Morgunblaðið - 23.02.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Við teljum að það þurfi að skoða
lagarammann og taka mið af þeim
breytingum sem hafa orðið á þess-
um markaði. Við höfum orðið öflug
fyrirtæki í úr-
gangsmálum og
sveitarfélögin
þurfa að taka af-
stöðu til þess að
hve miklu leyti
þau sinna sjálf
verkefnum sem
eru í samkeppni
við einkaaðila í
stað þess að
bjóða þau út,“
segir Bryndís
Skúladóttir, forstöðumaður um-
hverfismála hjá Samtökum iðnaðar-
ins, um stöðuna á úrgangs- og sorp-
hirðumarkaði í dag.
Bryndís segir Samtök iðnaðarins
hafa fylgst vel með þróun mála á
þessum markaði undanfarin ár, veitt
umsagnir um lagafrumvörp og átt
sæti í samstarfs- og vinnuhópum
margskonar.
„Hérna áður fyrr var úrgangur
sóttur og hann urðaður. Núna eru
verkefnin orðin flóknari með aukinni
endurvinnslu og meiri verðmætum í
þeim efnum sem tekið er við. Um-
svifin eru mun meiri en áður,“ segir
Bryndís og bendir á að einkafyrir-
tæki sinni fyrirtækjamarkaðnum án
aðkomu sveitarfélaga og gera allt
sem gera þarf, eins og að safna úr-
gangi, flokka, jarðgera, senda í end-
urvinnslu og reka móttökustöðvar.
Á þessum sviðum eru sveitarfélögin
í samkeppni við einkafyrirtækin.
„Einkaaðilar geta vel sinnt þess-
um verkefnum fyrir íbúana ef sveit-
arfélögin kjósa að bjóða það út,
þannig er það víða um land. Við vit-
um að sveitarfélögin bera ábyrgð á
flutningi heimilisúrgangs og að
starfræktar séu söfnunarstöðvar.
En þau geta boðið þetta út þó að þau
beri áfram ábyrgð í málaflokknum,“
segir Bryndís.
Gjaldskrá dekki kostnað
Samtök iðnaðarins hafa gagnrýnt
Sorpu fyrir hækkun á gjaldskrá um
síðustu áramót. Á síðasta stjórn-
arfundi Sorpu var tekið fyrir erindi
frá samtökunum þar sem m.a. var
spurt af hverju gjaldskráin hefði
ekki lækkað þegar afslættir duttu út
og hver rökin hefðu verið fyrir flatri
hækkun um áramót vegna nýrrar
gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
Einnig var spurt hve lengi þessi
hækkun ætti að standa.
Bryndís bendir á að samkvæmt
lögum eigi gjaldskráin að dekka
kostnað en ekkert umfram það.
Ekki megi niðurgreiða sorphirðu
með almennu útsvari né innheimta
umfram kostnað.
Keppi ekki
við einkaaðila
í sorphirðu
Samtök iðnaðarins vilja endurskoð-
un laga Gagnrýna hækkun Sorpu
Morgunblaðið/Ómar
Erfið tíð Starfsmenn Gámaþjónustu hirða rusl við Grettisgötu í Reykjavík.
Bryndís
Skúladóttir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Vöxtur skóga á Íslandi hefur leitt
af sér aukna þörf fyrir sérþekkingu
og sérhæfingu, ekki síst þegar
kemur að grisjun skóganna. Nýlega
hóf störf fyrsti skógvélamaður
landsins. Að auki hafa 30 manns hjá
Skógrækt ríkisins sinnt skógar-
höggi og þörf er á fleirum.
Brautarstjóri Skógfræði og land-
búnaðarbrautar hjá Háskólanum á
Hvanneyri telur að brýnt sé að
veita þeim sem sinna skógarhöggi
tilskilda þekkingu. Óttast hann að
einungis sé tímaspursmál hvenær
alvarlegt slys ber að höndum.
Rándýrt skógvélanám
Bjarni Diðrik Sigurðsson, braut-
arstjóri Skógfræði- og landbúnað-
arbrautar í Landbúnaðarháskólan-
um á Hvanneyri, segir að um 100
Íslendingar hafi sótt sér skógfræði-
menntun og iðnmenntun tengda
skógfræði til skólans. Einnig er þar
í boði endurmenntun fyrir starfandi
skógarbændur þar sem m.a. er um
að ræða námskeið í skógarhöggi.
Í frétt sem birtist á vef Skóg-
ræktar Íslands kemur fram að Ósk-
ar Grönholm Einarsson er fyrsti
menntaði skógvélafræðingurinn
hér á landi. Þar segir að skógvél-
anámið sé til þriggja ára en hann
hafi fengið um helming þess metið
úr framhaldsskóla hér heima á Ís-
landi.
,,Þetta er dýrara nám en tann-
læknanám. En það er að verða þörf
fyrir þetta hér á landi líka. Sem
stendur er bara ein svona skóg-
arhöggsvél á landinu, segir Bjarni.
Að sögn hans kostar ein vél 30
milljónir króna.
Hann segir að skógarhöggið sé
aðallega hluti af endurmenntunar-
námskeiði fyrir starfandi fólk í
skógrækt. ,,Skógarhöggið er tæp-
lega vikunámskeið þar sem fólk
lærir vinnubrögð og umhirðu á
þessum tækjum. Ekki síst er það til
að fara yfir öryggisþáttinn. Keðju-
sagir og önnur slík verkfæri geta
verið hættuleg.
Í öðrum siðuðum löndum fá
menn ekki að starfa við þetta
nema að kunna að fara með þessi
verkfæri. Hér geta menn keypt
ódýrar keðjusagir án alls hlífðar-
búnaðar sem er hreinlega lífsnauð-
synlegur ef menn ætla að vinna við
þetta. Ég bíð eftir því að hér verði
slys,“ segir Bjarni og telur hann
það vera tímaspursmál hvenær
það verður. Sérstaklega hefur
hann áhyggjur af sumarbústaða-
eigendum og þeim sem höggva tré
nærri heimilum sínum.
Illa launuð vöðvavinna
Pétur Halldórsson, kynningar-
stjóri hjá Skógrækt ríkisins, segir
að um 30 manns starfi við skóg-
arhögg hjá stofnuninni.„Þetta er
mikið vöðvavinna. Menn eru að
ganga um í skógi með þunga vél og
trjábolirnir eru þungir. Stundum
eru menn að ösla í snjó líka og erf-
itt að fóta sig,“ segir Pétur. Þrátt
fyrir að um erfiðisvinnu sé að ræða
er skógarhögg illa launuð vinna að
hans sögn.
Skógvél Óskar Grönholm Einarsson er hér að störfum við grisjun skóga. Hann lærði á skógvél í Finnlandi.
Óttast alvarlegt slys
við skógarhögg
Vöxtur skóga skapar ný störf og aukna þörf fyrir sérþekk-
ingu og sérhæfingu Um 30 manns starfa við skógarhöggið
Björn Þorfinns-
son sigraði
örugglega og
tryggði sér
áfanga að stór-
meistaratitli á
Bunratty-skák-
mótinu, sem lauk
í gær á Írlandi.
Björn hlaut 7
vinninga af 9
mögulegum, en
tíu skákmenn kepptu á mótinu. Í
öðru sæti varð Lawrence Trent
með 5 vinninga.
Fyrir mótið var Björn með 2373
skákstig og því með fæst stig þátt-
takenda. Stigahæstur var stór-
meistarinn Sebastian Maze með
2585 stig, en hann varð þriðji ásamt
fleirum með 4,5 vinninga. Bragi
Þorfinnsson varð í 6.-9. sæti með 4
vinninga.
Á laugardag vann Björn báðar
skákir sínar og gerði síðan tvö jafn-
tefli í gær. Með fyrri skákinni
tryggði hann sigurinn.
Öruggur sigur og
stórmeistaraáfangi
Björn Þorfinnsson