Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Einar Falur Ing-
ólfsson heldur
fyrirlestur í
Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar
á morgun kl. 15 í
tengslum við sýn-
inguna Listamað-
ur á söguslóðum
þar sem sjá má
teikningar frá Ís-
landsferðum danska listmálarans
Johannesar Larsen sumrin 1927 og
30, en teikningar hans af sögustöð-
um á Íslandi birtust í danskri útgáfu
Íslendingasagna árið 1930.
Í fyrirlestri sínum fjallar Einar
Falur um sýn tveggja listamanna,
þ.e. W.G. Collingwood og Larsen á
staði sem koma fyrir í Íslendinga-
sögunum. Einar Falur bregður upp
myndum sem listamennirnir unnu
hér, í mörgum tilvikum á sömu stöð-
um, og sýnir eigin ljósmyndir.
Listamenn á
söguslóðum
Einar Falur Ingólfsson
pakka, blæbrigðin mörg og ólík. Upp-
byggingin er sérkennileg, lagið eig-
inlega laun-súrrealískt, alveg rosa-
lega „íslenskt“ og maður sér
höfundana glotta við tönn þegar þeir
settu það saman.
Versin, og hvernig samsöngvarnir
þar eru útsettir, fylgja snilldarstíl-
brögðum, framvinda lagsins er flott –
það dregur mann fastar að sér eftir
því sem á líður – og epískt viðlagið er
vel heppnað. Sviðsframkoma og
frammistaða einstakra söngvara er
þá með miklum glæsibrag en fremst-
ur fer þó meistari Björn Jörundur.
Það er eins og glettinn og söngvís
glæpaforingi frá Chicago hafi tekið
yfir sviðið og hann leiðir lagið með
stórglæsilegum leikrænum tilþrifum.
Ég gæti skrifað endalaust um þetta
undarlega magnaða lag en ég verð að
stoppa plássins vegna.
Unbroken (Lítil skref)
Lag og texti: Ásgeir Orri Ásgeirsson,
Pálmi Ragnar Ásgeirsson og
Sæþór Kristjánsson
Flytjandi: María Ólafsdóttir
Svo ég haldi aðeins áfram með skil-
greiningu sem ég var að dæma dauða
og ómerka rétt áðan, þá er þetta
kannski Eurovisionlegasta lagið í
kippunni. Stóreflis dramapopp að
hætti Celine Dion og menn eru ekkert
að spara til í epíkinni. Lagið gengur
þannig vel upp, viðlagið krækir fast í
mann en stjarna lagsins er þó söng-
konan unga, María Ólafsdóttir. Hún
ljær því nákvæmlega það púður sem
lagið kallar á; söngurinn er orkuríkur,
ástríðufullur og einkar sannfærandi.
Vel gert.
Dance Slow (Í kvöld)
Lag og texti: Elín Sif Halldórsdóttir
Flytjandi: Elín Sif Halldórsdóttir
Einfalt, viðvæmnislegt og snoturt.
Mjög svo reyndar. Söngröddin er fal-
leg, blíð og sakleysisleg. Hún er við
það að bresta á köflum og gefur það
henni enn meira vægi. Léttar gít-
arstrokurnar og klæðnaður Elínar á
sviði undirstrika nokkurs konar Pollý-
önnuanda og reyndar bera alltumlykj-
andi krúttlegheitin smíðina nánast of-
urliði á köflum. Heiðarlegur, innilegur
flutningurinn nær þó að varna því að
lagið detti ofan í hreina klisju. Og að
flytja eigið lag og texta á sviði í svona
keppni, ekki nema sextán vetra, fær
mann til að taka hofmannlega ofan.
Once Again (Í síðasta skipti)
Lag: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir
Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson
Texti: Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir
Orri Ásgeirsson, Sæþór Kristjánsson
og Friðrik Dór Jónsson
Flytjandi: Friðrik Dór Jónsson
Friðrik Dór er flottur og vefur
þessu lagi – og áhorfendum eins og sjá
mátti – kankvís um fingur sér. Nett
Michael Bublé/Robbie Williams ára
stafar af okkar manni og þessi háa
rödd tengir inn í þessa ofurvinsælu,
jarðtengdu söngvara (Ed Sheeran
o.fl.). Það er klassi yfir lagasmíðinni,
hún er gamaldags, viljandi hallærisleg
nánast og borin upp af traustri, dug-
andi melódíu. Friðrik keyrir þetta svo
allt saman í gegn á áreynslulausum
sjarmanum.
Milljón augnablik
Lag: Karl Olgeir Olgeirsson
Texti: Haukur Heiðar Hauksson
og Karl Olgeir Olgeirsson
Flytjandi: Haukur Heiðar Hauksson
Líkt og með „Piltur og stúlka“ er
þetta lag dulítið furðulegt. Það er
bundið markvissri stígandi frá fyrsta
tóni til hins síðasta, líkt og það sé allt-
af að byrja, „tækni“ sem er mjög
greinilega sótt í brunn Coldplay og
Sigur Rósar. En það sem mest er um
vert, þessi glúrna og óvenjulega leið
skilar ansi áhrifaríkri tónsmíð. Þetta
stöðuga ris dregur mann ljúflega inn
og um lagið renna upplífgandi, styrkj-
andi straumar. Haukur Heiðar er þá
mjög öruggur í söngnum og leiðir lag-
ið glæsilega til lykta.
900-9906 Friðrik Dór Jónsson er sjarmerandi í Once Again.
900-9904 María Ólafsdóttir er sannfærandi og orkumikil í Unbroken.
900-9905 Elín Sif syngur lag sitt Dance Slow af einlægni og fegurð.
900-9907 Haukur Heiðar Hauksson er öruggur í Milljón augnablik
Hugskot nefnist fyrsta einkasýning
Lukku Sigurðardóttur sem opnuð
verður í Ekkisens í dag milli kl. 17-
19. „Á sýningunni fjallar Lukka um
það sem gerist á bakvið tjöldin í
hugarheimi hennar þessa stundina.
Efniviðir verkanna eru margskon-
ar en Lukka vinnur í það efni sem
hentar best hverju sinni og er efnis-
valið því oft á tíðum óhefðbundið.
Á sýningunni er meðal annars
innsetning úr kynlífsleikföngum,
vídeó, skúlptúr og ljósmyndir. Hún
vinnur út frá ástinni í þessum verk-
um eins og oft áður og kemur það
sér því vel að hafa opnunina á sjálf-
an Valentínusardaginn,“ segir í til-
kynningu frá sýningarhaldara.
Innsetning úr kynlífsleikföngum
Einkasýning Lukka Sigurðardóttir.
leikhusid.is Konan við 1000° – ★★★★ „Í stuttu máli fá töfrar leikhússins að njóta sín“
– Morgunblaðið
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Sjálfstætt fólk - hetjusaga (Stóra sviðið)
Lau 14/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/2 kl. 19:30 22.sýn Fös 6/3 kl. 19:30 25.sýn
Fim 19/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 27/2 kl. 19:30 23.sýn Lau 7/3 kl. 19:30 26.sýn
Fös 20/2 kl. 19:30 21.sýn Lau 28/2 kl. 19:30 24.sýn Sun 15/3 kl. 19:30 27.sýn
Ný sviðsetning frá sömu listamönnum og færðu okkur Engla alheimsins.
Konan við 1000° (Kassinn)
Sun 15/2 kl. 19:30 lokas. Fim 26/2 kl. 19:30 Aukas. Fim 5/3 kl. 19:30 Aukas.
Athugið - síðustu sýningar. 5 stjörnu sýning - einstök leikhúsupplifun.
Karitas (Stóra sviðið)
Sun 15/2 kl. 19:30 33.sýn Sun 1/3 kl. 19:30 35.sýn
Sun 22/2 kl. 19:30 34.sýn Sun 8/3 kl. 19:30 36.sýn
Athugið - síðustu sýningar. Seiðandi verk sem hlotið hefur frábærær viðtökur.
Ofsi (Kassinn)
Lau 14/2 kl. 19:30
Allra síðustu sýningar!
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 14/2 kl. 13:00 Frums Lau 21/2 kl. 13:00 5.sýn Lau 28/2 kl. 13:00 9.sýn
Lau 14/2 kl. 15:00 2.sýn Lau 21/2 kl. 15:00 6.sýn Lau 28/2 kl. 15:00 10.sýn
Sun 15/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 22/2 kl. 13:00 7.sýn Sun 1/3 kl. 13:00 11.sýn
Sun 15/2 kl. 15:00 4.sýn Sun 22/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 1/3 kl. 15:00 12.sýn
Kuggur og félagar geysast nú upp á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn!
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 21/2 kl. 14:00 Frums. Lau 28/2 kl. 16:00 4.sýn Lau 14/3 kl. 14:00 7.sýn
Lau 21/2 kl. 16:00 2.sýn Lau 7/3 kl. 14:00 5.sýn Lau 14/3 kl. 16:00 8.sýn
Lau 28/2 kl. 14:00 3.sýn Lau 7/3 kl. 16:00 6.sýn
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Martröð (Aðalsalur)
Lau 21/2 kl. 21:00
Skepna (Aðalsalur)
Sun 1/3 kl. 20:00
AUKASÝNING
Björt í sumarhúsi (Aðalsalur)
Lau 14/2 kl. 15:00 Lau 28/2 kl. 15:00
Eldbarnið (Aðalsalur)
Sun 15/2 kl. 14:00 Sun 22/2 kl. 14:00 Sun 1/3 kl. 14:00
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/3 kl. 19:00 frums. Sun 15/3 kl. 19:00 6.k. Fim 26/3 kl. 19:00 aukas.
Lau 7/3 kl. 19:00 2 k. Þri 17/3 kl. 19:00 aukas. Fös 27/3 kl. 19:00 aukas.
Sun 8/3 kl. 19:00 3.k. Mið 18/3 kl. 19:00 7.k. Sun 29/3 kl. 19:00 10.k
Þri 10/3 kl. 19:00 aukas. Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Mið 8/4 kl. 19:00 11.k
Mið 11/3 kl. 19:00 4.k. Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Fim 9/4 kl. 19:00 12.k
Fim 12/3 kl. 19:00 5.k. Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Lau 11/4 kl. 19:00 aukas.
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 15/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Síðustu sýningar
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 15/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 21/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 22/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Lau 21/3 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 6/3 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 7/3 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Lau 14/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 17:00 Lau 28/2 kl. 20:00
5 stjörnu skemmtun að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 14/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00 Lau 14/3 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00 Lau 28/2 kl. 20:00 Lau 21/3 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00 Fös 13/3 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas. Fim 19/2 kl. 20:00 Sun 1/3 kl. 20:00
Sun 15/2 kl. 20:00 11.k Sun 22/2 kl. 20:00
Mið 18/2 kl. 20:00 12.k Fim 26/2 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Taugar - Íslenski dansflokkurinn (Nýja sviðið)
Sun 15/2 kl. 20:00 3.k. Sun 22/2 kl. 20:00 4.k. Fim 26/2 kl. 20:00 5.k.
Tvö nýstárleg og óhefðbundin dansverk
Beint í æð! –★★★★ , S.J. F.bl.