Morgunblaðið - 23.02.2015, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Egill Helgason, virtur starfs-maður „RÚV“, fer á líming-
unum þegar Reykjavíkurbréf birt-
ist á sunnudögum. Hann hefur opin-
berlega fordæmt Eyjuna, sem er
annar vinnuveitandi hans til, fyrir
að vitna í
Reykjavíkurbréf,
slíkt „rugl“ sem þau
séu. Egill hefur oft
bent á að enginn lesi
Morgunblaðið og
því eru þessi köst
hans áhugaverð.
Eftir síðastaReykjavíkur-
bréf tekur Egill
kollhnís, sem eru
töluverð viðbrögð af
hans hálfu. Eyjan
fullyrðir að á Fés-
bók skrifi Egill að
Reykjavíkurbréfið
sé „sprenghlægilegt“ og „þvílík
misnotkun á einu dagblaði!“
Og Egill segir svo: HHG (HannesHólmsteinn) við EH við
Reykjavíkurtjörn sumarið 2012
(það voru vitni): „Ég skal segja þér
það Egill að í þessari herferð sem
við erum að fara í núna verður þú
ekki tekinn fyrir.“ Bersýnilegt að
þarna hefur Agli verið hótað því í
vitna viðurvist árið 2012 að hann
yrði ekki ofsóttur á næstu árum.
Vitnin munu vera Egill sjálfur og
nánasta fjölskylda. Sá vitnisburður
vegur auðvitað þungt.
Það bætir ekki úr skák að þessióhugnanlegi atburður átti sér
stað „Við Reykjavíkurtjörn“ og
margir vita hvaða fól orti það. Góð-
viljaðir menn hljóta því að fordæma
þessa hótun um viðvarandi ofsókn-
arskort, sem virðist hafa verið stað-
ið við, sem undirstrikar bara
óþverraskapinn.
Menn ættu að senda Agli blómtil huggunar, þó ekki fleiri
stjúpur.
Egill Helgason
Agli merka hótað
STAKSTEINAR
Hannes
Hólmsteinn
Gissurarson
Veður víða um heim 22.2., kl. 18.00
Reykjavík -3 snjókoma
Bolungarvík -2 alskýjað
Akureyri -4 snjókoma
Nuuk -16 skýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 2 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 alskýjað
Stokkhólmur 2 léttskýjað
Helsinki 2 skýjað
Lúxemborg 3 léttskýjað
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 7 skýjað
London 6 skúrir
París 6 léttskýjað
Amsterdam 5 léttskýjað
Hamborg 6 léttskýjað
Berlín 5 skýjað
Vín 5 skúrir
Moskva 2 skýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 13 skýjað
Aþena 12 súld
Winnipeg -28 heiðskírt
Montreal -6 skýjað
New York 0 heiðskírt
Chicago -6 skýjað
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:57 18:26
ÍSAFJÖRÐUR 9:09 18:24
SIGLUFJÖRÐUR 8:52 18:07
DJÚPIVOGUR 8:28 17:54
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
Nýjar vörur
Hlýr og notalegur
ullarfatnaður
á öll börn
á góðu
verði
www.ullarkistan.is
Íbúar í Grafarholti og Úlfarsárdal
standa frammi fyrir því að þurfa að
kjósa á milli almennra og lögbund-
inna verkefna í íbúakosningu
Reykjavíkurborgar, Betri hverfi.
Hulda Guðmunda Óskarsdóttir, íbúi í
Grafarholti og formaður Félags sjálf-
stæðismanna í Grafarholti og Úlfars-
árdal, segir það ótækt að íbúum sé
stillt upp við vegg með þessu hætti.
„Hér er borgin að biðja íbúa hverf-
isins um að velja á milli verkefna sem
annars vegar falla
undir frágang
nýrra hverfa, um-
ferðaröryggi og
lög um gatnagerð-
argjald og hins
vegar verkefna á
borð við lagningu
á þjöppuðum mal-
arstíg og lýsingu á
göngustíg við
Sæmundarskóla.“
Í lögum nr. 153/2006 um gatna-
gerðargjald er kveðið á um að sveit-
arstjórn skuli verja gatnagerð-
argjaldi til gatnagerðar í sveitarfélagi
og til viðhalds gatna og annarra
gatnamannvirkja. Reykjavíkurborg
er því að mati Huldu að fría sig frá
lögbundinni ábyrgð á greiðslu til
gatnagerðar með þessum hætti.
„Íbúar eru þegar búnir að greiða
fyrir lögbundna þjónustu en eiga svo
að kjósa milli hennar og annarra
verkefna. Hér er borgin augljóslega
að reyna að fría sig frá lögbundnum
verkefnum. Að sjálfsögðu viljum við
bæta göngu- og hjólastíga, fá betri
lýsingu og fegra hverfið en ekki á
kostnað verkefna sem borginni ber
samkvæmt lögum að sinna.“
Hulda segist enn fremur harma að
Reykjavíkurborg skuli ekki huga að
umferðaröyggi íbúa með betri hætti
en að setja það í kosningu með öðrum
verkefnum.
Kosið um lögbundin verkefni
Reykjavíkurborg fríar sig frá ábyrgð í íbúakosningu í Grafarholti og Úlfarsárdal
Hulda Guðmunda
Óskarsdóttir
Í fyrrinótt stöðvuðu lögreglumenn
á eftirlitsferð akstur bifreiðar í
Heimahverfi. Athygli vakti að par
sem var í bifreiðinni hafði sæta-
skipti á ferð þegar þau urðu vör við
lögreglu. Það var karlinn sem ók
þegar lögreglumenn veittu bifreið-
inni athygli en konan var undir
stýri þegar aksturinn var stöðv-
aður.
Konan er rúmlega tvítug en karl-
inn tæplega þrítugur. Þau voru
bæði í annarlegu ástandi. Bæði
voru þau með útrunnin ökuréttindi.
Einnig fannst nokkurt magn af
fíkniefnum í bílnum.
Um nóttina var bifreið ekið á
grindverk í Skeifunni. Ökumaður
ók af vettvangi. Við áreksturinn féll
númeraplata af og var á vettvangi
þegar lögreglu bar að. Í framhaldi
var farið heim til skráðs eiganda.
Þar fyrir utan stóð bifreiðin lösk-
uð. Umráðamaður bílsins var áber-
andi ölvaður. Hann var handtekinn
og færður á lögreglustöð.
Höfðu sætaskipti er
lögregla nálgaðist
Morgunblaðið/Júlíus