Morgunblaðið - 23.02.2015, Side 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2015
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Vonandi rís ég undir nafni, en ég
get ekki annað en þakkað þennan
heiður og þá löngu lífdaga, sem ég
hef nú þegar fengið, til að reyna að
skilja eitthvað nýtilegt eftir mig,“
segir Ómar Þ. Ragnarsson fjölmiðla-
maður sem sl. laugardag hlaut heið-
ursverðlaun Eddunnar fyrir framlag
sitt til sjónvarpssögu Íslendinga.
Voru verðlaunin afhent honum í tón-
listar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu
þar sem uppskeruhátíð íslensku
kvikmynda- og sjónvarpsakademí-
unnar fór fram um nýliðna helgi.
Eddan 2003 stendur upp úr
Ómar hefur í fimm skipti hlotið
hin eftirsóttu Edduverðlaun fyrir
unnin störf en að sögn hans eru
verðlaunin árið 2003 honum eftir-
minnilegust.
„Það var eftir að ég gerði mína
stærstu kvikmynd [Á meðan land
byggist] sem kvikmyndargerðamað-
ur. Af þeim verkum sem ég hef hing-
að til gert þykir mér vænst um þá
Eddu og það verk. Einfaldlega
vegna þess að það var langerfiðast,
dýrast og þjónaði mestum tilgangi,“
segir Ómar en það ár var áðurnefnd
kvikmynd tilnefnd sem besta heim-
ildarmynd ársins. Edduna fékk Óm-
ar hins vegar í flokknum sjónvarps-
fréttamaður ársins. „Ég hefði aldrei
verið tilnefndur sem sjónvarps-
fréttamaður ársins nema fyrir þessa
mynd. Þannig að þetta voru í raun
tvær tilnefningar af sama tilefni.“
Ljóst er að Ómar er hvergi nærri
hættur í kvikmyndagerð og segist
aðspurður eiga átta myndir eftir
ógerðar. „Ég er byrjaður á öllum
þessum myndum. Þetta hefur hins
vegar verið svolítið erfitt því alltaf
kemur eitthvað nýtt upp á sem verð-
ur til þess að ég þarf að fara í annað
og mikilvægara verk,“ segir Ómar.
Nýjustu myndir hans, sem frum-
sýndar voru á Degi íslenskrar nátt-
úru, eru heimilda- og fræðslumyndin
Akstur í óbyggðum og tónlistar-
myndböndin Íslandsljóð og Reykja-
víkurljóð. „Og núna vinn ég að því að
koma þessum þremur myndum inn á
sérstakan disk sem hægt verður að
selja útlendingum,“ segir Ómar en
áðurnefnd heimildamynd fjallar um
það hvernig best sé hægt að njóta ís-
lenskrar náttúru í akstri um óbyggð-
ir landsins án þess að lenda í vand-
ræðum og valda skemmdum.
Með þjóðinni í gegnum árin
Ómar hóf fyrst störf sem frétta-
maður árið 1969 og segir hann
Edduverðlaunin nú óhjákvæmilega
tilefni til að líta um öxl og rifja upp
gamla tíma. Efst í huga hans eru
þær fjölmörgu gleðistundir sem
hann hefur átt með þjóðinni og þeir
miklu harmleikir sem dunið hafa yfir
undanfarna áratugi. „Öll þessi bana-
slys og áföll, að maður skuli alltaf
hafa lent inni í þeim miðjum, er mjög
þung lífsreynsla og djúp.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Edduverðlaun Ómar Þ. Ragnarsson hlaut heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til sjónvarpssögu í Hörpu um helgina.
Heiðursverðlaunahafi
með átta verk í bígerð
Ómar Þ. Ragnarsson heiðraður á verðlaunahátíð í Hörpu
Kvikmyndataka ársins
Jóhann Máni Jóhannsson fyrir
Vonarstræti
Gervi ársins
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Von-
arstræti
Klipping ársins
Sigurbjörg Jónsdóttir fyrir Vonarstræti
Brellur ársins
Bjarki Guðjónsson fyrir Harry og
Heimir: Morð eru til alls fyrst
Heiðursverðlaun
Ómar Ragnarsson
Best Þorsteinn og Hera í hlutverkum sínum í myndinni Vonarstræti.
Allar upplýsingar um vinningshafa
frá upphafi eru á eddan.is/
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Líf og fjör Glæsilegur hópur styttuhafa sprellar á sviðinu með Eddu Björgu.
Hvetur „Áfram margbrotin kvenhlutverk,“ sagði Hera Hilmarsdóttir sem
var valin leikkona ársins í aðalhlutverki í kvikmyndinni Vonarstræti.
Grjótharður Helgi Björnsson var valinn besti karlleikari í aukahlutverki fyrir
hlutverk sitt í kvikmyndinni París norðursins og var kátur með styttuna.
2 VIKUR Á TOPPNUM!
VINSÆLASTA MYNDIN
Á ÍSLANDI Í DAG
www.laugarasbio.isSími: 553-2075
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS OG MIDI.IS
- bara lúxus