur 4 tegundir af spjótum,
kjúklingur satay, naut teriyaki, hörpuskel og
baconvafinn daðla, tígrisrækja með peppadew.
Bakkanum fylgja 2 tegundir af sósum.
Veitingar fyrir öll tækifæri, stór og smá,
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Markmið okkar er alltaf það sama,
glæsilegar veitingar og ómótstæðilegt bragð.
Persónuleg og góð þjónusta.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Evrópusambandsins þar sem hann
mun kalla eftir neyðarláni til þess
að mæta þörfum ríkissjóðs Grikk-
lands til skamms tíma og gefa rík-
isstjórn landsins meira svigrúm til
að semja um skuldir þess.
Lítill tími er til stefnu fyrir Grikki
og hefur Jeroen Dijsselbloem, fjár-
málaráðherra Hollands, sem fer
fyrir fjármálaráðherrahópi evru-
ríkjanna, sagt skýrt að Grikkir
verði að ná samkomulagi við lán-
ardrottna sína fyrir 16. febrúar til
þess að njóta áfram aðstoðar.
David Cameron, forsætisráðherra
Bretlands, fundaði í gær með
fulltrúum Englandsbanka og
þriggja ráðuneyta landsins þar sem
rætt var um mögulegar ráðstafanir
sem gera þyrfti ef Grikkir yfirgæfu
evrusvæðið. Fundurinn var haldinn
í aðdraganda þess að Cameron mun
hitta Alexis Tsipras, forsætisráð-
herra Grikklands, á fundi á vett-
vangi Evrópuráðsins á fimmtudag-
inn kemur.
Á miðvikudaginn kemur mun
Tsipras eiga fund með fulltrúum
Auknar líkur á brotthvarfi Grikkja
Hafa frest til 16. febrúar til að semja
AFP
Væringar Fjármálaráðherrar Bretlands og Grikklands hafa fundað nú þegar.
● Fyrstu verkefni Matís í nýju Horizon
2020-rannsóknaráætluninni eru að
hefjast en Matís er þátttakandi í nýju
2,7 milljóna evra verkefni sem fjár-
magnað er af Horizon 2020. Verkefnið
sem Matís tekur þátt í nefnist Social
Science Aspects of Fisheries for the
21st Century.
Matís þátttakandi í 2,7
milljóna evra verkefni
● Í lok síðasta árs námu ríkisábyrgðir
íslenska ríkisins 1.212 milljörðum króna
og höfðu lækkað úr 1.264 milljörðum
frá árinu á undan. Stærstur hluti
ábyrgðarinnar er kominn til vegna
ábyrgðar á Íbúðalánasjóði eða 881
milljarður. Þá nam ábyrgð ríkisins á
skuldbindingum Landsvirkjunar um
302 milljörðum króna í árslok 2014.
Ríkisábyrgð lækkar um
52 milljarða milli ára
!
"
#"
!$%
#
$%%
#
#!
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
!!
$
"#
!!
!
$%
$
#%
$%$
"
!
!
!"#
!"%
$%
$!
#"$!
$%#
#%
Í síðustu viku
seldi skandinav-
íska flugfélagið
SAS eitt af lend-
ingarleyfum sín-
um á Heathrow-
flugvelli í London
á 60 milljónir
bandaríkjadala
eða átta milljarða
íslenskra króna.
Virði lendingar-
leyfa Icelandair á Heathrow gæti því
verið eitthvað um 16 milljarðar
króna en frá þessu var sagt í frétt
Túrista. Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, sagði í
samtali við Túrista að ekki stæði til
að selja leyfi flugfélagsins á Heath-
row og færa starfsemi Icelandair í
London yfir á aðra flugvelli.
16 millj-
arða leyfi
Icelandair situr á
dýrum leyfum.
Lendingarleyfi
á Heathrow dýr
● Íslandsbanki
hefur gefið út
skuldabréf að fjár-
hæð 300 milljón
sænskar krónur
eða 4,7 milljarðar
íslenskar krónur.
Bréfin eru til fjög-
urra ára og bera
fljótandi vexti, 310
punkta ofan á
þriggja mánaða
Stibor. Kaupendur voru fjárfestar frá
Svíþjóð, Noregi og meginlandi Evrópu.
Útgáfan er gefin út undir Global Medi-
um Term Notes (GMTN) útgáfuramma
bankans og umsjónaraðili var Pareto
Securities AB í Stokkhólmi.
Útgáfa í sænskum krón-
um fyrir 4,7 milljarða
Skuldabréf í
sænskum krónum.
STUTTAR FRÉTTIR ...