Morgunblaðið - 23.02.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
36% þeirra sem beita drengi
kynferðislegu ofbeldi
eru ókunnugir karlar.
Njóttu ávallt hins besta
– steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555
Ferköntuð
fermingarveisla!
Afhentir fulleldaðir á flottum bökkum
með ljúffengum sósum til hliðar.
Sendu Simma og Jóa póst á simmiogjoi@fabrikkan.is
og þeir græja Fabrikkusmáborgara í veisluna þína!
www.fabrikkan.is
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Dæmi eru um að íbúar í Öldusölum
og Örvarssölum í Kópavogi hafi
lokast inni vegna vatnselgs á vegi
sem stendur við nærliggjandi fjöl-
býlishús í Þorrasölum 1-3. Íbúar í
fjölbýlishúsinu hafa að auki orðið
fyrir ýmiss konar óþægindum á und-
anförnum árum. Meðal annars
flæddi um metra djúpt vatn inn um
bílakjallara og að lyftum í blokkinni
fyrir um ári að sögn íbúa í blokkinni.
Asahlákan erfið
Þeir íbúar sem Morgunblaðið
ræddi við segja að vatnssöfnunin
komi fram á hverju ári í leysingatíð,
gjarnan í asahláku. Tilraunir bæj-
arins til þess að koma í veg fyrir
vandann hafa ekki skilað árangri það
sem af er. Meðal annars hefur þurft
kalla til hjálparsveit í desember á sí-
ðata ári til þess að ferja fólk sem býr
í Öldu- og Örvarssölum yfir vatns-
elginn. Að sögn íbúa hefur hjáleið þó
oftar verið ófær vegna snjóþyngsla.
Að sögn Steingríms Haukssonar,
sviðsstjóra umhverfissviðs hjá
Kópavogsbæ, er unnið að lausn á
vandamálinu þessa dagana. Hann
segir að vandann megi m.a. rekja til
golfvallar sem þar er fyrir ofan. Þar
er yfirborðstjörn sem yfirfyllist í
asahláku. Golfvöllurinn er hannaður
til þess að hrinda frá sér vatni í rásir
og tjarnir sem beina vatninu í
ákveðna farvegi. Ef fyrirstaða er í
farveginum kemst vatnið ekki sína
leið og endar í neðsta punkti fyrir
framan Þorrasali. Hann segir að
framkvæmdir standi yfir til þess að
bregðast við vandamálinu. „Þetta er
gífurlegt vatnsmagn sem getur kom-
ið á skömmum tíma í asahláku,“ seg-
ir Steingrímur.
Hola á miðjum hjólastíg
Einar Sigurðsson, íbúi í Örva-
sölum, segir að vandamálið hafi ver-
ið viðvarandi í nokkur ár og það hafi
komið upp 3-4 sinnum. „Í eitt skiptið
þegar allt flæddi grófu þeir skurð og
leiddu vatnið annað án þess að fylgj-
ast með því hvert það fór. Vatnið fór
að hjólastíg. Í gegnum hann liggur
ómalbikaður reiðstígur á um þriggja
metra kafla.
Vatnið gróf niður reiðstíginn og
þar myndaðist hola. Ég var þar á
ferð einn daginn á hjóli og var á tals-
verðri ferð þegar allt í einu var kom-
in hola í miðjan hjólastíginn. Ég var
frekar heppinn þar sem ég náði að
prjóna yfir stíginn, en ég eyðilagði
hjólið og fötin sem ég var í auk sem
ég krambúleraðist lítillega á olnboga
og hné,“ segir Einar sem var að eigin
sögn á 30 kílómetra hraða. „Ég lenti
með afturdekkið á kantinum hinum
megin og stútaði í raun hjólinu, auk
þess að renna um 15 metra á gler-
hálu malbikinu.“
Hann segir að verr hefði getað
farið.
Ljósið bjargaði miklu
„Þetta var í nóvember og mikið
myrkur en ég er með hörkuljós á
hjólinu og það bjargaði miklu,“ segir
Einar. Hann segist hafa látið bæjar-
yfirvöld vita og þau hafi viðurkennt
mistökin. Hann segir að hjólatíg-
urinn hafi verið malbikaður á þess-
um kafla stuttu síðar en nú er búið
að grafa hann upp aftur þar sem til
stendur að setja rör þar til að veita
vatninu undir stiginn. Ef vatninu
yrði veitt í þennan farveg aftur, þá
myndi vandamálið endurtaka sig
eins og sakir standa.
Hann fékk hjólið ekki bætt úr
tryggingunum. „Í mínum huga er
þetta bara búið mál og ég ætla ekki
að gera neitt meira úr þessu,“ segir
Einar.
Íbúar hafa lokast inni vegna vatnselgs
Stór tjörn hefur myndast við Þorrasali í asahláku síðustu ár Björgunarsveit ferjaði íbúa yfir vatns-
elg Verr hefði getað farið þegar hjólreiðamaður lenti í holu sem hafði verið grafin í hjólastíginn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Sem stendur er unnið að framkvæmdum við Þorrasali 1-3 til þess að reyna að koma í veg fyrir vatnssöfnun.
Flóð Einn íbúi í blokkinni birti mynd af vatnselgnum á Instagram. Þá flæddi
vatn inn um bílakjallara og inn í lyftur. Yfirborðið var um metra hátt.