Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 ✝ Ólafur Gunn-arsson fæddist í Tröllatungu í Strandasýslu 8. maí 1921. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi 7. febrúar 2015. Foreldrar hans voru Sólrún Helga Guðjónsdóttir, f. 1899, d. 1985, og Gunnar Jónsson, f. 1896, d. 1979. Systkini Ólafs eru: Guð- jón, f. 1922, Skúli, f. 1924, Jón Halldór, f. 1927, Steinn Eyjólf- ur, f. 1929, d. 2013, Sigrún, f. 1931, Elín, f. 1933, Sigfús, f. 1937, og Halldór, f. 1943. Hálf- bræður Ólafs samfeðra eru: Halldór Dalkvist, f. 1936, og Guðjón Dalkvist, f. 1944. Hinn 7. september 1946 kona Steinunn Dröfn Þorvalds- dóttir, Gunnar Bjarki, f. 22. ágúst 1995. Ólafur ólst upp í Tröllatungu, Hlíð í Þorskafirði, en lengst í Gilsfjarðarmúla og gekk í far- skóla Geiradalshrepps. Vann sem ungur maður ýmis verka- mannastörf. Eftir að þau Jó- hanna Margrét tóku saman hófu þau búskap á nokkrum stöðum bæði í Austur-Barðastrandar- og Strandasýslu og einnig í Vestur-Húnavatnssýslu. Flest búskaparárin bjuggu þau á Borgum í Hrútafirði eða frá 1964 til 1986. Ólafur sat þar í hreppsnefnd Bæjarhrepps og var einnig forðagæslumaður. Árið 1986 fluttu þau í Borgarnes og til Ólafsvíkur árið 2010. Frá árinu 2011 dvaldi Ólafur ásamt konu sinni á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri. Útför Ólafs fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 14. febr- úar 2015, og hefst athöfnin kl. 14. kvæntist Ólafur eft- irlifandi eiginkonu sinni, Jóhönnu Mar- gréti Eysteins- dóttur. Foreldrar hennar voru Krist- ín Lilja Jóhann- esdóttir, f. 1900, d. 1988, og Eysteinn Einarsson, f. 1904, d. 1991. Börn Ólafs og Jóhönnu Mar- grétar eru: Gunnar Jón, f. 2. júlí 1947, og Steiney Kristín, f. 22. desember 1959. Maki hennar er Baldvin Leifur Ívarsson, f. 11. maí 1960. Börn þeirra eru: Jóhanna Ósk, f. 22. júlí 1984, sambýlismaður Svani Hauksson, Ólafur Ívar, f. 23. júlí 1987, sambýliskona Elín Jó- hannsdóttir, sonur þeirra er Jökull Ívar, f. 2011, Björn Ingi, f. 29. nóvember 1988, sambýlis- Pabbi okkar, hann Lalli eins og hann var oftast kallaður, hefur kvatt okkur hér á jörðinni, hann er kominn á annan stað. Eftir um það bil þrjá mánuði hefði hann orðið 94 ára, nokkuð hár aldur það. Hann var „flottur kall“, glaður og glett- inn, sáttur og æðrulaus og ynd- islegt að fá að njóta hans í öll þessi ár. Meðal áhugamála hans var ættfræði og rakti hann marga ættliði án þess að hugsa enda skýr og vel minnugur alveg fram á það síðasta. Heilu bæjaraðirnar Ólafur Gunnarsson mundi hann í mörgum sýslum landsins og ágætt að spyrja hann bara ef við vorum ekki viss um eitthvað. Að setja saman vísur fannst honum mjög gaman og eru þær margar til eftir hann. Það er margs að minnast úr sveitinni, sauðburður, heyskapur og öll störfin sem þar féllu til. Hann var góður bóndi hann pabbi og bar virðingu fyrir dýrunum, vildi eng- in læti í kringum þau. Kindurnar skírðar sínu nafni og þegar mamma og pabbi hófu búskap hét fyrsta kindin þeirra Byrjun og svo bættust fleiri í hópinn smátt og smátt. Þarna var ættfræðin líka á hreinu, allt skráð í „Rollubókina“, handskrifað með blekpennanum. Malarvegirnir í sveitunum gátu stundum verið erfiðir og af því til- efni varð til þessi vísa: Bílnum ek ég breiðan veg, beint að holu hverri. Hægri kantinn hata ég, hann er alltaf verri. Nú síðustu árin hafði hann ekki alltaf mikið fyrir stafni en fann sér alltaf eitthvað til að stytta tímann, greip bók til að glugga í, hlustaði á tónlist, sat og blístraði lagstúf og ekki má gleyma Morgunblaðs- krossgátunni á laugardagsmorgn- um, yfirleitt búinn að ráða hana fyrir hádegið. Foreldrar okkar voru mjög samrýnd hjón og hvort öðru góður félagi, enda búin að ganga í gegnum ýmislegt saman um ævina. Í janúar sl. urðu þau bæði fyrir því óhappi að veikjast, mamma lærbrotnaði og pabbi fékk heilablóðfall. Allt leit vel út ✝ Hermann Níels-son fæddist á Ísafirði 28. febrúar 1948. Hann lést á Landspítalanum 21. janúar 2015. Foreldrar hans voru Níels Guð- mundsson mál- arameistari, f. 5.10. 1922, d. 5.11. 1979, og Guðrún Guð- ríður Sigurð- ardóttir, f. 21.5. 1924. Systkini Hermanns eru: Sigríður, f. 1950, maki Gísli Vigfússon; Guð- mundur Grétar, f. 1957, maki Guðrún Eyjólfsdóttir; Kristinn Jóhann, f. 1960, maki Harpa Jónsdóttir; María, f. 1966, maki Rúnar Már Jónatansson. Fyrri eiginkona Hermanns var Svandís Rafnsdóttr, f. 1949, d. 2009. Synir þeirra eru: 1) Níels, f. 1968, maki Christine Carr. Dóttir Níelsar og Sóleyjar D. Jóhannsdóttur er Herdís Hrönn, f. 1987, maki Einar Örn Konráðsson, sonur þeirra er Daníel Rafn, f. 2007. Fósturbörn Níelsar eru Kumasi Máni og Þór- anna Kika. 2) Rafn, f. 1975, maki Herdís Kristinsdóttir, dætur þeirra eru Emilía Ósk, f. 2000, Júlía, f. 2004, og Rut f. 2009. Fyrrverandi sambýliskona Her- skólann á Eiðum í 17 ár, Mennta- skólann á Egilsstöðum, Bænda- skólann á Hvanneyri, var stunda- kennari við Háskólann á Bifröst og vann síðustu starfsár sín í Menntaskólanum á Ísafirði og kenndi skyndihjálp og björgun fyrir Rauða krossinn. Hermann rak verktakafyrirtæki á Egils- stöðum í 12 ár og málningar- vöruverslun og um tíma tryggingaumboð. Hermann var varamaður á Alþingi fyrir Al- þýðuflokkinn 1991-94. Hann var stjórnarformaður í ferðaskrif- stofunni Northern Light tours í London um þriggja ára skeið. Síðustu árin fóru kraftar Her- manns í kvikmyndaframleiðslu. Félagsmálaþátttaka Hermanns var fjölbreytt. Á Eiðum stjórnaði hann fjölda sundnámskeiða og sumarbúða fyrir börn og ung- linga. Hann starfaði mikið fyrir UÍA og var um tíma formaður þess. Hann vann ýmis störf fyrir íþróttafélagið Hött á Egils- stöðum og sat í nefndum hjá ÍSÍ. Á Ísafirði þjálfaði Hermann glímu o.fl. og var formaður íþróttafélagsins Harðar á Ísa- firði. Hermann var sæmdur heið- urskrossi ÍSÍ í október 2014 vegna starfa sinna í þágu íþrótta í landinu og gullmerki UMFÍ fyr- ir störf sín í þágu Ungmenna- félagshreyfingarinnar. Útför Hermanns fer fram frá Ísafjarðarkirkju í dag, 14. febr- úar 2015, kl. 15. manns er Ingibjörg Ingadóttir, f. 1957. Dóttir þeirra er: 3) Nína Dagrún, f. 1996. Fósturbörn Hermanns eru: 1) Anna Birta Tryggvadóttir. 2) Sindri Emmanúel Lionarakis. 3) Ka- terina Inga Lion- arakis. Eiginkona Hermanns er Krist- ín Theodóra Nielsen (Dóra), f. 1955. Börn Kristínar Theodóru eru: 1) Hjalti Nielsen, maki Björg S.A. Þórðardóttir, synir þeirra eru Axel Emil og Benedikt Flóki. 2) Ólafur Örn Nielsen, sambýlis- kona hans er Árdís Ethel Hrafns- dóttir 3) Katrín Jónsdóttir. Hermann ólst upp á Ísafirði, lengst af í málarablokkinni við Aðalstræti 17-19. Hermann tók sveinspróf í málaraiðn og lauk framhaldsskóla. Að því loknu fór hann í nám í Íþróttakenn- araskóla Íslands á Laugarvatni og síðar í frekara nám í þjálfara- og íþróttakennarafræðum í Dan- mörku 1973-74 og í Svíþjóð 1980- 81. Hann stundaði meistaranám við KÍ og sótti fjölda námskeiða fyrir þjálfara og íþróttakennara hérlendis og erlendis. Hermann kenndi við Alþýðu- Minn kæri frændi, Hermann Níelsson, er farinn alltof fljótt. Hermann var fæddur á Ísafirði 28. febrúar 1948. Við erum systkina- synir. Guðrún Sigurðardóttir, móðir Hermanns, sem nú lifir son sinn, og Jóhann, faðir minn, voru systkini. Amma okkar, Kristín Jó- hannsdóttir, var mikil kjarnakona sem eignaðist tvo syni og þrisvar sinnum tvíbura. Samskipti og vin- fengi var alltaf mikið milli fjöl- skyldna okkar meðan við bjuggum á Ísafirði. Svo liðu árin og fólk fer í aðrar áttir eins og gerist, en Ís- firðingar erum við alltaf. Ungur nam Hermann málaraiðn hjá föð- ur sínum, Níelsi Guðmundssyni, sem einnig lést alltof ungur, að- eins 57 ára, en Hermann hefði orð- ið 67 ára nú í febrúar. Hermann var alltaf íþróttamaður mikill. Hugur hans var alltaf að gera bet- ur fyrir ungmennastarfið í landinu og voru honum veitt gullheiðurs- merki Ungmennafélags Íslands fyrir vel unnin störf í félaginu ásamt því að vera sæmdur heið- urskrossi ÍSÍ vegna starfa sinna í þágu íþrótta í landinu. Á æskuslóðum kunni Hermann vel við sig, enda margir ættingjar eftir, bæði í móður- og föðurætt, búsettir á Ísafirði. Föðurætt Her- manns átti sér griðastað í Arnar- dal og hvergi undi hann sér betur en þar, á milli hárra fjalla í kyrrð- inni og niðnum í ánni okkar þar sem silungur var veiddur til mat- ar. Guðmundur, afi Hermanns í föðurætt, keypti jörð í innri Arn- ardal með reisulegu húsi þess tíma og stundaði þar búskap. Þarna lá strengur á milli okkar Hermanns sem aldrei var rofinn. Ungur var ég sendur í sveit að Fremrihúsum hjá frændfólki mínu, þar sem ég undi mér vel til 12 ára aldurs. Í Arnardal var Hemmi í essinu sínu. Hann gerði tilraun til að rækta lax í ánni og naut hverrar mínútu sem gafst til að eiga þar stund frá amstri dags- ins. Hemmi gekk í hjónaband með unnustu sinni, Kristínu Theodóru Nielsen, ljósmóður og hjúkrunar- fræðingi, um jólin. Yndisleg kona sem ekki vék frá dánarbeði hans í veikindum og mikil var gleðin og vonin þegar Hemma batnaði skyndilega við nýja meðalagjöf rétt fyrir jólin og þau gátu eytt saman jólunum heima. En vonin brást eins og svo oft áður þegar krabbamein er fyrir hendi, þá veit enginn sína ævi. Elsku Gunna frænka, ég sendi þér mínar inni- legustu samúðarkveðjur við frá- fall sonar og megi Guð vernda þig og styðja. Eiginkonu Hemma sendi ég góðar kveðjur og þakk- læti. Þú ert hetja í þessari baráttu frænda míns. Börnum Hemma, Níelsi, Rafni og Nínu Dagrúnu, sendi ég samúðarkveðjur og sömuleiðis systkinum Hemma, Sigríði, Guðmundi, Kristni og Maríu. Megi almættið blessa ykk- ur öll. Þín er sárt saknað af ætt- ingjum og vinum en minning þín mun lengi lifa. Sigurður Ben Jóhannsson. Hann mætti einn góðan dag á skrifstofuna, grannur og snagg- aralegur náungi og vildi ræða ungmennafélagsmót fyrir austan. Það var kraftur og eldmóður sem bjó í Hermanni, maður skynjaði það strax og áttaði sig á að þarna var maður athafna og verka. Heil- brigð sál í hraustum líkama var hans manifesto í orðum og gjörð- um. Hermann hafði ekki bara metnað fyrir eigin heilbrigða at- gervi, heldur brann hann af metn- aði fyrir heilbrigðu samfélagi, heilbrigð sál í hraustum líkama. Þennan dag kynnti hann mér stórar hugmyndir um þátttöku HSV í unglingalandsmóti á Egils- stöðum um komandi verslunar- mannahelgi. Einn, tveir og ég var strax orðinn þátttakandi í þessu verkefni og Hermann labbaði út með styrkinn sem hann var á hött- unum eftir. Um haustið gekk svo glæsileg sveit HSV inn á opnun- arhátíð unglingalandsmótsins. Fjölmennasta sveit HSV á lands- móti fram að þeim tíma og hefur enn ekki verið toppað. Þegar Her- mann tók að sér verkefni fyrir ungmennafélagshreyfinguna þá lagði hann þau undantekninga- laust með laglegum hælkrók. Ég kynntist Hermanni betur nokkrum árum seinna í störfum hans sem formaður Knattspyrnu- félagsins Harðar og fyrir Héraðs- samband Vestfjarða. Þar naut ég enn frekar eldmóðs hans og ótrú- legs krafts til verka fyrir íþrótta- og ungmennafélagshreyfinguna. Eldmóður sem aldrei slokknaði, sýn sem aldrei hætti að horfa fram á veginn. Þegar ég ræddi við Her- mann í síðasta skipti var hann ennþá með skarpa sýn til framtíð- ar, með ný verkefni í deiglunni og krefjandi áskoranir í sigtinu. Framlag Hermanns fyrir hreyfinguna og samfélagið hér vestra var og er ómetanlegt og verkefnin óteljandi sem hann kom að á sínum langa ferli sem ung- mennafélagi. Hann var fyrirmynd annarra ungmennafélagsmanna og kenndi okkur hinum að með festu og vilja er hægt að gera ótrúlega hluti. Hermann gaf líf sitt og krafta í verkefni sem voru stærri en hann sjálfur. Hann nýtti sína krafta til að vinna að verkefnum sem skil- uðu meira til samfélagsins en til hans sjálfs. Það er gjöfin sem hann gaf mér og það er minningin sem ég mun geyma í hjarta mínu um ókomna tíð. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Jón Páll Hreinsson. Mig langar að minnast frænda míns Hermanns Níelssonar með nokkrum orðum. Illvígt krabba- mein felldi þennan holdgerving hraustleikans og regluseminnar á nokkrum mánuðum. Auk skyld- leikans að vera bræðrasynir var aðeins eitt ár á milli okkar í aldri og við ólumst upp í sömu húsum frá fæðingu til framhaldsskólaald- urs. Tengingin milli okkar var sterk þótt ólíkt hefðumst við að í gegnum tíðina og lengst af hvor í sínum landshlutanum. Hjá Hemma beygðist krókurinn snemma að íþróttum, enda lipur, sterkur, skipulagður og fylginn sér. Liðtækur í bæði boltaíþrótt- um og ýmsum greinum frjálsra íþrótta. Honum var leikur einn að taka heljarstökk aftur á bak úr kyrrstöðu úti á grasbletti. Hann menntaði sig sem íþróttakennari auk þess að læra „ættariðnina“, málaraiðn. Sem púki sagðist hann ætla að verða alþingismaður og var hlegið að. En sú ætlan hans gekk upp eins og ýmislegt annað. Hemmi var varaþingmaður fyrir Austurland og sat á þingi nokkr- um sinnum á árunum 1991 til 1995. Þar var hann trúr sínum hugsjón- um og lagði áherslu á málefni íþrótta og vímuefnavarna. Hemmi hafði ríka réttlætiskennd og sterk- ar hugsjónir. Hann var síhugsandi um hvernig koma mætti hugsjón- um sínum í framkvæmd. Skipu- lagshæfileika sína notaði hann á öllum þeim sviðum sem hann vann að og víða kom hann við. Undanfarnar vikur hafa minn- ingarnar um uppvöxtinn í „mál- arablokkinni“ og í Arnardal hrúg- ast upp. Samlífið í blokkinni var að mörgu leyti sérstakt. Föðurafi og -amma í sinni íbúð og fjórir synir þeirra hver í sinni íbúð með sínar fjölskyldur. Þetta styrkti ættar- tengslin og ekki síður samveran í Arnardal. Öll uppvaxtarárin var farið í dalinn á sumrin og stund- aður heyskapur fyrir kindurnar hans afa. Venjulegt sumarfrí var ekki á dagskrá fyrr en á fullorðins- árum. Sem dæmi um hugsun Hemma frá unga aldri var að þeg- ar Kristinn bróðir hans fæddist og Hemmi 12 ára gamall kallaði hann mig til skrafs í stigagangi blokk- arinnar. Hann var þá búinn að spá í hvort við í blokkinni næðum ekki í heilt fótboltalið þegar fram liðu stundir, við værum þegar orðnir sex strákarnir á aldrinum 0 til 12 ára. Minningarnar úr Arnardal eru mýmargar og ég veit að dalurinn var Hemma mjög hugstæður. Ein minningin er algjörlega úr takt við nútímann. Þegar mikið lá við í hey- skapnum var oft gist um helgar í dalnum og lengur ef þess þurfti. Mjólkin fyrir mannskapinn var sótt í Neðri-Arnardal og voru margar gönguferðirnar með mjólkurbrúsa farnar í þeim til- gangi. Létt ganga niður eftir með tóman brúsa en dálítið þyngri fyrir skrefstutta til baka með brúsann fullan. Margt leitar á hugann og minn- ingin um góðan dreng lifir. Elsku Gunna; Dóra, Níels, Rafn, Nína Dagrún og fjölskyldur. Við vottum ykkur okkar innileg- ustu samúð. Guðmundur og Bryndís. Það er komið að leiðarlokum, í dag kveðjum við Hermann Níels- son, vin og félaga í handboltadeild Harðar á Ísafirði. Hermann var eldhugi og framkvæmdamaður í allri uppbyggingu málefna íþrótta, með brennandi áhuga á að efla ungt fólk til þátttöku í starfi íþróttahreyfingarinnar. Hann hafði eldheita ástríðu og köllun, sem hann fylgdi fast eftir með því að hvetja ungt fólk til þjálfunar í íþróttum og að stunda þær, gera að sínum lífsstíl og vinna til af- reka. Leggja heilbrigðan grund- völl að sínu lífi, hafa reglu og ögun á sínu daglega starfi og stefna hátt. Þannig munum við hann, at- hugulan, glaðan, snöggan og kappsaman fyrir hönd nemenda sinna og félaga, alltaf að leita nýrra leiða, hvetja, leiðbeina og hlusta. Hann var líka góður félagi, athugull, hlýr og umfram allt bón- góður og tryggur. Það er ekki á neinn hallað að segja að það var fyrst og fremst fyrir hans tilstuðl- an sem íþróttafélagið og íþrótta- deildir Harðar byggðust upp að nýju. Þar fór hann fram með sínu alkunna kappi, eljusemi og tryggð við félaga sína og félag, en ekki síst af ást til íþróttanna. Nutum við félagar hans alls góðs og gleði af samstarfinu við hann. Hermann var alltaf til staðar, á æfingum, á leikjum, alltaf jákvæður. Hann átti til að segja eftir leik: „Þetta var gott í dag, það er framför í gangi“ og ef ekki gekk sem skyldi: „Þetta er allt að koma, það verður betra næst“. Alltaf gott að líta fram á við og gera betur, skref fyrir skref. Fjölskylda mín kveður hér góðan vin og frábæran félaga. Megi góða minning þín, gleði fylgja í ranni, hjartans vinurinn sanni. Aldraðri móður, konu, börnum og fjölskyldum og systk- inum og fjölskyldum vottum við dýpstu samúð. Ragnheiður Hákonar, Guðbjartur, Jóhann Gunnar og systkini. Leiðtoginn, eldhuginn, fræðar- inn og hugsjónamaðurinn Her- mann Níelsson er fallinn frá. Fátt kemur meira á óvart en fráfall hraustmennis á góðum aldri, sem kennir okkur að lífið er ófyrirsjáanlegt og hefur oft skrítna forgangsröðun. Barátta Hermanns við illvígan sjúkdóm var hetjuleg, en enginn má sköp- um renna. Okkur austfirskum samstarfs- mönnum Hermanns verður litið til baka á þessari örlagastundu. Við sjáum fyrir okkur mann sem með eldmóði sínum hreif ungu kyn- slóðina með sér og leiddi hana til ótrúlegra afreka. Ef hæfileikar voru fyrir hendi fann Hermann þá. En hann var ekki aðeins Hermann Níelsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Útfararþjónusta síðan 1996 ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST Áratuga reynsla Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Allan sólarhringinn Útfararþjónusta í 20 ár Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G.Guðmundsson Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker Þjónusta allan sólarhringinn Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300 www.fylgd.is • fylgd@fylgd.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.