Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 18
Afmælisþakkir
Kæru ættingjar og vinir.
Innilegar þakkir fyrir heimsóknir, kveðjur,
skeyti, góðar óskir og gjafir í tilefni aldar-
afmælis míns 5. febrúar síðastliðinn.
Sérstaklega vil ég þakka börnum og barna-
börnum okkar Kristínar og frændliði fyrir þá
fyrirhöfn sem þau höfðu af afmælinu.
Guð veri með ykkur um alla framtíð.
Lárus Sigfússon
og Kristín Gísladóttir .
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Vestfirðingar, sem búa á Suður-
landi, boða til sólarkaffis að hætti
Vestfirðinga sunnudaginn 15. febr-
úar í Félagsheimilinu Stað á Eyr-
arbakka kl. 15.
Alsiða er í byggðum Vestfjarða
að drekka sólarkaffi með pönnu-
kökum þegar sólin sést aftur eftir
skammdegið. Þessi siður hefur ekki
verið á Suðurlandi enda sést sól þar
alla daga ársins. Með þessu vilja að-
fluttir Vestfirðingar á Suðurlandi
gefa sveitungum að vestan kost á
að hittast í sólarkaffi og jafnframt
kynna þennan góða sið fyrir Sunn-
lendingum og öðrum hér um slóðir,
segir í tilkynningu.
Á sólarkaffinu verður Elfar
Guðni Þórðarson, listmálari á
Stokkseyri, með málverkasýningu.
Vestfirska forlagið mun gleðja
tuttugu þátttakendur í sólarkaffinu
með bókaverðlaunum í tilefni af ný-
legu afmæli. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Boðið upp á sólar-
kaffi á Eyrarbakka
Í dag, laugardaginn 14. febrúar,
halda Toyota Kauptúni og Arctic
Trucks árlega jeppasýningu sína
saman í sjötta sinn.
Sýningin er einn af hápunktum
ársins hjá jeppaáhugamönnum og
hefur alltaf verið mjög vel sótt enda
margt áhugavert að sjá, segir í til-
kynningu.
Á fimmta þúsund gestir komu á
sýninguna í fyrra og er reiknað
með að minnsta kosti sama fjölda í
ár. Sýningin er öllum opin.
Ljósmynd/Toyota
Árleg jeppasýning
í Kauptúni í dag
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Verð á minkaskinnum hefur hækkað
fyrstu dagana á uppboði danska upp-
boðshússins Kopenhagen Fur og öll
framboðin skinn hafa selst. „Það er
mjög jákvætt að svona vel skuli
ganga að selja eftir dýfuna sem við
fengum í fyrra og sýnir hvað mark-
aðurinn er öflugur,“ segir Einar E.
Einarsson, loðdýrabóndi og ráðu-
nautur hjá Rml.
Áætlað er að nálægt 40 þúsund ís-
lensk skinn hafi verið send út á upp-
boðið sem er eitt það stærsta hjá
danska uppboðshúsinu, og því sé 20-
25% íslensku framleiðslunnar boðin
upp þessa dagana. Fleiri skinn verði
á uppboðunum í apríl og júní og þá
skýrist betur hvernig íslensku skinn-
in koma út í gæðum og verði, miðað
við framleiðslu nágrannalandanna.
Góð sala í Kína
Uppboðið hófst á mánudag og lýk-
ur í dag. Miðað við árangurinn fyrstu
dagana telur Einar að menn geti ver-
ið ánægðir. Getur hann sér þess til
að hækkunin verði nálægt 10% þó að
hún sé misjöfn á milli tegunda. Þá
megi ætla að styrking bandaríkja-
dollars valdi hluta hækkunarinnar
eða um 4%.
Kínaverslunin leiðir verðþróun á
minkaskinnauppboðinu, eins og oft-
ast áður. Góð sala er talin stafa af því
að veturinn hefur verið kaldur í
Kína. Einnig hefur lága verðið á upp-
boðunum í fyrra skilað sér í verð-
lækkun í verslunum í haust og vetur.
„Sú lyfting sem varð í verðinu í
janúar og aftur núna gerir það að
verkum að búin geta rekið sig á verð-
inu sem nú er. Þau ráku sig ekki í
fyrra, við vorum undir mörkunum,
en það var allt í lagi því við vorum
búnir að fá nokkur mjög góð ár og
getum ekki kvartað,“ segir Einar
loðdýrabóndi á Syðra-Skörðugili í
Skagafirði.
Búin geta rekið sig eftir
hækkun skinnaverðs
Valdimar Bergstað á Hugleik frá
Galtanesi og Lilja Pálmadóttir á
Móa frá Hjaltastöðum háðu einvígi í
fjórgangskeppni KS-deildarinnar í
hestaíþróttum sem fram fór í Svað-
astaðahöllinni á Sauðárkróki á mið-
vikudagskvöld. Var þetta fyrsta
keppni mótaraðarinnar í ár.
Keppnin var svo jöfn að áhorf-
endur vissu ekki hver hafði unnið,
fyrr en úrslitin voru kynnt. Kom í
ljós að Valdimar og Hugleikur höfðu
sigrað með einkunnina 7,87. Lilja og
Mói sem unnu sig upp úr B-úrslitum
og sóttu sig stöðugt urðu í öðru sæti
með 7,70. Keppnin um þriðja sætið
var einnig æsispennandi. Hanna Rún
Ingibergsdóttir og Nótt frá Sörla-
tungu sigruðu á hlutkesti Bjarna
Jónsson og Roða frá Garði.
Valdimar Bergstað sigurvegari á Hugleik
Sigur Valdimar Bergstað og
Hugleikur frá Galtanesi.
BÆJARLÍF
Hvammstangi
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Mikið hefur mætt á Björgunar-
sveitinni Húnum á Hvammstanga
nú á liðnum vikum. Gunnar Örn Jak-
obsson, formaður sveitarinnar, segir
útköll í des. og til miðs febrúar vera
orðin 24, flest tengd óveðri og ófærð.
Mest var við óveður, sem skall á á
Holtavörðuheiði um miðjan dag
25. janúar, en þá teppstust um 500
manns í Hrútafirði á suðurleið.
Sækja þurfti fólk í um 40 bíla á heið-
ina og flytja í Staðarskála. Sunnan
heiðar var einnig fjöldi fólks veður-
teppt. Þegar ljóst varð það kvöld, að
ekki væri hægt að koma umferð á,
var opnuð fjöldahjálparstöð í
Reykjaskóla, þar gistu um 230
manns um nóttina. Fengu allir góða
aðhlynningu og fólk komst leiðar
sinnar tímanlega daginn eftir. Var
þá Bs. Húnar búnir að vinna um
nóttina við að sækja yfirgefna bíla á
heiðina. Gott samstarf er meðal
nærliggjandi björgunarsveita, sagði
Gunnar Örn, og sannarlega reyndi á
það í þetta sinn.
Ungur Hvammstangabúi, Ingvar
Óli Sigurðsson, þá 12 ára gamall,
sýndi rétt viðbrögð við áfalli á heim-
ili hans í júlí 2014. Móðir hans,
Hrefna Samuelsdóttir, fékk heila-
blóðfall og missti meðvitund. Hann
hringdi í 112 og tilkynnti atburðinn.
Var síðan í sambandi við neyðarlín-
una þar til hjálpin barst, ásamt því
að annast tveggja ára bróður sinn,
sem var á heimilinu. Sýndi Ingvar
Óli einstakt æðruleysi við þessar að-
stæður, og snarræði hans hefur ef-
laust stuðlað að því, að móðir hans
hefur nú náð heilsu að mestu. Hann
var valinn til viðurkenningar RKÍ,
einn fjögurra Íslendinga á árinu
2014, og afhent heiðursskjal á 112-
deginum. Björgunarsveitir, brunalið
og önnur hjálparsamtök í Húnaþingi
vestra sýndu þá tækjakost sinn og
óku þann dag um götur Hvamms-
tanga, með tilheyrandi ljósablikki og
sírenum.
Á þessu ári verður Hvamms-
tangadeild RKÍ 40 ára. Að sögn
Kristínar Ólafsdóttur, stjórnar-
manns, verður í tilefni tímamótanna
boðið upp á skyndihjálparnámskeið
til nemenda í 9. og 10. bekk Grunn-
skóla Hvammstanga. Er fólk hér
meðvitað um gildi slíkrar fræðslu til
ungmenna, eftir atburði s.l. árs.
Á þessum dögum fréttist að riða
hefði greinst í sauðfé á Neðra-
Vatnshorni í Línakradal. Það eru al-
varlegar fréttir í svo öflugu sauðfjár-
héraði sem Húnaþing vestra er.
Ekki hafa verið teknar ákvarðanir
um aðgerðir, en venja er að nið-
urskurður fylgi slíkri greiningu.
Það vekur athygli hve húnvetnsk-
ir sauðfjárbændur hafa náð langt í
ræktun síns fjár. Af tuttugu afurða-
hæstu búum landsins eru fimm
bændur í Húnaþingi vestra. Er þá
miðað við þá sem teljast með fjár-
stofn yfir 100 vetrarfóðraðar ær. Í
hönd fara spennandi tímar hjá sauð-
fjárbændum, þar sem mjög margir
kaupa fagaðila til að telja fóstur í ám
sínum. Þykir nú sjálfsagt, að með-
altal fóstra sé um tvö lömb á kind og
gott þar yfir.
Mannlíf í héraðinu er allgott,
mikið búið að blóta þorra. Nú er að
mestu lokið smíði glæsilegs veitinga-
staðar við höfnina; hefur hann hlotið
nafnið Sjávarborg. Opnun er á
næstu vikum og verður staðurinn
rekinn af Sveitasetrinu á Gauks-
mýri.
Annríki hjá björgunarsveitinni
Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Einstakt ærðuleysi Ingvar Óli Sigurðsson heiðraður af Rauða krossi Ís-
lands. Til vinstri Aníta Þorsteinsdóttir og Kristín Ólafsdóttir stjórnarmenn.
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30
Þriggja sæta sófi. L160 cm. Verð169.900kr.
Nú127.425kr.
Polo-sófi
25% AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM* SÓFUM 14. OG 15. FEBRÚAR
SPARAÐU
42.475
Polo-sófi
Til í fleiri litum
127.425
*Gildir ekki um vörur á áður lækkuðu verði og merktum
Everyday low price. Afsláttur reiknast á kassa.