Morgunblaðið - 04.03.2015, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 2015
!"!
#
"!
#
$
"!
"
%% %
"##
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%
"!
$%
""#"
#"
$"
%#
%#$
%"
#
!!
$$"
#
#$
$%$
"
!#
%##
"!
$$%!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Arion banki hefur gefið út skuldabréf
að upphæð 300 milljónir evra eða sem
nemur um 45 milljörðum íslenskra
króna. Umframeftirspurn var ríflega
tvöföld því í heild bárust tilboð frá um
hundrað fjárfestum fyrir rúmlega 675
milljónir evra.
Skuldabréfin eru til þriggja ára og
bera fasta 3,125% vexti, og voru seld á
kjörum sem jafngilda 3,10% álagi yfir
millibankavexti. Um er að ræða fyrstu
útgáfu íslensks banka í evrum sem seld
er til breiðs hóps fjárfesta allt frá end-
urreisn fjármálakerfisins. Til stendur
m.a. að nýta hluta lánsins til að greiða
niður önnur og óhagstæðari lán.
Arion banki gefur út
skuldabréf í evrum
● Gistinóttum útlendinga á hótelum hér-
lendis fjölgaði nú í janúar um 41% í sam-
anburði við sama tímabil í fyrra. Í heildina
voru gistinæturnar 161.400 talsins og er-
lendir gestir báru uppi 87% þeirra.
Flestar voru gistinæturnar á höfuð-
borgarsvæðinu eða 127.500 og aukn-
ingin þar nam 31% frá fyrra ári. Þegar lit-
ið er til þess hvaða þjóðir bera uppi
kaupin á gistinóttunum hafa Bretar vinn-
inginn með 59.700 nætur, Bandaríkja-
menn koma þar á eftir með 25.500 og
Þjóðverjar 7.700.
Gistinætur á hótelum í
janúar aldrei verið fleiri
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Tólf af þrettán félögum í Kauphöll-
inni hafa birt uppgjör sín fyrir árið
2014 og nemur hagnaður þeirra sam-
tals 35,3 milljörðum króna. Icelandair
og Össur skiluðu mestum hagnaði.
Hagnaður Icelandair nam 9 milljörð-
um króna og hagnaður Össurar var 7
milljarðar króna, HB Grandi kemur
þar á eftir með 5,6 milljarða króna
hagnað. Önnur félög eru með 2 millj-
arða eða minni hagnað, þar af var Ný-
herji sem skilaði minnstum hagnaði,
259 milljónum króna.
Hagar er eina félagið í Kauphöll-
inni sem á eftir að birta uppgjör sitt,
en þar er miðað við annars konar
rekstrarár þar sem reikningum
verður skilað í maí.
Arðgreiðslutillögur nema
19,3 milljörðum króna
Af þeim tólf félögum sem þegar
hafa birt uppgjörin eru tíu sem gera
tillögu til aðalfundar um arð-
greiðslur til hluthafa, samtals að
upphæð 19,3 milljarðar króna. Ný-
herji og Reginn eru þau tvö félög
sem ekki eru með áform um arð-
greiðslur til hluthafa fyrir síðasta
rekstrarár. Hæstu arðgreiðslurnar
eru hjá tryggingarfélögunum Sjóvá
og TM sem hvort um sig leggur til 4
milljarða króna í arðgreiðslur sem er
margfaldur hagnaður þeirra, nærri
fjórfaldur hagnaður hjá Sjóvá og
nærri tvöfaldur hagnaður hjá TM.
HB Grandi leggur til 2,7 milljarða
króna arðgreiðslu, Icelandair 2,5
milljarða króna og VÍS leggur til 1,7
milljarða króna í arð.
Össur sem leggur til 1,1 milljarð
króna í arð er það félag sem er með
lægsta hlutfall arðgreiðslna af hagn-
aði eða tæplega 16%. Fyrir utan
tryggingarfélögin þá er N1 með
hæsta hlutfall arðs af hagnaði eða
52% og 840 milljóna króna arð, HB
Grandi er þar nálægt með 49% hlut-
fall, Marel sem leggur til 526 millj-
óna króna arðgreiðslu og Icelandair
eru með um 30% arðgreiðsluhlutfall.
Vodafone sem leggur til rúman millj-
arð í arð er með 20% arðgreiðslu-
hlutfall.
Tólf félög með 44% af
hagnaði bankanna
Það er áhugavert að setja upp-
gjör þeirra tólf félaga sem eru í
Kauphöllinni í samanburð við upp-
gjör þriggja stærstu bankanna, Ís-
landsbanka, Arion banka og Lands-
banka, en hagnaður þeirra saman-
lagður nam 80,2 milljörðum króna á
síðasta ári. Samtals hagnaður félag-
anna tólf í Kauphöllinni nemur því
44% af þeim hagnaði sem bankarnir
þrír skila.
Ef arðgreiðslutillaga stjórna
bankanna þriggja verður samþykkt
á aðalfundum verða greiddir 45,7
milljarðar króna í arð til eigenda sem
er nokkuð meira en tvöföld arð-
greiðslutillaga félaganna tólf saman-
lagt.
Af samtals hagnaði félaganna tólf
fara 55% í arðgreiðslur ef tillögurnar
verða samþykktar. Annað form á því
að koma áfram fjármunum til hlut-
hafa er þegar félögin kaupa eigin
bréf. Þar með er dregið úr magni af
hlutabréfum sem eru á markaðnum
sem mögulega gæti leitt til gengis-
hækkunar á hlutabréfaverðinu.
Nokkur félaganna í Kauphöllinni
eru með svonefndar endurkaupa-
áætlanir þar sem þessari aðferð er
beitt markvisst.
Ef tillögur um arðgreiðslurnar
verða samþykktar á aðalfundum
félaganna má búast við að hluti
þess fjármagns sem greitt verður
út komi aftur inn á markaðinn þeg-
ar fjárfestar kaupa hlutabréf að
nýju.
Tólf félög í Kauphöllinni
hagnast um 35 milljarða
Hagnaður og tillögur að arðgreiðslum fyrirtækja í kauphöllinni
Hagnaður Arður
10.000
9.000
8.000
7.000
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
m
ill
jó
ni
rk
ró
na
Heimild: Ársreikningar
Tillögur að arðgreiðslum til stjórna félaganna nema 19,3 milljörðum króna
Nefnd sem skipuð var 15. apríl á
síðasta ári og gert að fjalla um
skuggabankakerfið hér á landi hef-
ur gengið frá lokadrögum að
skýrslu um viðfangsefni sitt. Nefnd-
inni var samkvæmt skipunarbréfi
frá fjármála- og efnahagsráðherra
uppálagt að skila áfangaskýrslu í
september síðastliðnum og tillögum
til lagabreytinga fyrir árslok 2014.
Vinna sú hefur tafist nokkuð. Þrátt
fyrir margítrekaðar tilraunir hefur
formaður nefndarinnar, Tómas
Brynjólfsson, skrifstofustjóri í fjár-
mála- og efnahagsráðuneytinu og
varaformaður stjórnar Fjármálaeft-
irlitsins, neitað að tjá sig um starf
nefndarinnar eða það hvenær loka-
gerð skýrslunnar verði tilbúin.
Samkvæmt öruggum heimildum
Morgunblaðsins er stutt í að skýrsl-
an líti dagsins ljós en ekki liggur
fyrir hvort hún verði gerð opinber.
Það eina sem fram hefur komið
opinberlega um efni skýrslunnar og
niðurstöður þær sem hún hefur að
geyma má finna í fundargerð fjár-
málastöðugleikaráðs sem fundaði
19. janúar síðastliðinn. Þar segir
um skýrsludrögin: „Fyrir liggur að
Evrópugerðir verða innleiddar í ís-
lensk lög en þær fela í sér auknar
kröfur til skráningar og upplýsinga-
gjafar um viðskipti sem hingað til
hafa verið utan hefðbundins eftir-
lits.“
Aðrir fulltrúar í nefndinni eru
Guðmundur Kári Kárason sem til-
nefndur er af fjármála- og efna-
hagsráðuneytinu, Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir og Steinn Friðriks-
son sem tilnefnd eru af Seðlabanka
Íslands og Arnfríður K. Arnardóttir
og Sigurður Árni Kjartansson sem
tilnefnd eru af Fjármálaeftirlitinu.
Styttist í skugga-
bankaskýrslu
Eftirlit verður aukið og kröfur meiri
Morgunblaðið/Ásdís
Bankamál Erfitt hefur reynst að
afla upplýsinga um skýrsludrögin.
Úti- og innimottur á tilboði
– úrval af frábærum mottum í mörgum gerðum og stærðum
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
Rekstrarvörur
– fyrir þig og þinn vinnustað
RV
0215
Tilboð
Verð frá3.188 kr.