Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015 HÁR Dreifingaraðili Hús verslunarinnar, Kringlunni 7 – har@har.is – s. 568 8305 – Vertu vinur okkar á Þetta eru Sweetheart teygjurnar • Enginn höfuðverkur • Rífa ekki hárið • Engin för • Ekkert slit • Fast hald • Fyrir allar hárgerðir • Varist eftirlíkingar! Invisibobble er einstök uppfinning! Skoðið hárgreiðslurnar gerðar með invisibobble á facebook Hár ehf Sölustaðir: Lyf og heilsa, Melabúðin og helstu hárgreiðslustofur Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Allmikill munur er á launahækk- unum sem urðu á vinnumarkaðnum frá 2013 til 2014. Hreint tímakaup framhaldsskólakennara hækkaði mest, eða um 14,6%, en minnst var hækkunin á hreinu tímakaupi hjá ríkisstarfsmönnum innan BSRB, 4,9%. Þetta kemur fram í niðurstöð- um skýrslu heildarsamtaka vinnu- markaðarins: Í aðdraganda kjara- samninga, efnahagsumhverfi og launaþróun, sem var birt í gær. Skýrslan var unnin af tveimur vinnuhópum samstarfsnefndar um launaupplýsingar og efnahagsfor- sendur kjarasamninga, sem vann m.a. upp úr ýtarlegum gögnum Hagstofunnar um launaþróun. Ef litið er yfir tímabilið allt frá árinu 2006 til september á síðasta ári sýnir samanburðurinn m.a. að laun ríkisstarfsmanna í stéttar- félögum innan ASÍ hafa hækkað mest á þessu tímabili, en laun starfsmanna í aðildarfélögum BSRB hjá sveitarfélögum minnst. Fjallað er ítarlega um kjara- samningagerð á öðrum Norðurlönd- um, norræna kjarasamningalíkanið, í úttektinni og bent er á að á Norð- urlöndunum hefur skapast löng hefð fyrir verklagi við gerð kjara- samninga og samskiptum milli sam- taka launafólks og atvinnurekenda og stjórnvalda sem læra megi af. ,,Áherslan hefur legið á að viðhalda samkeppnisstöðu landanna og stöð- ugu gengi gjaldmiðla. Þannig hefur útflutningsiðnaðurinn jafnan verið leiðandi um launaþróunina,“ segir í niðurstöðum. Í stað þess að þeir sem fyrstir semji beri skarðan hlut frá borði hafi fordæminu verið fylgt og aðrir samningar til lykta leiddir samkvæmt því. Þetta fyrirkomulag hafi í stórum dráttum staðist tím- ans tönn, jafnvel þótt gengi gjald- miðla fljóti og verðbólgumarkmið leysi fastgengisstefnu af hólmi sem leiðarljós peningastefnu. ,,Gerð kjarasamninga á Íslandi víkur í grundvallaratriðum frá þessari nor- rænu fyrirmynd,“ segir í saman- tektinni. Launabreytingar í útflutnings- greinum gefa ,,merkið“ ,,Íslenska leiðin hefur verið sú að samkeppnishæfni er viðhaldið með gengislækkunum og er þannig í hrópandi andstöðu við norrænu leiðina sem byggir á stöðugu gengi. Staða sjávarútvegs sagði löngum fyrir um nauðsynlegar gengislækk- anir með svipuðum hætti og staða útflutningsgreina annars staðar á Norðurlöndum hefur markað svig- rúm til launabreytinga. Ýktar geng- issveiflur hafa öðru fremur mótað efnahagsþróun það sem af er öld- inni og m.a. ráðið miklu um þróun launahlutfallsins (hlutar launa í verðmætasköpuninni). Mótun nýrra vinnubragða við gerð kjarasamn- inga hér á landi mun taka tíma og ráðast af íslenskum aðstæðum. Augljós fyrstu skref hafa verið stig- in hvað varðar sameiginlegt mat á launatölfræði og ástandi og horfum í efnahagsmálum,“ segir í skýrsl- unni. Bent er á að viðmiðið fyrir launa- breytingar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sé samkeppnishæfni land- anna. „Í ljósi viðmiðsins liggi beint við að kjarasamningar séu gerðir fyrst í útflutningsgreinum og þær launabreytingar sem þar er samið um verða leiðandi (gefa „merkið“) um niðurstöður annarra samninga,“ segir ennfremur. Launaþróun 2006-2014 Breyting launa frá fyrra ári á almennum vinnumarkaði og hjá ríki og sveitarfélögum Alm. Ríki Sv.fél B re yt in g f.f .á ri ,% 2006 11,2 8,9 12,0 2007 8,4 7,8 5,3 2008 8,3 12,7 12,7 2009 3,2 1,0 5,9 2010 5,1 2,1 1,7 2011 9,2 9,2 8,2 2012 4,8 4,2 3,7 2013 6,0 6,1 5,0 2014* 5,3 6,2 7,7 14 12 10 8 6 4 2 0 Heimild: Í aðdraganda kjarasamninga. Skýrsla heildarsamtaka vinnumarkaðarins, febrúar 2015* 3. ársfjórðungur Ólíkar launahækkanir á vinnumarkaðnum  Gerð kjarasamninga á Íslandi ,,í hrópandi andstöðu við norrænu leiðina“ skv. úttekt heildarsamtaka vinnumarkaðar Kaupmáttur launa og gengi krónunnar Kaupmáttur v.ás Gengi kr., h-ás 2005 2007 2009 2011 20132006 2008 2010 2012 2014 110 105 100 95 90 85 250 200 150 100 50 0 Heimild: Í aðdraganda kjarasamninga. Skýrsla heildarsamtaka vinnumarkaðarins, febrúar 2015 Í launaúttektinni í skýrslu heildar- samtakanna á vinnumarkaði var einnig kannað hvernig launin dreif- ast og skoðað sérstakelga hvernig laun 10% launalægstu launþeganna og 10% launahæstu hefur þróast frá 2008 til 2014. „Launalægstu 10% á almennum vinnumarkaði voru með 40% af reglulegum launum þeirra launa- hæstu árið 2008 en 44% árið 2010 og sama hlutfall árið 2014. Hlutur launalægstu starfsmanna sveitarfé- laga í aðildarfélögum BSRB hefur aukist hlutfallslega mest. Árið 2008 voru regluleg laun þeirra 45% af launum launahæstu 10%, en 56% ár- ið 2014,“ segir í niðurstöðum. Í ítarlegri úttekt á launaþróun seinustu ára kemur fram að laun á almennum markaði hafa hækkað að- eins meira en hjá hinu opinbera samkvæmt þróun launavísitölunnar frá 2006 til 2014. Frá 2013 til 2014 hækkuðu laun á opinberum markaði hins vegar ívið meira en á hinum al- menna að því er fram kemur í skýrslunni. Þegar lagt er mat á launaþró- unina, bæði vegna kjarasamnings- bundinna hækkana og launamynd- unar sem á sér stað vegna launa- skriðs, starfsmats o.fl., má sjá að af einstökum heildarsamtökum og samningssviðum hafa laun félags- manna í ASÍ-félögum sem starfa hjá ríkinu hækkað mest á öllu tímabilinu frá 2006 og fram í september 2014 eða um 73,9%. Laun félagsmanna innan BHM hækkuðu um 62% hjá ríki og sveit- arfélögum frá 2006 til september á síðasta ári. Á sama tímabili hækk- uðu laun félagsmanna innan BSRB um 57,4% hjá sveitarfélögum og heldur meira hjá ríkinu, um 61%. Fram kemur í skýrslunni að laun BSRB-félaga hafa ekki haldið í við launavísitölu á þessu tímabili. Laun félagsmanna í KÍ hafa hins vegar hækkað umfram launavísitölu á tímabilinu. „Fyrst og fremst skýrist það af mun meiri hækkunum en aðr- ir fengu milli áranna 2013 og 2014. En laun kennara hækkuðu minna en nemur launavísitölu á árabilinu 2010 til 2013 og kennarar, einkum í fram- haldsskólum, drógust nokkuð aftur úr öðrum,“ segir þar. omfr@mbl.is Hlutur launa- lægstu hópanna hefur aukist  BSRB hélt ekki í við launavísitölu Morgunblaðið/Ómar Markmið Með úttektinni á að leggja grunn að nýjum kjarasamningum. Alþjóðlegur samanburður í skýrslunni leiðir í ljós að hlutfall launa af verðmætasköpuninni er mjög hátt hér á landi og raunar hvergi hærra. ,,Á hinn bóginn eru laun á hverja unna klukku- stund tiltölulega lág í samanburði við flest þau Vestur-Evrópuríki sem við berum okkur oftast sam- an við. Þetta kann að sýnast mótsögn, en skýringin liggur í lítilli framleiðni hér á landi og samsvörun er á milli stöðu landsins í samanburði við önnur lönd á mælikvarða launa og framleiðni,“ segir í skýrslunni. Þar er jafnframt bent að framleiðni hér á landi er 75-80% af meðaltali viðskiptalanda Íslands. Lág laun á hverja klukkustund FRAMLEIÐNI AÐEINS 75-80% AF MEÐALTALI VIÐSKIPTALANDA Að störfum. Mat á kaupmáttarþróuninni í skýrslu heildarsamtakanna á vinnumarkaði leiðir í ljós að kaup- máttur á mælikvarða launavísitölu hefur aukist samfellt síðastliðin fimm ár. Alls nemur kaupmátt- araukningin um 11% frá nóvember 2010 til september 2014, eða um 2,5% að jafnaði á ári. ,,Frá nóv- ember 2013 til september 2014 jókst kaupmáttur um 4,2% og var kaupmáttarstigið þá orðið hið sama og í nóvember 2007, segir í skýrsl- unni. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur aukist mun hægar en kaup- máttur miðað við launavísitölu. Fram kemur í úttektinni að launa- tekjur hafa aukist hægar en launa- vísitala og eignatekjur lækkuðu mikið í kjölfar hrunsins 2008, en einnig þyngdist byrði beinna skatta. Vísað er í spár Seðlabank- ans um að kaupmáttur ráðstöf- unartekna heimila í heild hafi auk- ist um tæp 5% í fyrra, um tæp 6% í ár og tæp 4% árið 2016. Kaupmáttur laun- anna eykst að jafn- aði um 2,5% á ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.