Morgunblaðið - 23.02.2015, Side 17
Í átta vikna ferðalagi blaðamanna Morgunblaðsins um
hverfin í Reykjavík og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu
er fjallað ummannlíf og menningu, atvinnulíf og opinbera
þjónustu, útivist og umhverfi og skóla og skipulag með
sérstakri áherslu á það sem einkennir hvern stað.
flokka þær og koma í endurvinnslu.
Fyrir það tökum við ákveðna þókn-
un en skilum íþróttafélögunum
góðri summu til baka. Þetta sparar
foreldrum að flokka dósirnar og
auðveldar íþróttafélögum alla söfn-
unina,“ segir Bendt en skátarnir
hafa t.d. verið í góðu samstarfið við
KR og önnur félög með þessum
hætti.
Starfsemin í Árbænum
Höfuðstöðvar Bandalags ís-
lenskra skáta eru í Árbænum og þar
fer einnig fram endurvinnslustarf
skátanna. „Viðskiptavinir móttöku-
stöðvarinnar fá að sjálfsögðu sitt 15
króna skilagjald á hverja einingu
eins og á öðrum stöðvum og skát-
arnir fá þóknun frá Endurvinnsl-
unni fyrir hverja afgreidda einingu.
Með því að koma með dósirnar sínar
í móttökustöðina í Hraunbænum
stuðlar fólk einnig að fleiri atvinnu-
tækifærum fyrir fatlaða, því nokkrir
einstaklingar með skerta starfsgetu
vinna við flokkunina,“ segir Bendt
en starfsemin í Árbæ dugar ekki
lengur fyrir alla starfsemina og er
hluti hennar kominn í Mjódd þar
sem safnast hefur saman heilt fjall
af dósum og flöskum til flokkunar.
„Við viljum vera í Árbænum og er-
um að leita að öðru húsnæði hérna í
hverfinu. Við erum líka með starfs-
menn í Mjóddinni þar sem er gíf-
urlegt fjall af dósum sem söfnuðust
saman eftir jólin.“
Mikið og gott starfa skáta-
hreyfingarinnar er eftirtektarvert
enda samfélagsmál að taka saman
og flokka afrakstur neyslu þjóð-
arinnar og spara um leið gjaldeyri
og hlífa nátúrunni. Söfnunargáma
skáta er að finna um allt land en auk
þess að það sé umhverfisvænt að
skila og flokka dósir er það hag-
kvæmt. Sá hluti sem skátarnir taka
til sín fer svo í að reka starfsemi
skátahreyfingarinnar um allt land.
„Við fáum ágætis summur úr þessu
starfi, sem fer í rekstur endur-
vinnslustarfsins og í styrki til
skátafélaga um allt land.“
Morgunblaðið/Kristinn
Öflugir Það eru miklir dugnaðarforkar sem vinna í endurvinnslustöðinni.
ir í Selásinn, til dæmis vegna
íþróttaæfinga og annars félags-
starfs. Raunar þurfum við sem hér
búum að sækja flest út fyrir hverf-
ið, því hér eru engar verslanir og
öll þjónustustarfsemi í lágmarki.
Sumum þykir slíkt miður, en aðrir
telja þetta hreinlega til bóta enda
skapi þetta hverfinu rólegra yf-
irbragð en ella.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Norðlingaholt Hverfið hefur verið að byggjast upp síðasta áratuginn.
Morgunblaðið/Ómar
Brúarsmíði Leiðin milli hverfa yfir Breiðholtsbraut verður bein og breið.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Árbæjarhverfi á nafn sitt að rekja
til Árbæjar sem var rótgróin bújörð
fram á 20. öld. Á jörðinni var stofn-
að safn árið 1957 og auk gamla bæj-
arins eru þar 20 hús sem þangað
hafa verið flutt. Saman mynda hús-
in gamaldags sveitabyggð í miðri
borginni þar sem fólki er gefin inn-
sýn í líf Íslendinga fyrr á tímum.
Í safninu er nú hægt að halda
barnaafmæli hátíðleg, að sögn Sig-
urlaugs Ingólfssonar, verk-
efnastjóra Árbæjarsafns. „Við er-
um að fara af stað með þetta núna
sem tilraunaverkefni. Barnaafmæli
eru haldin víða um bæ í skemmti-
görðum og okkur fannst tilvalið að
opna leikfangakost safnsins fyrir
þeim sem vilja halda afmæli hér,“
segir Sigurlaugur en á safninu er
sérstök leikfangasýning þar sem
gamaldags leikföng eru til sýnis.
Sigurlaugur segir að staðsetn-
ingu safnsins fylgi ýmsir kostir.
„Við stofnun safnsins þá var því
ætlað að standa utan við borgina
svo fólk gæti gert sér ferð úr bæn-
um til að heimsækja safnið. Nú er
svo komið að borgin hefur náð okk-
ur en því fylgir skemmtileg stemn-
ing þar sem við erum nokkurs kon-
ar sveit í borginni.“ sh@mbl.is
Ljósmynd/Árbæjarsafn
Gleði Starfsmenn safnsins klæðast líkt og Íslendingar gerðu áður fyrr.
Borgin umlykur
sveitaþorpið Árbæ
Opna leikfanga-
kost safnsins fyrir
barnaafmælum
Morgunblaðið/Eggert
Sveit Þorpið í borginni er opið
gestum allt árið um kring.
Bandalag íslenskra skáta hefur staðið fyrir söfnun
og flokkun dósa frá árinu 1989. Starfsemin hefur
stækkað töluvert á þessum 26 árum undir nafninu
Grænir skátar og nú er stefnt á enn frekari land-
vinninga. Bendt H. Bendtsen kom til starfa í
Skátamiðstöðinni í Árbæ 1. janúar 2015 sem verk-
efnastjóri Grænna skáta og segir hann spennandi
verkefni framundan. „Skátarnir eru sérfræðingar í
að safna og flokka dósir og við teljum það vera
hag allra, bæði okkar og annarra félaga og sam-
taka sem safna dósum að vinna saman.“ Skátarnir
hjálpa þá öðrum félögum að undirbúa dósasöfnun, sækja svo dós-
irnar og flokka þær fyrir væga þóknun og skila svo góðri summu til
viðkomandi félags í lok söfnunarinnar.
Sams konar þjónusta hefur ekki verið í boði fyrir heimili landsins
en Bendt segir það vel koma til greina að útvíkka þjónustuna. „Við
höfum sótt dósir til húsfélaga og fyrirtækja en ekki til einstakra
heimila. Það kemur vel til greina að útvíkka þjónustuna og við erum
að skoða með hvaða hætti við getum eflt og stækkað starfsemi okk-
ar.“
Sérfræðingar í dósasöfnun
DÓSASÖFNUN SKÁTAHREYFINGARINNAR
Bendt H. Bendtsen