Morgunblaðið - 23.02.2015, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
hemlun, minnka slit á dekkjum og
draga úr eldsneytiseiðslu þarf
fjöðrunarbúnaður að vera rétt hjólastilltur
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
564 5520
bilajoa.is
Þarf ekki að hjólastilla
bílinn þinn
Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Til að hámarka jafnvægi bílsins við
Persónuleg þjónusta og vinalegt umhverfi
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Fjölbreytt
æfingarstöð
eitthvað fyrir alla
Ketilbjöllur v Spinning v Hópatímar
Skvass v Golf hermir v Körfuboltasalur
Cross train Extreme XTX
Einkaþjálfun v Tækjasalur
12 mán. kort: kr. 59.900,- (ekki skvass)
nánar á veggsport.is
Nú skal sparkað,
klórað og dregið fyrir
nefnd, og þar situr jú
sannsögult, mistaka-
laust fólk, sem telur
sig hafa efni á að yf-
irheyra og dæma
aðra. Vinstri, jafnaðar
og Píratar, þar er fólk
svo sannsögult, að það
verður að taka á
Hönnu Birnu. Þið er-
uð búin með Geir H.
Haarde. Síðan hefja upp raust sína
tvær konur, stjórnsýslu- og stjórn-
málafræðingur, sem segja að málið
sé einstakt og nota stór og meið-
andi orð: „rúin trausti“. Sé ykkur
þetta einstakt mál, þá eruð þið
vanhæfar.
Kemur á óvart dómur frá konum
um konu? O, nei. Hvernig vogið þið
ykkur að tala um traust ? Hér
kemur örlítið brot af trausti. Jó-
hanna Sigurðardóttir gaspraði í yf-
ir 30 ár um hagi þeirra lægst laun-
uðu, en er hennar tími kom fór
hún, eini stjórnmálamaðurinn, og
skerti grunnlífeyri hinna lægst
settu, sætti ákæru sem forsætis-
ráðherra og hvað hún gerði fyrir
bankana, á eftir að koma í ljós. –
Rúin trausti. Steingrímur J. laug
til um afstöðu sína til ESB og vildi
samþykkja Icesave og hvað hann
gerði fyrir peningaelítuna, á eftir
að koma í ljós, – rúinn trausti.
Birgitta Jónsdóttir, úr ræðustóli
Alþingis vildi láta kæra lögregluna
fyrir störf í Auðbrekkumálinu, vildi
sjálfsagt hefna sín, því að Hanna
Birna talaði til hennar í þessu máli,
– rúin trausti. Allt Samfylking-
arfólk sem vill í ESB og að skrifa
undir Icesave og stundar niðurrif,
– rúið trausti. Svandís Svav-
arsdóttir sætti ákæru og hlaut dóm
og stendur fyrir sovét-forræð-
ishyggju, – rúin trausti. Katrín
Jakobsdóttir, sem
stýrði öllum í nám á
kostnað þjóðarinnar í
staðinn fyrir uppbóta-
vinnu, hvernig stendur
ákæra Ólafs skóla-
stjóra á hendur henni?
– Rúin trausti. Guð-
mundur Steingrímsson
vill brjóta mín mann-
réttindi með því að
opna landið alfarið og
vill ekkert nema að
ganga í ESB, – rúinn
trausti. Einn góður af
þeim eldri, því að
hann gasprar enn, vildi samþykkja
Icesave, jú orðhákurinn Svavar
Gestsson, – rúinn trausti. Þetta er
aðeins brot af því fólki sem vill
dæma aðra.
Finnist stjórnmálafræðingum
það sem ég hef talið upp bara í lagi
þá þarf að athuga innrætingu þess-
ara spekinga í Háskólanum. – Rún-
ir trausti. Ögmundur Jónasson,
vonbrigði að þú ætlir Hönnu Birnu
fyrir nefnd, væruð þið sjálf traust-
vekjandi fólk án mistaka, en svo er
það nú bara ekki. Þið hljótið að
kalla til Stefán Eiríksson, en ég
trúi honum ekki umfram Hönnu
Birnu, hann var of fljótur að skipta
um starf.
En þið ætlið víst ekki að hætta
að sparka í liggjandi fólk. Að upp-
hefja sig á tárum annarra fer aldr-
ei vel. Það mun koma í ljós hversu
ljótt þetta mál er frá hendi þeirra
er að því standa.
Leki hvað? Frá því að ég fór að
muna eftir mér og að fylgjast með,
þá hefur kerfið og stjórnmálin lekið
og ekki er dómskerfið uppá marga
fiska. Í öllum bænum lítið í eigin
barm áður en þið sparkið svona.
Lítilmennið Hallgrímur Helgason
fann hjá sér hvöt í hátíðardagskrá
RÚV að niðurníða Hönnu Birnu,
væntanlega voru börn og fjöl-
skyldur að horfa. Ekki einu sinni á
hátíðisdögum er frí. En, æ, jú,
hann tilheyrir „góða fólkinu“ innan
gæsalappa. Rætið fólk fær ávallt til
baka sínar gjörðir.
Mín litla virðing á Alþingi
hrundi, er ég sá að þið ætlið ekki
að láta staðar numið með þetta
mál.
Farið að stjórna landinu, sé það
þá hægt fyrir óhæfum lít-
ilmennahópi, – sem er of stór. Ég
vil viturt fólk á þing, þá kannski
kýs ég aftur, hef ekki kosið, því að
mér hugnast ekki lýðurinn sem þar
situr.
Ég trúi ekkert frekar umboðs-
manni Alþingis frekar en Stefáni
Eiríkssyni, ber meira traust til
Hönnu Birnu en ykkar sem ég hef
talið upp.
Traust ?
Eftir Stefaníu
Jónasdóttur » Það mun koma í ljós
hversu ljótt þetta
mál er frá hendi þeirra
er að því standa.
Stefanía
Jónasdóttir
Höfundur býr á Sauðárkróki.
Fasteignamarkaður-
inn í Mið-Flórída hélt
áfram að styrkjast árið
2014, allar líkur eru á
því að markaðurinn
haldi áfram að styrkj-
ast með svipuðum ár-
angri í ár. Við erum
ennþá í svokölluðum
seljendamarkaði (lager
dugir ekki til sex mán-
aða sölu), sem þó gæti
breyst í kaup-
endamarkað, þar sem eignum á
markaðnum fjölgar stöðugt. Meðan
fastir vextir á 30 ára lánum haldast í
kringum 4% (sem er mjög hagstætt
fyrir fasteignakaupendur) má búast
við að menn haldi áfram að kaupa
fasteignir. Ekki skaðar það kaup-
endur að það eru nú um 35% fleiri
eignir til sölu en á síðasta ári, að sögn
félags fasteignasala í Mið-Flórída
(ORRA). Eru þetta góðar fréttir bæði
fyrir seljendur og kaupendur fast-
eigna í Mið-Flórída.
Önnur vísbending um bætt ástand
fasteignamarkaðarins í Mið-Flórída
er að miðjuverð fasteigna hækkaði
um 6,5% frá því í desember 2013 þar
til í desember 2014. Þetta sýnir að
verðmæti fasteigna í Mið-Flórída hef-
ur verið að aukast og hafa eigendur
fasteigna þar séð stöðuga hækkun á
verði eigna sinna síðustu 40 mán-
uðina, þetta er engin tilviljun. Fast-
eignaverð í Mið-Flórída hefur stöð-
ugt og örugglega hækkað undanfarið
og það lítur ekki út fyrir að þessi þró-
un muni neitt hægja á sér á næstunni.
Margir hagfræðingar spá því að
nýbyggingar muni aukast og hækka í
verði. Jonathan Smoke, sem er hag-
fræðingur fyrir heimasíðuna „Real-
tor.com“ og telur sjálfan sig vera aft-
urhaldssaman bjartsýnismann, ritaði
grein í Wall Street Journal um þessi
mál. Í greininni spáir hann því að við
munum sjá fleiri sem eru að kaupa
eignir í fyrsta sinn koma inn á mark-
aðinn og að nýbyggingar munu
aukast um 25%. Trulia.com fram-
kvæmdi skoðanakönnun meðal gesta
á heimasíðu sinni þar
sem um 2.000 tóku þátt,
36 prósent svarenda
reikna með því að árið
2015 verði betra ár til
þess að selja fasteignir
en árið 2014, þetta segir
okkur að almennings-
álitið telur að fast-
eignamarkaðurinn sé að
rétta úr kútnum.
Þó svo brunaútsala
bankanna á nauðung-
arsölueignum sé að
mestu yfirstaðin eru
samt mörg tækifæri enn fyrir vana
fjárfesta til þess að kaupa eignir sem
þarfnast viðgerða. Bankarnir eru enn
að selja lagerinn sinn af eignum sem
þeir tóku til baka á nauðungarsölum.
Vanir fjárfestar sjá enn mörg tæki-
færi og kaupa eignir sem þurfa á
minniháttar viðgerðum að halda og
eru enn að hagnast á þessum við-
skiptum. Það má samt segja að það
séu merki um heilbrigðari markað að
þessum eignum hefur fækkað veru-
lega á markaðnum.
Það má reikna með því að á árinu
2015 sjáum við stöðuga og örugga
verðhækkun á fasteignamarkaðnum í
Mið-Flórída, með fjölgun á kaup-
endum sem eru að kaupa sína fyrstu
eign og síðan með aukinni sölu á ný-
byggingum. Einnig reikna ég með að
við sjáum fleiri útlendinga koma til
Flórída til þess að kaupa sér frí-
stundahús og til þess að fjárfesta í
fasteignum. Lúxuseignir eru að byrja
að hreyfast, sem er einnig merki um
heilbrigðari og stöðugri markað. Sem
sagt: Það má búast við að árið 2015
verði gott ár í fasteignasölu í Mið-
Flórída.
Eftir Pétur Má
Sigurðsson
Pétur Már
Sigurðsson
»Margir hagfræð-
ingar spá því að ný-
byggingar muni aukast
og hækka í verði.
Höfundur er fasteignamiðlari í Mið-
Flórída og eigandi The Viking Team,
Realty. Íslensk heimasiða www.-
Floridahus.is.
Horfur á fasteigna-
markaðnum
í Mið-Flórída 2015
mbl.is
alltaf - allstaðar