Ægir - 01.08.2014, Page 30
26
marport.com Bás E42
„Það er óskiljanlegt að þeir sem rann-
saka og fylgjast með lífríkinu í hafinu í
kringum landið skuli ekki nýta sér þær
miklu upplýsingar sem fiskveiðiflotinn
safnar um ástandið í sjónum á hverjum
tíma,“ segir Óskar Axelsson hjá Marporti
í viðtali við Ægi. Marport þróar og fram-
leiðir nema fyrir troll og nætur sem
mæla hita, dýpi og lífmassann sem kem-
ur í veiðarfærin á hverjum tíma og gera
skipsstjórnendum kleift að meta hvaða
tegundir það eru. Þá sýna nemarnir legu
veiðarfæra í sjó og hægt er að fylgjast
með trollopi. Á síðstu árum hafa flest ís-
lensk togveiðiskip tekið slíkan búnað í
þjónustu sína og segir Óskar að nú
haldi menn helst ekki til veiða nema að
hafa áður fullvissað sig um að allir
veiðarfæranemar séu í lagi. Í ljósi þess
hve mörg skip eru komin með þennan
búnað er ljóst að gríðarmiklum upplýs-
ingum er safnað um ástandið á miðun-
um á hverjum tíma og er hægt að fylgj-
ast með þessum upplýsingum úr landi í
rauntíma.
Hrein sóun
„Það er sárt til þess að hugsa að aðilar
eins og Hafrannsóknastofnunin skuli
ekki nýta þessar miklu upplýsingar. Þeir
gætu tengst þeim þráðlaust og þannig
haft enn betri vitneskju um ástandið í
hafinu í kringum landið allan ársins hr-
ing. Þarna er til dæmis safnað nákvæm-
um hitamælingum oft á sólarhring á öll-
um helstu veiðislóðum við landið og
hægt að fylgjast með þeim í rauntíma. Í
dag eru þessi gögn vistuð um borð í 60
daga en síðan er þeim eytt. Það er hrein
sóun að nýta þau ekki betur,“ segir
Óskar. Hann segir að færeyska hafrann-
sóknastofnunin hafi sett svona búnað
um borð í 5 fiskiskip á síðasta ári og
fylgist nú með makrílveiðunum og þeim
umhverfisþáttum sem þeim tengjast í
rauntíma.
Óskar stofnaði tæknifyrirtækið Mar-
port árið 1997 og hóf þá þegar að þróa
áðurnefnda veiðarfæranema og hefur
fyrirtækið haldið þeirri þróun áfram allar
götur síðan. Í dag er Marport með
stærstu markaðshlutdeild í veiðarfæra-
nemum á heimsvísu en fyrirtækið er nú
að fullu í eigu bandaríska fyrirtækisins
Airmar Technology Corporation. Mar-
port er með starfsstöðvar á Íslandi,
Frakklandi, Spáni og í Bandaríkjunum
og eru starfsmenn þess 34, þar af 6 á
Íslandi.
Samstarfsaðilar í íslenskum
sjávarútvegi
Óskar segir Íslensku sjávarútvegssýn-
inguna öflugan vettvang til að kynna
nýjungar í sjávarútvegi en þar gefist
þeim einnig tækifæri til að hitta þá fjöl-
mörgu samstarfsaðila úr íslenskum sjáv-
arútvegi sem hafi veitt þeim ómetanlega
hjálp í gegnum árin. Á sýningunni í ár
mun Marport kynna ýmsar nýjungar, þar
á meðal hugbúnaðinn Scala sem felur í
sér nýja framsetningu á gögnunum sem
nemarnir senda frá sér. Í stað fastmót-
aðrar framsetningar af þessum upplýs-
ingum geta notendur nú á einfaldan hátt
ráðið því hvernig notendasviðmótið rað-
ast upp á skjáinn. Þá geta menn stjórn-
að því sjálfir hvaða nemar eru virkir
Marport
Fossaleyni 16, Reykjavík
Sími 533 3838
oskar@marport.com
Eigum að nýta betur
gögnin sem fiskveiði-
flotinn aflar
Óskar Axelsson, stofnandi Marports, ásamt syni sínum Axel Óskarssyni vélaverkfræðingi
sem einnig starfar hjá fyrirtækinu.